Fréttablaðið - 14.12.2002, Page 37

Fréttablaðið - 14.12.2002, Page 37
LAUGARDAGUR 14. desember 2002 37 Tónleikar í Reykjanesbæ: Endurvakning rokkbæjarins TÓNLEIKAR Í dag verður haldin tón- leikaveisla í Reykjaneshöll í Reykjanesbæ. „Við erum að halda risatónleika í hjarta Reykjanes- bæjar,“ segir tónleikahaldarinn Ragnar Már Ragnarsson. „Þetta er mjög stór höll og er fjölnota fótboltahús.“ Meðal þeirra sem koma fram eru Írafár, Í svörtum fötum, rokkkóngurinn Rúni Júl, Hera, KK og Daysleeper. Ragnar Már, Þórarinn Ingi og Grétar Hermannsson standa fyrir framtakinu. „Við tókum þessa ákvörðun þrír félagarnir yfir kaffibolla á kaffihúsinu í Kefla- vík. Okkur fannst ekki nóg um að vera í bænum. Stærstu hljóm- sveitir landsins hafa aldrei spilað í bænum í desember, kynnt sínar plötur og áritað. Það eru allir mjög jákvæðir hér og það er mik- ill áhugi.“ Það er ósk þeirra félaga að Reykvíkingar kíki í heimsókn til Keflavíkur og eyði þar einum degi. „Það eru líka jóladagar í Keflavík þessa dagana. Ef þú eyð- ir 10.000 kr. í Reykjanesbæ þá færð þú fría gistingu á hótelinu. Hugmyndin með þessum tónleik- um er að fólk komi og geri sér glaðan dag. Þetta er líka gamli bítlabærinn og við erum að reyna að endurvekja stemninguna.“ Að sögn Ragnars verður kaffi- hús, plötuverslun og veitingahús á staðnum. Allir þeir sem leika á tónleikunum munu árita nýút- komnar plötur sínar. Tónleikarnir hefjast kl. 16 og er miðaverð 700 kr. Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 14.30 og kostar heildarpakkinn með miðanum 1.700 kr. Frítt er inn á tónleikana fyrir 12 ára og yngri. ■ ÍRAFÁR Vinsælasta popphljómsveit landsins, Írafár, tekur alla slagara sína á tónleikunum í kvöld. Jólagjöf skotveiði- mannsins í ár! Til afgreiðslu strax fyrir fimm og sjö byssur. Viðurkenndir af skotvopna- eftirliti. Öflugir skápar með vönduð- um læsingar- búnaði. Heildsöluverð aðeins kr. 39.900.- m. vsk. Varðveisla skotvopna er alvörumál. Frí heimkeyrsla í Reykjavík og á Akureyri fram að jólum. GAGNI Heildverslun Hafnarstræti 99–101, Akureyri S. 461-4025 GSM 461-4026 gagni@gagni.is www.gagni.is Visa – EURO

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.