Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 15
Högnhöfði er tignarlegt fjall norður af Brekkuskógi í Biskupstungum en nafnið vekur ekki síður athygli en brattar brekkurnar. Ýmsar kenn-ingar eru um nafngiftina en fjallið minnir óneitanlega á kött sem leggst á framfæturna og má með góðum vilja sjá glitta í kattareyru efst. En það hafa verið fleiri kenningar um nafngiftina, til dæmis táknar orðið hogn á nýnorsku hvassan fjallshrygg og áður var högn notað á íslensku um staði sem skera sig úr í landslagi. Kisukenn- ingin er þó skemmtilegri og þegar gengið er á fjallið er gaman að ímynda sér risakött sem horfir í átt að Brekkuskógi. Nágrenni Högnhöfða er ekki síður spennandi en fjallið sjálft og útsýni af tindinum er af dýrari gerðinni. Vestur af fjallinu er Rótasandur en þar á Brúará upptök sín áður en hún steypist niður hrikaleg gljúfur, Brúarárskörð, og síðan áfram suður að Brekkuskógi. Þarna hefst fjallahringur sem nánast umlykur Högnhöfða með Rauðafelli, Skriðu og Skjaldbreið í broddi fylkingar en líka Fanntófelli, Þórisjökli, Geitlandsjökli og píramídalaga Klakk í Langjökli. Mest áberandi eru þó tveir nágrannar í norðri, stapinn Hlöðufell (1.188 m) sem óneitanlega minnir á Herðubreið, og torkleifir Kálfstindar (846 m). Í austri sést síðan vel til Heklu og sunnar í Tind- fjöll, Eyjafjallajökul og Vestmannaeyjar. Það er auðvelt að ganga á Högnhöfða þótt sumar brekkurnar séu nokkuð brattar og lausar í sér. Því er skynsamlegt að hafa meðferðis göngustafi og í vetrar- ferðum mannbrodda og ísöxi. Skammt frá Brekku- skógi er bærinn Úthlíð en þaðan er hægt að aka inn að Högnhöfða. Tilvalið er að leggja bílum og hefja gönguna við mynni Brúarárskarða við fallegt tjald- stæði á svokölluðum Höfðaflötum. Fyrst er gengið upp birkivaxnar hlíðar og síðan áfram meðfram gljúfurbörmum Skarðanna. Smám saman er komið að stórfenglegri fossaröð og steypast sumir þeirra beint út úr gljúfurveggnum. Aðeins ofar er Strokkur (517 m), lágvaxið fjall sem ber nafn með rentu, en áður en komið er að honum er sveigt til norðurs upp suðurbrekkur Högnhöfða. Þar tekur við slétta að sjálfum tindinum. Hægt er að halda sömu leið til baka eða velja eystri leið niður að bílastæðinu. Þetta er 14 km ganga fram og til baka en sprækt göngu- fólk getur lengt gönguna talsvert með því að hefja hana í Brekku- eða Miðhúsaskógi. Að sumri til er einnig hægt að hefja gönguna af Rótasandi en þangað má komast á fjórhjóladrifnum bifreiðum frá Laugarvatni. Lúrir köttur Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Högnhöfði líkist liggjandi ketti. Í fjarska sést í Þóris- jökul, Hlöðu- fell, Langjökul og Kálfstinda. MYNDIR/ÓMB Af Högnhöfða er gríðarlegt útsýni. Hér er horft til suðurs og sést alla leið til Vestmannaeyja. Horft til vesturs með Högnhöfða í forgrunni. Í baksýn sést í Skriðu, Botns- súlur og sjálfan Skjaldbreið. 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.