Morgunblaðið - 10.12.2019, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019
Það áttu sér stað áhugaverð-
ar samræður í Kastljósinu á RÚV
hinn 4. desember síðastliðinn. Í
settið voru mætt þau Margrét
Lára Viðarsdóttir, fyrrverandi
landsliðskona í knattspyrnu, og
Guðni Bergsson, formaður KSÍ.
Umfjöllunarefni þáttarins var
kvennaknattspyrnan á Íslandi og
hlutir sem mættu betur fara.
Í þættinum var meðal annars
rætt um þá vegferð sem kvenna-
knattspyrnan á Íslandi er á, U23
ára landslið kvenna og leiktíma í
úrvalsdeild kvenna á síðustu
leiktíð. Undanúrslitaleikur Hol-
lands og Svíþjóðar á HM kvenna
í Frakklandi síðasta sumar fór
fram 3. júlí, á sama tíma og leik-
ur Vals og Breiðabliks í úrvals-
deild kvenna sem var á þeim
tíma stærsti leikur tímabilsins í
kvennaboltanum. Óheppilegt.
Eins og Margrét Lára benti
réttilega á hefði einfaldlega átt
að fresta mótinu aðeins svo leik-
menn hefðu til dæmis tækifæri
til þess að fara til Frakklands og
fylgjast með HM. Að sama skapi
geta félögin alltaf gert at-
hugasemdir við mótafyr-
irkomulagið þegar KSÍ leggur
fram drög að Íslandsmótinu.
Síðasta sumar var kvartað
yfir dómgæslu í efstu deild
kvenna. Eins og var réttilega
bent á dæma ekki sömu dóm-
arar í efstu deildum kvenna og
karla. Aðeins félögin geta breytt
þessu sjálf og á næsta ársþingi
KSÍ fá stelpurnar tækifæri til
þess að koma sínum málum á
framfæri. Þar geta þær líka farið
fram á það að bestu dómarar
landsins dæmi í efstu deild
kvenna.
Íslenskar knattspyrnukonur
þurfa að vinna betur með sínum
félögum í þeim málefnum sem
mega betur fara, aðeins þannig
munu einhverjar breytingar til
góðs eiga sér stað.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Á HLÍÐARENDA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valsmenn eru á miklu skriði í úrvals-
deild karla í handknattleik, Olís-
deildinni, en liðið vann eins marks sig-
ur gegn FH í Origo-höllinni á
Hlíðarenda í þrettándu umferð deild-
arinnar í gær. Leiknum lauk með
29:28-sigri Valsmanna sem voru að
vinna sinn sjöunda deildarleik í röð í
gær.
FH-ingar náðu fjögurra marka for-
ystu um miðbik fyrri hálfleiks en
Valsmenn neituðu að láta slá sig út af
laginu. Þeir unnu sig inn í leikinn og
leiddu með þremur mörkum í hálfleik,
17:14. FH-ingar byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og Hafnfirðingum
tókst að jafna metin eftir þriggja mín-
útna leik í síðari hálfleik. Valsmenn
kipptu sér lítið upp við það, náðu aftur
þriggja marka forskoti, og héldu
þeirri forystu allt til enda.
Valsmenn hikstuðu mikið í upphafi
tímabils en liðið virðist svo sannarlega
vera búið að finna taktinn, bæði í vörn
og sókn. Það er mikið sjálfstraust í
liðinu en Valsarar hefðu eflaust tapað
þessum leik eða misst hann niður í
jafntefli ef hann hefði farið fram í
september/október. Hreiðar Levý
Guðmundsson var mjög öflugur á
milli stanganna og varði oft á tíðum á
lykilaugnablikum í leiknum og kom
þannig í veg fyrir að FH-ingar kæmu
sér inn í leikinn. Þá átti Anton Rún-
arsson mjög góðan leik og dró vagn-
inn þegar mest á reyndi.
Leikur FH-inga var kaflaskiptur
og það kann ekki góðri lukku að stýra
gegn jafn sterkum andstæðingi og
Valsliðinu. Þá var Ásbjörn Frið-
riksson, sem skoraði tíu mörk í leikn-
um, mikið að reyna að draga vagninn í
liði Hafnfirðinga en hann getur ekki
siglt öllum sigrum í höfn fyrir liðið.
Aðrir leikmenn eins og Bjarni Ófeig-
ur Valdimarsson og Einar Rafn Eiðs-
son verða að stíga upp líka ef FH ætl-
ar sér að berjast um einhverja titla.
FH-liðið sýndi hins vegar karakter á
lokamínútunum og var nálægt því að
knýja fram jafntefli en Valsmenn
voru einfaldlega of stór biti fyrir þá í
gær.
Þú vinnur ekki titla í september og
stígandi í Valsliðinu þessa dagana er
umhugsunarefni fyrir önnur lið í
deildinni. Hlíðarendaliðið er óðum að
ná vopnum sínum á nýjan leik og það
er einhver ára yfir liðinu þessa dag-
ana sem segir manni að liðið geti ein-
faldlega ekki tapað. Hafnfirðingar eru
með gríðarlega vel mannað lið en í
jafnri deild þurfa einfaldlega allir leik-
menn liðsins að skila sínu ef FH ætlar
sér að vinna handboltaleiki og það
gerðist ekki í gær.
Mikill meðbyr á Hlíðarenda
Valsmenn sitja í þriðja sæti deildarinnar þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu
Hafnfirðingar til alls líklegir en þurfa meiri stöðugleika frá lykilleikmönnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Drifkraftur Anton Rúnarsson dró vagninn þegar mest á reyndi á Hlíðarenda og var markahæstur með 11 mörk.
Knattspyrnukonan Kristín Dís
Árnadóttir hefur skrifað undir
skólastyrk við University of Ten-
nessee í Bandaríkjunum. Skólinn
spilar í SEC-deildinni, efstu deild
NCAA, sem er ein sterkasta deildin
í háskólaboltanum vestanhafs.
Kristín, sem er tvítugur varn-
armaður, hefur leikið með Breiða-
bliki undanfarin ár. Hún varð Ís-
landsmeistari í fyrra og hefur í
tvígang orðið bikarmeistari. Krist-
ín hefur leikið 57 leiki í efstu deild
og skorað fjögur mörk. Þá á hún 29
leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Til Bandaríkjanna
í sterka deild
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Vörn Kristín Dís Árnadóttir er afar
sterkur varnarmaður.
Knattspyrnukonan Rakel Hönnu-
dóttir er gengin í raðir Breiðabliks
á nýjan leik eftir tvö ár erlendis í
atvinnumennsku. Rakel gekk fyrst í
raðir Limhamn Bunkeflo í Svíþjóð
og svo Reading á Englandi.
Rakel lék 103 leiki með Breiða-
bliki í efstu deild 2012-2017 og
skoraði í þeim 46 mörk. Hún varð
bikarmeistari með Blikum árin
2013 og 2016 og Íslandsmeistari ár-
ið 2015. Rakel hefur þegar leikið
100 landsleiki fyrir Íslands hönd og
skorað í þeim níu mörk. Viðtal við
Rakel má sjá á mbl.is/sport.
Rakel snýr aftur í
Kópavoginn
Morgunblaðið/Golli
Græn Rakel Hönnudóttir á yfir 150
leiki með Breiðabliki.
Origo-höllin Hlíðarenda, Olísdeild
karla, 9. desember 2019.
Gangur leiksins: 2:4, 5:7, 7:11, 10:11,
14:12, 17:14, 18:18, 21:19, 23:20,
25:23, 27:24, 29:28.
Mörk Vals: Anton Rúnarsson 11/6,
Finnur Ingi Stefánsson 6/2, Agnar
Smári Jónsson 6, Magnús Óli Magn-
ússon 4, Ýmir Örn Gíslason 2.
Varin skot: Hreiðar Levý Guðmunds-
son 15.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 10/2,
VALUR – FH 29:28
Arnar Freyr Ársælsson 5, Birgir Már
Birgisson 3, Einar Rafn Eiðsson 3,
Jón Bjarni Ólafsson 2, Einar Örn
Sindrason 2, Bjarni Ófeigur Valdi-
marsson 1, Jakob Martin Ásgeirsson
1, Ísak Rafnsson 1.
Varin skot: Phil Döhler 11, Birkir
Fannar Bragason 3/1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Bjarki Bóasson og Gunnar
Óli Gústafsson.
Áhorfendur: 350.
Arsenal gat loksins fagnað sigri er liðið vann 3:1-
útisigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í
gærkvöldi. Sigurinn var sá fyrsti síðan 24. október og sá
fyrsti í deildinni síðan 6. október. Arsenal lék níu leiki í
röð án sigurs og voru úrslitin því afar kærkomin.
Það byrjaði ekki vel því West Ham var sterkari aðilinn
fyrsta klukkutímann og voru Arsenal-menn heppnir að
vera einungis einu marki undir er hinn 18 ára gamli
Gabriel Martinelli skoraði á 60. mínútu og jafnaði metin.
Níu mínútum síðar var Pierre-Emerick Aubameyang bú-
inn að leggja upp eitt mark fyrir Nicolas Pépé og skora
annað og Arsenal komið í 3:1. Arsenal fór upp í 9. sæti
og efri hlutann og er liðið með 22 stig, tveimur minna en
Manchester United í fimmta sæti. West Ham er með 16
stig, aðeins einu frá fallsæti.
AFP
Klippa Pierre-Emerick Aubameyang skorar þriðja mark Arsenal á London-vellinum.
Afar langþráður
sigur Arsenal
Körfuboltamað-
urinn Kristófer
Acox glímir við
erfið veikindi um
þessar mundir.
Kristófer var
lagður inn á spít-
ala í síðustu viku
vegna sýkingar í
nýra, sem síðan
fór út í blóðið. DV
greindi fyrst frá.
„Þetta eru mjög erfið veikindi og
ég hef verið í rannsóknum og með-
ferðum eftir að ég byrjaði að finna
fyrir þessu fyrir nokkrum vikum. Í
síðustu viku blossaði þetta síðan
upp,“ sagði Kristófer í samtali við
DV. Kristófer er allur að koma til og
er búið að útskrifa hann af spítala.
Hann lék ekki með KR gegn
Grindavík í Geysisbikarnum í síð-
ustu viku og er hann ekki vænt-
anlegur á völlinn fyrr en í fyrsta lagi
í janúar á næsta ári.
„Númer eitt, tvö og þrjú er að
bjarga nýranu og komast aftur á
bataveg. Það voru framkvæmd inn-
grip á spítalanum til að hlífa nýranu
og hjálpa því að jafna sig,“ sagði
Kristófer enn fremur.
Kristófer, sem spilaði með ís-
lenska landsliðinu á EM í Helsinki
2017, hefur skoraði 9 stig, tekið 4,6
fráköst og gefið 1,1 stoðsendingu að
meðaltali í sjö leikjum á tímabilinu.
Kristófer
glímir við
erfið veikindi
Kristófer
Acox