Fréttablaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 1
bls. 30
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 14. desember 2002
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Bíó 34
Íþróttir 12
Sjónvarp 36
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
JÓLATÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveitar
Íslands verða í Háskólabíói. Á efn-
isskránni eru meðal annars verk úr
Harry Potter-myndunum og heims-
þekkt jólalög. Tónleikarnir hefjast
klukkan 15.
Jólatónleikar Sinfó
ÓPERUKÓRINN gerir vegfarendum í
miðborg Reykjavíkur dagamun í
innkaupaönnunum með jólasöngv-
um. Kórinn syngur við Tískuval á
mótum Laugavegar, Bankastrætis
og Skólavörðustígs og gengur síðan
syngjandi að Aðventkirkjunni. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 15.30.
Ópera í miðbænum
HANDBOLTI Haukar
frá Hafnarfirði
mæta spænska lið-
inu Ademar Léon í
Evrópukeppni bik-
arhafa í hand-
knattleik að Ás-
völlum í dag klukkan 16. Haukar
töpuðu fyrri leik liðanna með átta
marka mun og eiga því á brattann
að sækja.
Grótta/KR mætir Álaborg frá Dan-
mörku í seinni leik liðanna í áskor-
endakeppni Evrópu í dag. Leikur-
inn fer fram í Danmörku og hefst
klukkan tvö að íslenskum tíma.
Grótta/KR vann fyrri leikinn með
þriggja marka mun.
Íslensk lið
í Evrópukeppni
JÓLALÖGIN
Gleðja
og ergja
LAUGARDAGUR
253. tölublað – 2. árgangur
50% afsl. í dagí Nammilandi
Hagkaup Smáralind og Kringlunni
bls. 22
STÓRIÐJA Samninganefndir Alcoa, ís-
lenskra stjórnvalda og Fjarða-
byggðar hafa lokið gerð samninga
vegna fyrirhugaðs álvers í Reyðar-
firði.
Lokalota samninganna hefur
verið ströng og hafa samninga-
menn setið fram á nætur við að fín-
pússa texta og annan frágang. Um
er að ræða þrjá samninga: við
Landsvirkjun um orkuverð fyrir
raforku frá Kárahnjúkavirkjun, við
Fjarðabyggð og Hafnarsjóð Fjarða-
byggðar um hafnarframkvæmdir
og aðstöðu fyrir álverið í Reyðar-
firði og loks fjárfestingarsamninga
við íslensk stjórnvöld. Lögfræðing-
ar munu á næstu dögum fara yfir
samningstexta og verða samning-
arnir áritaðir fyrir áramót.
Stjórn Landsvirkjunar þingaði í
gær um raforkusamninginn en tók
ekki afstöðu til hans. Samningar
sem Fjarðabyggð er aðili að verða
teknir til umfjöllunar hjá bæjar-
yfirvöldum þar. Þá mun Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráðherra að
líkindum leggja fram frumvarp
vegna samninganna þegar Alþingi
kemur saman að loknu jólaleyfi í
lok janúar.
Stjórn Alcoa tekur í byrjun
næsta árs afstöðu til samninganna
þriggja en þá er jafnframt stefnt að
formlegri undirritun vegna fram-
kvæmdanna. ■
Álviðræðum Alcoa lokið:
Stefnt að álframleiðslu árið 2007
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
K
R
I
19
57
2
12
/2
00
2
dagar til jóla
Opið til kl. 22.00 til jóla
e r m e › a l l t f y r i r j ó l i n
10
REYKJAVÍK Suðaustan
8-13 m/s, skúrir.
Hiti 2 til 7 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Skúrir 4
Akureyri 5-8 Léttskýjað 1
Egilsstaðir 5-8 Léttskýjað 1
Vestmannaeyjar 10-15 Skúrir 5
➜
➜
➜
➜
+
–
+
+
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
TILBÚIN AÐ TAKA VIÐ FORMENNSKU Margrét Sverrisdóttir segist reiðubúin að taka að sér formennsku í Frjálslynda flokknum ef
flokksmenn óska þess þegar Sverrir Hermannsson, faðir hennar, lætur af embætti. Hún ræðir um stöðu Frjálslynda flokksins, samskiptin
við föður sinn og væntingar fyrir komandi þingkosningar í viðtali á blaðsíðu 24.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur vikunnar
meðal 25 til 49 ára
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu?
62%
72%
VELFERÐARMÁL Rekstur Byrgisins á
Miðnesheiði er í mikilli óvissu.
Guðmundur Jónsson forstöðu-
maður segir allt
stefna í síðustu
kvöldmáltíðina um
jólin. „Við fjöl-
menntum á þing-
palla þegar fjárlög-
in voru rædd á Al-
þingi í síðustu viku
og þá var okkur
sagt að mál Byrgis-
ins væru í höndum
ríkisstjórnarinnar.
Við höfum ekkert
heyrt síðan.“
Á fjárlögum fyrir árið 2003 er
Byrginu ekki úthlutað fé en á síð-
asta ári fengust 19 milljónir. Guð-
mundur segir það ekki mikið í
samanburði við aðrar sambæri-
legar stofnanir eins og Krossinn,
sem fékk margfalda þá upphæð.
„Ekki það að þeir eigi það ekki
fyllilega skilið en það breytir
ekki því að reksturinn er í járn-
um og það er aðeins fyrir velvilja
nokkurra einstaklinga að við get-
um haldið áfram dag frá degi.“
Guðmundur segir að yfir vofi
einnig að missa húsnæðið þrátt
fyrir að vitað sé að herinn vilji
eindregið að reksturinn haldi
áfram í Rockville. „Þeir hafa sent
til okkar mann einu sinni í mán-
uði til að aðstoða við uppbygg-
ingu hér, og ekki nóg með það, þá
færa þeir okkur mat og gos-
drykki,“ segir Guðmundur.
Ólafur Örn Haraldsson, for-
maður fjárlaganefndar Alþingis,
segir það af og frá að Byrgið sé
skilið eftir án þess að reksturinn
sé tryggður. „Þvert á móti hefur
mikið verið rætt í nefndinni um
málefni Byrgisins. Við hefðum
getað úthlutað einhverju viðlíka
og í fyrra en það hefði ekki verið
nein lausn. Við vildum að tryggt
yrði til framtíðar að hægt væri að
reka Byrgið og því lögðum við til
að fjármálum þess yrði komið í
framtíðarhorf og húsnæði yrði
öruggt. Mér hefur verið tjáð að
málið hafi verið tekið upp í ríkis-
stjórn og það hafi verið gengið
frá því að hægt verði að reka
heimilið áfram.“
Ólafur segist hafa heimsótt
Byrgið í Rockville og þar sé allt
til fyrirmyndar. „Við erum mál-
inu vel kunnug, og ég hef sagt að
mikilvægt sé að sú starfsemi sem
þar fer fram fái að dafna áfram,
en það er ekki hægt að reka þetta
með einhvers konar íhlaupum
fjárlaganefndar. Þeir sem reka
þetta góða starf af ótrúlegri hug-
sjón eiga betra skilið. Því eru það
tilmæli fjárlaganefndar að ríkis-
stjórnin sjái til þess að hægt
verði að halda þessu mannúðar-
starfi áfram.“
Stefnir í síðustu
kvöldmáltíðina
Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, segir rekstrinum bjargað fyrir horn dag frá
degi fyrir velvilja nokkurra einstaklinga. Ólafur Örn Haraldsson segir fjárlaganefnd hafa vísað
málefnum Byrgisins til ríkisstjórnarinnar, sem er með málið í sínum höndum.
„Við vildum að
tryggt yrði til
framtíðar að
hægt væri að
reka Byrgið og
því lögðum
við til að fjár-
málum þess
yrði komið í
framtíðarhorf.“
HLEMMUR
Milli 20 og
30 fastagestir
SÍÐA 34
SÍÐA 16
PÉTUR
Landinu
fórnað
ELDAMENNSKA
Eins
og jóga
Sjá einnig bls. 2.
bergljot@frettabladid.is