Fréttablaðið - 14.12.2002, Qupperneq 6
6 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 82,92 -0,81%
Sterlingspund 131,77 -0,20%
Dönsk króna 11.43 0,13%
Evra 84.90 0,11%
Gengisvístala krónu 126,78 0,44%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 397
Velta 7,014,4 milljónir
ICEX-15 1.326 -0,08%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 867.578.231
Olíuverslun Íslands 232.213.510
Eimskipafélag Íslands 103.406.006
Mesta hækkun
Þorbjörn Fiskanes 4,63%
AFL fjárfestingarfélag 4,17%
Kögun 2,46%
Mesta lækkun
Jarðboranir -2,74%
Þormóður rammi-Sæberg -2,17%
Síldarvinnslan -1,89%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8.474,3 -0,8%
Nasdaq*: 1.375,6 -1,7%
FTSE: 3.877,4 -1,5%
DAX: 3.320,9 0,5%
Nikkei: 8.516,1 -2,2%
S&P*: 893,3 -0,9%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
KVIKMYNDIR „Það er sama hvernig
maður reiknar. Áhorfendafjöldinn
fer aldrei niður fyrir 20 þúsund,“
segir Hafliði Ingason hjá endur-
skoðunarskrifstof-
unni Pricewater-
h o u s e C o o p e r s ,
sem hefur eftirlit
og skráir aðsókn-
artölur að kvik-
myndum sem
sýndar eru hér á
landi. Eins og
fram kom í Frétta-
blaðinu í gær hef-
ur Júlíus Kemp, framleiðandi
kvikmyndarinnar Maður eins og
ég, neitað að greiða hluta starfs-
fólks síns laun vegna samninga
um greiðslur sem aðeins ætti að
inna af hendi eftir að 20 þúsund
gestir væru komnir í hús. Júlíus
staðhæfir að 19.519 manns hafi
séð myndina og því beri honum
ekki að gera upp við starfsfólk sitt
áunninn bónus. Sérfræðingar end-
urskoðunarfyrirtækisins eru þó á
öðru máli og styðja kröfur starfs-
fólks sem vill fá sitt:
„Samkvæmt okkar bókhaldi
sáu 21.131 myndina Maður eins og
ég. Þar af voru boðsmiðar 751
þannig að seldir miðar eru 20.380.
Þannig standa málin, hvernig sem
menn vilja að öðru leyti reikna
dæmið,“ segir Hafliði Ingason hjá
PricewaterhouseCoopers og getur
því ekki staðfest og skrifað undir
útreikninga Júlíusar Kemp fram-
leiðanda. Hafliði hefur verið önn-
um kafinn við að svara fyrir-
spurnum starfsfólks myndarinn-
ar, sem stendur fast á sínu og vill
að samningar verði efndir í ljósi
þess að minnst 20 þúsund manns
hafi séð myndina.
Að sögn Hafliða Ingasonar er
mál þetta alls ekki einstakt. Samn-
ingar um aðsóknartengdar launa-
greiðslur í kvikmyndagerð hér á
landi eru algengir. Nóg sé af kvik-
myndagerðarfólki og ef fólk
beygi sig ekki undir kröfur um
slíka samninga sé einfaldlega leit-
að til annarra. Samningar sem
þessir voru gerðir vegna töku
kvikmyndarinnar Regína svo og
við gerð myndarinnar um Lalla
Johns.
eir@frettabladid.is
ADSL mótald • Stofngjald • Músarmotta
Samtals verðmæti 18.125 kr.
Aðeins 5.900 kr.
Hver býður betur?
Start-
pakkinn
- allt sem til þarf
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
94
98
11
/2
00
2
islandssimi.is
800 1111
HAGKERFIÐ Krónan hefur verið að
styrkjast að undanförnu. Ein
skýringin er að það stefnir í af-
gang af viðskiptum Íslendinga við
útlönd. Áður var búist við að lítils
háttar halli yrði á þeim. Greining-
ardeild Búnaðarbankans segir
fleira koma til. Telur bankinn að
styrking krónunnar endurspegli
einnig væntingar til stóriðjufram-
kvæmda. Krónan hefur verið
nokkuð stöðug undanfarna mán-
uði en hefur styrkst töluvert í des-
ember.
Greiningardeildin telur að
veikari króna endurspegli að
óbreyttu betur ástand hagkerfis-
ins en núverandi staða hennar. Af
því er dregin sú ályktun að vænt-
ingar séu til stóriðjunnar.
Kaupmáttaraukning er lítil og
fjárfestingar sömuleiðis. Fátt er
því sem bendir til þess að inn-
flutningur aukist í bráð. Verði
ekki af stóriðjuframkvæmdum
má gera ráð fyrir því að viðskipta-
hallinn vaxi á ný og krónan sæki í
fyrra horf. Til skamms tíma mið-
aða við að ekki dragi úr stóriðju-
væntingum gæti krónan styrkst
enn frekar. ■
Þróun gengis krónunnar:
Stóriðjuvæntingar í krónuna
Hópslagsmál á Húsavík:
Sjómenn
slógust
LÖGREGLUMÁL Sjómönnum á
tveimur bátum lenti saman í
veislu á Húsavík og þurftu tveir
aðhlynningu að bardaganum
loknum. Talið er að sparkað hafi
verið í höfuð annars þeirra og
var hann bólginn og blár.
Einn þátttakenda dró upp hníf
og gerði sig líklegan til
slagsmála og hamagangs.
Veislugestum tókst hins vegar
að afvopna manninn áður en
hann beitti hnífnum. Þegar lög-
reglan kom á vettvang var kom-
inn friður milli manna.
Slagsmálahundunum var ekið til
skips og í heimahús. ■
Samningaviðræður við ESB:
Gætu reynst
erfiðar í kosn-
ingabaráttunni
SUNDLAUGIN Í LAUGARDAL
Að sögn lögreglunnar kemur það ekki oft
fyrir að hún sé kölluð út vegna slagsmála í
sundlaugum borgarinnar.
Æstur maður
í Laugardalslauginni:
Sló til sund-
konu sem
bar af leið
LÖGREGLUMÁL Lögreglu þurfti til að
róa niður æstan sundlaugargest í
sundlauginni í Laugardal í fyrra-
kvöld. Það sem angraði manninn
svo mikið var að kona sem var að
synda baksund fór út af stefnunni
og synti í veg fyrir manninn, sem
brást hinn versti við og reyndi að
berja konuna. Sundlaugarverðir
reyndu að róa manninn en án ár-
angurs. Kalla varð eftir aðstoð
lögreglu. ■
ALÞINGI Niðurstöður
samningaviðræðna við
Evrópusambandið um
áhrif stækkunar sam-
bandsins til austurs á
stöðu Íslands geta
komið til afgreiðslu á
síðustu dögum kosn-
ingabaráttunnar fyrir
þingkosningarnar í
maí og reynst mönnum
erfiðar viðureignar.
Þetta kom fram í
máli Halldórs Ás-
grímssonar utanríkis-
ráðherra í utandagskrárumræðu
á Alþingi. Halldór sagði það vilja
ESB að viðræðum yrði lokið fyrir
miðjan apríl, sjálfur væri hann
ekki bjartsýnn á að það tækist og
gaf til kynna að viðræðunum
kynni að ljúka skömmu fyrir
kosningar. „Það verður ekkert
sérstaklega þægilegt að taka af-
stöðu til slíks samnings nokkrum
dögum fyrir kosningar.“
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði þingmönnum að lítt
hefði verið rætt um eitt athyglis-
vert atriði. Í samningsumboði
sem Evrópusambandið hefði sam-
þykkt væri tekið fram að kröfur
um 27-földun útgjalda Íslendinga
í sjóði Evrópusambandsins í kjöl-
far stækkunar þess væru aðeins
brot af þeim kröfum sem yrðu
gerðar ef Ísland myndi sækja um
aðild. ■
STERKARI
Krónan hefur verið að styrkjast að undan-
förnu. Afgangur af utanríkisviðskiptum og
væntingar um stóriðju eru helstu skýring-
arnar á styrkingu krónunnar.
Samningar
um aðsóknar-
tengdar launa-
greiðslur í
kvikmynda-
gerð hér á
landi eru al-
gengir.
AÐSÓKN AÐ ÍSLENSKUM KVIKMYNDUM 2002
Aðsókn Aðgangseyrir
Hafið 54.000 51.1 milljónir
Maður eins og ég 20.380 19,2 milljónir
Regína 23.500 16,5 milljónir
Fálkar 4.888 3,5 milljónir
Gemsar 4.200 3,4 milljónir
Litla lirfan ljóta 7.000 2,1 milljónir
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
OG DAVÍÐ ODDSSON
Evrópusambandið tekur fram í samnings-
umboði sínu að kröfurnar í því séu að-
eins brot af því sem krafist yrði af Íslend-
ingum ef þeir væru að sækja um aðild,
sagði Davíð.
Bókhaldið rekið
ofan í Júlíus Kemp
Eftirlitsaðilar staðhæfa að rúmlega 20 þúsund manns hafi keypt sig inn á Maður eins og ég.
Framleiðandinn samdi við starfsfólk um laun eftir 20 þúsund gesti. Segir aðeins rúmlega
19 þúsund manns hafa séð myndina.
Fálkar
floppa
AÐSÓKN Nýjasta kvikmynd Frið-
riks Þórs Friðrikssona, Fálkar,
hefur hlotið óvenju slæma að-
sókn frá því myndin var frum-
sýnd í sumar. Aðeins hafa 4.888
áhorfendur séð myndina og að-
gangseyrir skilað 3,5 milljónum
króna:
„Við bundum engar sérstak-
ar vonir við innlendan markað
þegar við gerðum þessa mynd
en hún hefur á móti selst ágæt-
lega erlendis,“ segir Anna Mar-
ía Karlsdóttir hjá Íslensku kvik-
myndasamsteypunni. „Við
erum ekki sátt við þessa aðsókn
en stundum gefur og stundum
ekki. Það eina sem maður veit í
þessum bransa er að maður veit
ekki neitt,“ segir hún.
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
EIGNAST MEIRIHLUTA Í FRUM-
HERJA Óskar Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Frumherja, hefur
gert samning um kaup á nær
43% hlutafjár í fyrirtækinu. Fyr-
ir á Óskar 7,3% í Frumherja og
nær hann því meirihluta í félag-
inu við kaupin. Seljendur hluta-
fjár eru Bílgreinasambandið og
Bílaábyrgð hf.