Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 8

Fréttablaðið - 05.12.2019, Page 8
Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2035 Opnunartímar: Virka daga 9-18 Laugardaga 12-16 Klikkuð Black Friday tilboðtil 07. desember CHEVROLET SPARK IT Nýskráður: 2015 / Bensín Beinskiptur / Ekinn: 127.000 km. Verð: 790.000 kr. Black Friday tilboð 590.000 kr. Rað.nr. 590402 -200.000 Rað.nr. 103715 PEUGEOT 3008 Nýskráður: 2012 / Dísel Sjálfskiptur / Ekinn: 103.000 km. Verð:1.690.000 kr. Black Friday tilboð 990.000 kr. -700.000Rað.nr. 445339 FORD FIESTA TREND Nýskráður: 2012 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 112.000 km. Verð: 1.250.000 kr. Black Friday tilboð 790.000 kr. -460.000Rað.nr. 740457 TOYTA C-HR HYBRID Nýskráður: 2018 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 49.000 km. Verð: 3.490.000 kr. Black Friday tilboð 3.190.000 kr. -300.000 OPEL CORSA ENJOY Nýskráður: 2015 / Bensín Sjálfskiptur / Ekinn: 115.000 km. Verð: 1.190.000 kr. Black Friday tilboð 890.000 kr. Rað.nr. 590393 -300.000 B irt m eð fyrirvara um m ynda- og textabrengl. Smelltu á notadir.benni.is Lesskilningur Stærðfræði Náttúruvísindi Allir 474 495 475 Stúlkur 494 500 479 Drengir 454 490 471 Innflytjendur 407 447 420 Reykjavík 489 509 488 Nágrenni Reykjavíkur 482 503 483 Suðurnes 440 463 443 Vesturland 450 473 450 Vestfirðir 454 468 454 Norðurland vestra 467 484 469 Norðurland eystra 452 479 456 Austurland 471 480 465 Suðurland 467 490 470 ✿ Árangur mismunandi hópa í PISA MENNTAMÁL „Skólastjórnendur og við öll sem komum að þessum málum deilum án efa áhyggjum af þessum niðurstöðum. Þetta er ekki það sem við hefðum viljað sjá. Ef við horfum til baka þá höfum við ekki í töluvert mörg ár verið á þeirri leið sem við hefðum viljað í niðurstöðum PISA,“ segir Þorsteinn Sæberg, formaður Skólastjórafélags Íslands. Niðurstöður PISA-könnunar- innar voru kynntar í fyrradag. Árangur íslenskra nemenda þegar kemur að lesskilningi versnar frá síðustu könnun og er undir meðal- tali OECD-ríkja. Árangurinn í nátt- úruvísindum reyndist svipaður og síðast en batnar aðeins í stærð- fræði. Þorsteinn segir það ekkert laun- ungarmál að horfa þurfi inn á við og velta því upp hvað af því sem hafi verið gert sé ekki að virka og hvað þurfi að gera. Hann bendir á að eftir síðustu könnun hafi verið lögð sérstök áhersla á lesskilning en það hafi enn ekki skilað sér í betri niðurstöðum. „Vissulega, og gerum ekki lítið úr því, erum við að ná betri árangri í stærðfræði. En ég vil leyfa mér að fullyrða að frá síðustu PISA-könn- un höfum við lagt meiri áherslu á íslensku en stærðfræði. Þann- ig að í raun og veru undirstrikar þessi útkoma í mínum huga að við höfum ekki verið á réttri leið,“ segir Þorsteinn. Frá árinu 2009 hefur árangur íslenskra nemenda í lesskilnings- hluta PISA-könnunarinnar farið versnandi. „Við höfum ekki verið að ná þeim árangri sem við höfum verið að vinna að og erum að mínu viti langt frá því. Við vorum jafn- vel betur sett í kringum aldamótin en við erum í dag. Það er alvarlegt,“ segir Þorsteinn. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur boðað ýmsar aðgerðir til að bregð- ast við niðurstöðum PISA. Þor- steinn segir að ráðherrann hafi dregið upp nýjar nálganir og vilji greinilega kafa dýpra í málin. „Það er eitthvað sem við verðum að gera því við getum ekki farið sömu gömlu leiðina aftur. Hún er ekki rétt,“ segir Þorsteinn. Hann segir umræðuna oft snúast of mikið um það sem skólakerfið geti gert til að laga niðurstöður PISA. „Við verðum að átta okkur á því að PISA er að prófa miklu meira en skólakerfið nær utan um að sinna hvað varðar börnin okkar. PISA er vissulega að mæla skólastarf en líka málsamfélag. PISA er til dæmis að prófa lesskilning á því sem er að gerast í samfélagi dagsins í dag.“ Þannig fjalli hluti könnunarinn- ar um loftslagsmál og svo virðist sem íslenskir nemendur hafi ekki nægilegan skilning á þeim orðum sem þar eru notuð. Hægt sé að velta því upp hvort þarna séu orð og hug- tök sem nemendur eigi að kynnast í skólanum eða í umræðum heima hjá sér. „Svo gegna fjölmiðlar lykilhlut- verki í því að börnin kynnist sam- tímaorðum, til dæmis um lofts- lagsmál, endurnýtingu, pólitík og samfélag. Stór breyta í þessu er kannski sú að börnin fylgjast ekki með fréttum.“ Í skýrslu Menntamálastofnunar um niðurstöður PISA er dregið fram að hlutfall nemenda sem lesa dagblöð hefur dregist gríðar- lega saman frá árinu 2009. Þannig sagðist 61 prósent nemenda lesa dagblöð nokkrum sinnum í viku 2009 en það hlutfall er komið niður í tíu prósent. Þeim sem aldrei eða næstum aldrei lesa dagblöð fjölgar úr fimm prósentum í 39 prósent. „Fjölmiðlarnir á Íslandi eru frá- bærir. Þeir eru á hverjum degi að fjalla um ótrúlega mikilvæg mál samtímans en börnin eru ekki að hlusta á það eða lesa það. Þarna verða foreldrar með einum eða öðrum hætti að beina börnum sínum inn á þær brautir að fylgjast með. Við lifum ekki í gamla sveita- samfélaginu þar sem rætt er við eldhúsborðið um það sem gerðist í samfélaginu í dag,“ segir Þorsteinn. Það sé einlæg ósk hans að umræðan í kjölfar PISA fari í þá átt að velta því upp hvað allt samfélag- ið geti gert. Fjölmiðlar, skólarnir, heimilin og ráðamenn þurfi að vinna saman að því að ef la börnin okkar í víðtækum orðaskilningi. „Við Íslendingar höfum gott af því að sjá hvar við stöndum í sam- félagi þjóðanna. Við þurfum hins vegar núna að hysja upp um okkur buxurnar og spyrja okkur þessarar víðtæku spurningar: Hvað getum við öll gert í samfélaginu til að breyta niðurstöðunni?“ sighvatur@frettabladid.is Samfélagið þurfi að bregðast við PISA Stytting grunnskóla gæti verið lausnin „Sumir, sérstaklega kannski kennarar, gagnrýna PISA og segja að þetta sé ekki full- kominn mælikvarði. Það eru allir helstu sérfræðingar heims sem koma að því að þróa þessa könnun. Þetta er ekki fullkomið en þetta er langbesti ef ekki eini mælikvarðinn sem við höfum og við verðum að taka mark á þessu,“ segir Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnis- hæfnisviðs Samtaka atvinnu- lífsins (SA). SA kynntu í byrjun nóvem- ber áherslur sínar þar sem níu leiðir til að bæta námsárangur voru kynntar. Þær snúast meðal annars um aukna áherslu á lestur, stærðfræði og vísindi og því að hlúa sérstaklega að drengjum, börnum innflytjenda og afburðanemendum. Davíð segir hins vegar að mikilvægasta atriðið snúist um styttingu grunnskólans. „Það er engin leið að fullyrða hvers vegna okkur gengur svona illa en mér finnst langlíklegast að lausnin á þessu sé stytting námstímans.“ Grunnskólinn á Íslandi sé langur en ekki sé verið að kenna meira í sjálfu sér heldur sé náminu dreift yfir lengri tíma. „Ísland er svolítið sér á báti þegar kemur að lengd sumar- frísins. Rannsóknir sýna að það hefur slæm áhrif á námsárangur að hafa löng sumarfrí.“ Í áherslum SA í menntamálum er það dregið fram að kostnað- ur við grunnskóla sem hlutfall af landsframleiðslu sé hæstur á Íslandi meðal þróaðra ríkja. „Við erum að setja meira fé í grunnskóla sem hlutfall af landsframleiðslu en nokkurt annað land. Það gæti verið vegna þess að grunnskólinn er lengri hér en annars staðar. Það blasir við að það er ekki að skila sér í árangri heldur eiginlega þvert á móti.“ Formaður Skólastjóra­ félags Íslands segir niðurstöður PISA­ könnunarinnar sýna að fara þurfi nýjar leiðir í menntakerfinu. Allt samfélagið þurfi að vinna saman að því að efla lesskilning íslenskra barna. Um­ ræðan snúist of mikið um skólakerfið. Ísland er svolítið sér á báti þegar kemur að lengd sumar- frísins. Davíð Þor- láksson Formaður Skólastjórafélags Íslands segir PISA mæla fleira en bara sjálft skólastarfið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.