Fréttablaðið - 07.02.2020, Page 36
VIÐ ERUM
NÁTTÚRLEGA
VANDRÆÐALEGA
SAMMÁLA AÐ
ÞESSU SINNI.
-Þórarinn
ÞAÐ ER EKKI
SKRÝTIÐ AÐ VIÐ
SKULUM VERA
SAMMÁLA. VIÐ
HÖFUM SVO
GÓÐAN SMEKK!
- Kolbrún
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn@frettabladid.is Besti leikstjóri
Martin Scorsese The Irishman
Todd Phillips Joker
Sam Mendes 1917
Bong Joon Ho Parasite
Quentin Tarantino Once upon a Time...
Besta myndin
1917
Ford v Ferrari
The Irishman
Jojo Rabbit
Joker
Little Women
Marriage Story
Once upon a Time in Hollywood
Parasite
Kolbrún: Ég á afar erfitt með að
gera upp á milli 1917 og Once
Upon a Time in Hollywood. Ég er
eins langt frá því að vera Tarantino
aðdáandi og hægt er að vera,
en ég kolféll fyrir þessari mynd.
Hún er óskaplega skemmtileg,
hugmyndarík, fyndin og full af
óvæntum atvikum – og endar á
nánast snilldarlegan hátt. Gef
henni atkvæði mitt en held að
1917 vinni, enda mögnuð mynd
sem gleymist ekki svo glatt.
Kolbrún: Þarna held ég að Sam
Mendes muni vinna – og hann á
að vinna.
Þórarinn: Ég er eins mikill Tarant-
ino-aðdáandi og hugsast getur en
held ekki að Once Upon a Time in
Hollywood verði Trjóuhesturinn
sem kemur honum inn fyrir
skjaldborg Akademíunnar. Þessi
dásamlegi óður hans til Holly-
wood er líka ekki hans besta verk.
1917 er ekki endilega heldur besta
myndin í þessu úrtaki en hún er
ekta Óskarsverðlaunamynd af
gamla skólanum og ég geng út frá
þeirri kenningu minni að hún muni
falla í Ben Húr-flokkinn og hirða öll
helstu verðlaunin sem hún er til-
nefnd til. Gangi þetta eftir verðum
við Íslendingar að taka með í
reikninginn og búa okkur undir
að 1917 hirði tónlistarverðlaunin
með í þeirri kippu þótt Hildur sé
auðvitað í raun og veru með bestu
tónlistina þetta árið.
Þórarinn: Þótt The Irishman sé
helvíti góð þá jafnast hún ekki á
við það allra besta sem Scorsese
hefur gert á ferlinum og rugluð
akademían kaus að sniðganga
þannig að það væri alveg dæmi-
gert fyrir hallærislegheitin í
kringum þessi verðlaun að þeim
verði skutlað í þann gamla fyrir
The Irishman, Annars er ég sam-
mála Kollu og held að Mendes fái
þetta. Óhjákvæmilega og verð-
skuldað.
Enginn veit…
… hverjir munu standa uppi með
gylltan Óskarinn í höndunum
fyrr en á sunnudagskvöld. Sér-
fræðingar Fréttablaðsins ganga
vitaskuld að því sem gefnu að
Hildur Guðnadóttir hljóti styttu
fyrir tónlistina í Joker og eru
óvenju sammála um hvert stytt-
urnar í mikilvægustu flokkunum
munu rata þetta árið.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ