Fréttablaðið - 07.02.2020, Side 6
Atkvæði í öldungadeild-
inni féllu þannig að 48
þingmenn vildu sakfella
Trump en 52 greiddu
atkvæði með sýknu hans.
Fjallað hefur verið ítarlega um aðbúnað verkamannanna sem unnu við breytingar á húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
REYK JAVÍK Reykjavíkurborg gaf
eftir 43,5 milljónir króna vegna
riftunar kaupsamnings við félagið
Leiguafl slhf. um íbúðir við Grens
ásveg. Samkomulag þess efnis var
samþykkt að tillögu borgarstjóra
í borgarráði í desember síðastliðn
um, en trúnaði fundarins var létt á
fundi ráðsins í gær. Leiguafl fór upp
haflega fram á 150 milljónir króna.
Í desember 2018 rifti borgin
kaupum á 24 íbúðum við Grensás
veg 12 fyrir 785 milljónir sem Skrif
stofa eigna og atvinnuþróunar, SEA,
gerði við Leiguafl. Riftunin var líkt
og samkomulagið bundin trúnaði í
tvo mánuði. SEA var lagt niður fyrir
einu ári.
Íbúðirnar áttu að vera liður í
aukningu á félagslegu húsnæði í
Reykjavík. Gert var ráð fyrir að þær
yrði tilbúnar vorið 2018. Verkfræði
stofan EFLA var fengin til að leggja
mat á stöðuna og komst að þeirri
niðurstöðu að íbúðirnar yrðu ekki
tilbúnar fyrr en meira en ári á eftir
áætlun. Var þá tekin ákvörðun um
að rifta samningnum.
Leiguaf l höfðaði mál á hendur
borginni fyrir héraðsdómi og fór
fram á greiðslu upp á 150 milljónir
króna. Borgin gerði hins vegar kröfu
um að kaupsamningsgreiðsla upp
á 78,5 milljónir yrði endurgreidd.
Með sáttinni mun Leiguafl endur
greiða 35 millljónir króna.
Fréttaskýringaþátturinn Kveikur
fjallaði um aðbúnað verkamanna
við Grensásveg 12 haustið 2018, var
þar sagt að starfsemin væri „skóla
bókardæmi um ástandið eins og
það gerist verst á íslenskum bygg
ingamarkaði“. Hátt í tíu starfsmenn
fengu laun undir lágmarkstaxta. Í
kjölfarið gaf Þórdís Lóa Þórhalls
dóttir, formaður borgarráðs, það
út að í kjölfarið yrði ákvæði um
keðjuábyrgð í öllum samningum
borgarinnar við verktaka.
Borgarráðsfulltrúar Samfylk
ingarinnar, Viðreisnar, Pírata og
Vinstri grænna, bókuðu á borgar
ráðsfundinum í desember síðast
liðnum að breið samstaða hefði
verið um f jölga íbúðum fyrir
Félagsbústaði. Vanefndir upp
byggingaraðila hafi orðið til þess að
borgin ákvað að rifta samningnum
með breiðri samstöðu. „Það er gott
að fengist hefur niðurstaða í málið
og að tekist hafi að lágmarka skaða
og kostnað borgarinnar. Eru borg
arlögmanni færðar þakkir fyrir
það,“ segir í bókuninni.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálf
stæðisf lokksins, segir meðferð
opinberra fjármuna í þessu máli
vera óábyrga. „Þarna er verið að
kaupa ekki neitt fyrir 43 milljónir,“
segir Eyþór.
arib@frettabladid.is
Gáfu eftir 43 milljónir til Leiguafls
Reykjavíkurborg tapaði 43 milljónum króna vegna riftunar á samningi við Leiguafl um íbúðir á Grensásvegi. Leiguafl greiddi 35
milljónir af 78,5 milljóna kröfu. Samkomulag um niðurstöðuna var bundið trúnaði en honum aflétt á fundi borgarráðs í gær.
Þarna er verið að
kaupa ekki neitt
fyrir 43 milljónir.
Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
í Reykjavík
Við hjálpum þér að velja
rétta tækið fyrir þig
BANDARÍKIN Donald Trump Banda
ríkjaforseti réðst harkalega að pólit
ískum andstæðingum sínum í ræðu
í gær þar sem hann fagnaði því að
öldungadeildin sýknaði hann af
ákærum um embættisafglöp.
Hann veifaði forsíðu Washington
Post þar sem stóð „Trump sýknað
ur“ og sagðist viðurkenna að hafa
haft rangt við í lífinu en þetta væri
niðurstaðan. Atkvæði voru greidd
í öldungadeildinni á miðvikudags
kvöld að íslenskum tíma. Þar vildu
48 þingmenn sakfella forsetann en
52 sýkna.
Til þess að missa embætti sitt
hefðu tveir þriðju öldungadeildar
þingmanna þurft að samþykkja
sakfellingu. Atkvæði féllu eftir
f lokkslínum fyrir utan að repúblik
aninn Mitt Romney greiddi atkvæði
með sakfellingu.
Tr ump gag nr ý ndi Romney,
sem var forsetaefni Repúblikana
f lokksins 2012, harðlega í gær.
Romney, sem er mormóni, sagðist
hafa kosið eftir sannfæringu sinni
og vísaði í eið fyrir guði.
„Mér líkar ekki við fólk sem notar
trú sína sem réttlætingu fyrir að
gera það sem það veit að er rangt,“
sagði Trump. Var þessum orðum
einnig beint að Nancy Pelosi, forseta
fulltrúadeildar þingsins. Hún hefur
sagt að hún hati Trump ekki og biðji
fyrir honum.
Pelosi sagði Trump hins vegar
þarna vera farinn að tala um hluti
sem hann viti lítið um, trú og bænir.
Jonathan Turley, sérfræðingur í
lögum sem hefur gagnrýnt ákæru
ferlið og repúblikanar ítrekað vitn
aði í, var ekki sáttur við viðbrögð
Trumps. Hann sagði á Twitter að
forsetinn hafi greinilega hlustað á
ráðgjafa sína og sleppt því að fara
sigurhring. Hins vegar hefði hann
ákveðið að fara sigurmaraþon.
Vinsældir Trump hafa haldist
nokkuð stöðugar í gegnum ákæru
ferlið. Í nýjustu mælingu Gallup
mælist ánægja með störf hans hins
vegar 49 prósent og hefur ekki verið
meiri í forsetatíð hans. Þá telja 63
prósent hann standa sig vel í efna
hagsmálum. – sar
Donald Trump vígreifur eftir sýknu
Donald Trump veifaði forsíðu Washington Post á fundi með fréttamönnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð