Fréttablaðið - 14.12.2002, Page 2
HÚSNÆÐISMÁL Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segir ástæðu
þess að Byrgið verði að víkja af
Miðnesheiði vera þá að húsin séu
gömul og byggingaefnið í þeim sé
asbest, sem geti verið heilsuspill-
andi. „Herinn hefur farið fram á
að skila landinu. Við vitum að það
kostar mikið fé að rífa sams konar
mannvirki og viljum ekki sitja
uppi með þau því þá kemur það í
okkar hlut,“ segir Halldór.
Hann telur það ekki kost í stöð-
unni að þiggja mannvirkin af
hernum og leysa herinn undan
þeirri kvöð að þrífa eftir sig og
leyfa Byrginu að vera áfram á
svæðinu. „Nei, en það er í sjálfu
sér ekki neitt því til fyrirstöðu að
taka við húsnæðinu ef það gæti
staðið til framtíðar. Þannig er því
ekki farið í þessu tilfelli.“
Halldór segir að Byrgið verði
ekki skilið eftir á hrakhólum. Allt
kapp verði lagt á að finna nýjan
samastað í samráði við Byrgið.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra staðfesti að málið hafi verið
rætt á fundi ríkisstjórnarinnar.
Þar hafi menn verið sammála um
að eitthvað yrði að gera til að
starfsemin gæti gengið áfram.
„Byrgið fékk 12 milljónir á fjár-
lögum og ætti að geta slegið út á
það fram yfir áramót en þá verð-
ur endanlega ákveðið með hvaða
hætti við komum að þessu,“ sagði
Páll Pétursson. ■
Greining Íslandsbanka:
Ekki frekari
lækkanir
EFNAHAGSMÁL Greiningardeild Ís-
landsbanka telur að vaxtalækkun
Seðlabankans á fimmtudag hafi
verið sú síðasta í nokkurn tíma.
Greining metur stöðuna svo að
þar sem skammt sé í lokaákvörð-
un um álver í Reyðarfirði sem
verði að öllum líkindum sam-
þykkt sé ekki ástæða til að ætla
að vextir verði lækkaðir frekar.
Frekar sé ástæða til að ætla að
Seðlabankinn muni hækka vexti
sína á næsta ári og er þá miðað
við að Seðlabankinn fari þá leið
til að auka aðhald í peningamál-
um. ■
2 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
Svanfríður Jónasdóttir er þingmaður Samfylkingar-
inar. Hlé var gert á þingstörfum í gær og fór hún
líkt og þingheimur allur í rúmlega mánaðar jóla-
leyfi frá þingstörfum.
Þó að þingsalurinn lokist þá hafa þing-
menn enn nóg að starfa. Minn metnaður er
jafnan það mikill að ég næ aldrei að ljúka
öllu því sem ég vildi gera. Það spillir þó
ekki jólagleðinni.
SPURNING DAGSINS
Nærðu að klára það sem
klára þarf fyrir jólin? Heilsustofnunin í Hveragerði:
Nær helmingur hættir að reykja
TÓBAK Samkvæmt
nýrri könnun er 45
prósent árangur á
námskeiðum sem
haldin eru hjá Heilsu-
stofnun Náttúrulækn-
ingafélagsins í Hvera-
gerði fyrir reykinga-
fólk. Þykir árangurinn
góður en námskeiðin
standa yfir í viku og
kosta 42 þúsund krón-
ur – allt innifalið.
„Þó viljinn til að
hætta að reykja sé
góður þá eru það ákvörðunin og
framkvæmdin sem skipta öllu,“
segir Anna Pálsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Heilsu-
stofnunarinnar. Sjálf
losnaði hún undan oki
tóbaksins með því að
sækja námskeið hjá
Þorsteini Blöndal
lækni:
„Ég hætti árið 1989
og þótti best að vera
laus við þetta vesen
sem fylgir reykingun-
um. Þá fékk ég aukna
matarlyst og þyngdist
um 10 kíló en var sem
betur fer grönn fyrir,“
segir Anna Pálsdóttir, sem reyk-
ti Winston lights á meðan hún
reykti. ■
Stefnuleysi í mál-
um innflytjenda
Forstjóri Útlendingaeftirlitsins tekur eftir breyttu mynstri á
innflytjendum. Færri sækja um atvinnuleyfi en fjölskyldur
sameinast nú í nýju landi.
FÓLK „Stefnan í útlendingamál-
um ræðst að mestu af þörfinni
fyrir vinnuafl á hverju ári,“ seg-
ir Georg Lárusson, forstjóri Út-
lendingaeftirlits-
ins, um þá fjölgun
dvalarleyfa út-
lendinga sem átt
hefur sér stað
undanfarin ár.
Fjöldi dvalar-
leyfa nær fjór-
faldaðist frá ár-
inu 1995 til ársins
2000. Flest leyfin
voru vegna atvinnuþátttöku þar
sem ódýrt vinnuafl var ráðið frá
fátækum löndum. Íslenskir at-
vinnurekendur hafa þar sótt í að
fá starfsfólk frá löndum á borð
við Víetnam og Pólland. Það er
gagnrýnt af mörgum að stjórn-
völd hér geri engar ráðstafanir
til að mæta þörfum þeirra sem
hingað koma og fyrst og fremst
sé litið á þetta fólk sem vinnu-
afl. Ekki sé gert ráð fyrir hinum
nýju landsmönnum í skólakerfi
eða annars staðar í samfélaginu.
Athygli vekur að í ár fækkar
þeim útlendingum sem sóttu um
dvalarleyfi ef miðað er við síð-
asta ár. Þar munar tæplega 300
manns en 11 desember höfðu
6229 fengið dvalarleyfi á móti
6515 í fyrra. Enga stefnu varð-
andi innflutning fólks til lands-
ins er að finna.
Georg segir að merkja megi
breytingar á því mynstri sem
verið hefur. Nú séu merki þess
að þeir sem komu til starfa á Ís-
landi hafi ákveðið að setjast hér
að og séu að fá fjölskyldur sínar
til nýja landsins.
„Í ár er heldur minni þörf
fyrir vinnuafl. Á móti kemur
aukning á útgefnum dvalarleyf-
um án atvinnuþátttöku, Það er
vísbending um að útlendinga-
samfélagið á Íslandi sé að breyt-
ast í þá veru að þeir sem upphaf-
lega komu hingað, líklega með
tímabundna vinnu í huga, hafi
ákveðið að ílendast og fá til sín
fjölskyldur sínar,“ segir Georg.
Dæmi eru um að heilu fjöl-
skyldurnar séu að flytja til
landsins til að sameinast þeim
sem komið hefur til starfa á Ís-
landi. Atvinnurekendur hafa
tekið fólkinu fagnandi enda er
fyrsta kynslóð innflytjenda oft-
ar en ekki hörkuduglegt fólk en
jafnframt nægjusamt. Hlutfall
nýbúa á Íslandi er með því lægs-
ta þegar litið er til nágranna-
landanna eða um 3,4 prósent á
móti 4,8 prósentum í Danmörku.
Á Írlandi er hlutfallið örlítið
lægra eða 3,3 prósent og á Spáni
er hlutfall nýbúa 2,2 prósent af
þjóðinni. Finnland sker sig úr
nágrannalöndum Íslands en þar
eru innflytjendur aðeins 1,8 pró-
sent af þjóðinni.
rt@frettabladid.is
Lögfræðilektor
gagnrýndur:
Vildi pening
fyrir spjall
DANMÖRK Lektor í lögum við háskól-
ann í Kaupmannahöfn hefur valdið
fjaðrafoki með því að fara fram á
greiðslu fyrir að útlista lagalega
hlið máls fyrir blaðamanni. Fram til
þessa hefur það þótt ein af samfé-
lagslegum skyldum háskólamanna
að útskýra sjónarmið fræða sinna í
fjölmiðlum.
Lektorinn hefur dregið í land og
kennir um tímaleysi. Svar hans hafi
verið kaldhæðni. Hann hafi pirrað
sig á því að blaðamenn teldu sig
hafa ómældan aðgang að sér. ■
Atvinnuleysi í nóvember:
Eykst um
70% frá
fyrra ári
ATVINNULEYSI Atvinnuleysið í nóv-
ember var næstum helmingi
meira en í sama mánuði í fyrra.
Samkvæmt gögnum vinnumiðl-
ana voru 4.567 manns skráðir at-
vinnulausir í lok nóvember
2002, samanborið við 2.716 í
nóvember í fyrra. Aukningin er
1.851 eða rúm 68%.
Ungu fólki fjölgar mjög á at-
vinnuleysisskrá og atvinnuleys-
ið er langvinnara. Af skráðum
atvinnulausum í nóvember 2002
voru 1.002 einstaklingar eða
21,9% á aldrinum 15 til 24 ára en
voru 17 % í nóvember í fyrra.
Þeir sem höfðu verið 6 mánuði
eða lengur á atvinnuleysisskrá
voru í lok nóvember 947 eða
20,7% miðað við 14,8% í lok nóv-
embe í fyrra. ■
GREIÐSLUSKYLDA ÚTVÍKKUÐ
Fleiri útgerðir þurfa að greiða
veiðieftirlitsgjald en áður eftir
að Alþingi samþykkti að útgerð-
ir skipa sem vinna afla að ein-
hverju leyti um borð og skipa
sem vinna uppsjávarfisk um
borð verði að greiða gjaldið.
Áður þurftu aðeins útgerðir
skipa sem vinna botnfiskafla
um borð að greiða gjaldið.
RÝMKAÐAR REGLUR UM FRAM-
REIKNING Lífeyrissjóðir sem
starfa með bakábyrgð banka
hafa fengið rýmkaða heimild til
að ákveða viðmið framreiknings
lífeyrisréttinda. Þeir geta nú
stuðst við fleiri launavísitölur
Hagstofu Íslands en vísitöluna
um meðalbreytingu dagvinnu-
launa hjá opinberum starfsmönn-
um.
HORNAFJÖRÐUR
Jólatrjáastríð geisar á staðnum.
Hornafjörður:
Króna
keppir við
Kiwanis
VERSLUN Verslunin Krónan á Höfn
hefur tekið upp þá nýbreytni að
selja jólatré á þessari aðventu.
Þetta veldur taugatitringi á staðn-
um því Kiwanisklúbburinn Ós
hefur fram að þessu verið einn
um hituna í sölu á jólatrjám. Að
sögn fréttavefjarins Horn.is hef-
ur ekki verið gerður verðsaman-
burður á jólatrjánum, en allur
ágóði af sölu Kiwanismanna renn-
ur til líknarmála. ■
REYKINGAFÓLK Á NÁMSKEIÐI
Góður árangur af vikunámskeiði - 45 pró-
sent byrja ekki aftur innan árs
GEORG LÁRUSSON
Stefnan ræðst af þörfinni fyrir vinnuafl.
Íslenskir at-
vinnurekendur
sækja í að fá
starfsfólk frá
löndum á
borð við Ví-
etnam og Pól-
land.
DVALARLEYFI
1995 1641
1999 4576
2001 6515
NÝBÚAR
Hlutfall útlendinga af þjóðarheild
nokkurra landa árið 2001
Austurríki 9,4%
Þýskaland 8,9%
Svíþjóð 5,4%
Danmörk 4,8%
Noregur 4,1%
Bretland 4,1%
Ísland 3,4%
Írland 3,3%*
Ítalía 2,2%
Finnland 1,8%
Ungverjaland 1,1%
*Tölur frá árinu 2000.
ALÞINGI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
O
FRÁ ROCKVILLE
Halldór Ásgrímsson segir að herinn vilji skila landinu. Að öðrum kosti sitji íslenska ríkið
uppi með mannvirkin og þurfi að rífa þau á sinn kostnað.
Halldór Ásgrímsson um Rockville:
Herinn vill skila landinu