Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 23
FÓTBOLTI Cloé Lacasse ákvað að taka nýja áskorun á ferli sínum um mitt síðasta sumar en eftir að hafa skorað 63 mörk í þeim 92 leikjum sem hún spilaði með ÍBV á fjórum keppnistímabilum og orðið bikar- meistari einu sinni með liðinu gekk hún til liðs við portúgalska stórliðið Benfica. Cloé segir upplifun sína af Portúgal hafa verið mjög jákvæða bæði innan vallar sem utan. Það haf i hins vegar tekið tíma að aðlagast leikstíl sem hún var ekki vön með Vestmannaeyjaliðinu. „Það eru allar aðstæður hér eins og best verður á kosið. Æfingasvæð- ið, líkamsræktaraðstaðan og bún- ingsklefinn eru eins og best verður á kosið. Þetta eru klárlega bestu leik- menn sem ég hef æft og spilað með á ferlinum og aðstaðan í takt við það. Það tók mig smá tíma að venjast tempóinu og öðruvísi leikstíl en ég vandist í Vestmannaeyjum,“ segir Cloé í samtali við Fréttablaðið en hún hefur skorað 13 mörk í þeim níu deildarleikjum sem hún hefur spilað fyrir portúgalska liðið. „Uppistaðan í liðinu eru teknískir og snöggir leikmenn frá Portúgal og Brasilíu og það er lagt upp með stuttum sendingum þar sem spilað er á þröngu svæði. Ég er vön því að rekja boltann mikið, reyna að leika á andstæðinginn og ógna með hlaupum mínum á bak við varnar- línu andstæðinganna. Það tók bæði tíma fyrir mig að venjast liðsfélög- um mínum og þá að læra inn á að nýta styrkleika mína. Það kom hins vegar fljótt og við tengdum fljótlega vel saman,“ segir þessi mikli marka- skorari. „Ég hef spilað lungann úr öllum níu deildarleikjunum á tímabilinu en ég er að spila mest sem vinstri vængmaður í þriggja manna fram- línu. Það hentar mér vel og það er gaman að spila í liði þar sem margir leikmenn geta ógnað með tækni, krafti og hraða. Þegar ég spilaði með ÍBV var lögð mikil áhersla á að stoppa mig og ég var oft með tvo leikmenn sem höfðu það sem hlut- verk að halda mér í skefjum. Hérna er það hins vegar ekki möguleiki þar sem við erum með svo mörg öf lug sóknarvopn,“ segir hún um fyrstu mánuðina hjá nýju liði. Mun skoða sín mál með opnum huga næsta vor „Portúgalska efsta deildin er eins og margar aðrar kvennadeildir þar sem þrjú lið eru í sérflokki í toppbarátt- unni. Við erum á toppnum eins og sakir standa en erum í harðri bar- áttu við Sporting CP og Braga. Við eigum leik við Braga um komandi helgi og getum náð sex stiga forskoti á það lið með sigri í þeim leik. Við höfðum betur gegn Sporting CP á dögunum og myndum senda sterk skilaboð í baráttunni um titilinn með því að leggja Braga að velli,“ segir Cloé um næstu leiki liðsins en Benfica er taplaust á toppnum og Sporting CP og Braga koma þar á eftir með 24 stig hvort lið. „Ég gerði tveggja ára samning þegar ég kom hingað og mér líður vel hérna þannig að ég er ekkert að hugsa mér til hreyfings. Ég mun hins vegar kanna mína möguleika og taka stöðuna þegar tímabilinu lýkur hér í lok maí á næsta ári. Það kemur ekki til greina að spila á Íslandi næsta sumar þar sem ég ætla að taka mér frí eftir langa törn og koma inn á undirbúningstíma- bil í kjölfarið. Það þarf hins vegar mjög spennandi tilboð til þess að toga mig frá Benfica,“ segir sóknar- maðurinn um framhaldið hjá sér. Cloé fékk fyrr á þessu ári íslensk- an ríkisborgararétt en hún er ekki enn kominn með keppnisleyfi hjá UEFA og FIFA og er því ekki lögleg með íslenska landsliðinu. Hún seg- ist hins vegar vera meira en klár í að spila með íslenska liðinu verði þess óskað í framtíðinni. „Þetta er bara í ákveðnu form- legu ferli og ekkert sem ég get gert til þess að hraða því. Ég er bara að hugsa um minn feril með félagslið- inu mínu núna og þetta er mér ekki efst í huga þessar vikurnar. Þegar að því kemur að UEFA og FIFA klára pappírsvinnuna mun ég skoða það með jákvæðum huga verði ég valin í landsliðshópinn. Ég hef hins vegar ekkert rætt við Jón Þór [Hauksson, þjálfara íslenska landsliðsins] um þessi mál og fram að því að þetta er raunverulegur möguleiki er ein- beitingin á að standa mig vel hjá Benfica,“ segir kanadíski Íslend- ingurinn. hjorvaro@frettabladid.is Bestu aðstæður sem ég hef upplifað Framherjinn Cloé Lacasse söðlaði um og fór frá Vestmannaeyjum þar sem hún hafði leikið með ÍBV í fjögur ár og gekk til liðs við Ben- fica í sumar. Cloé segir það hafa tekið tíma að aðlagast breyttum leikstíl en að hún sé í bestu aðstæðum sem hún hafi æft og spilað í. Cloé fagnar marki með liðsfélögum sínum hjá Benfica en hún hefur skorað þrettán mörk í níu deildarleikjum á sinni fyrstu leiktíð hjá liðinu. MYND/BENFICA Við erum á toppn- um eins og sakir standa en erum í harðri baráttu við Sporting CP og Braga um titilinn. GOLF Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir sem leikur fyrir hönd Golfklúbbsins Leynis keppir í dag á lokamóti tímabilsins á Evrópu- mótaröð kvenna í golfi sem fer fram í Kenýa. Valdís sem fagnaði þrí- tugsafmæli í gær er að ljúka þriðja ári sínu á Evrópumótaröðinni sem er næststerkasta mótaröð heims en þarf á góðri spilamennsku að halda til að tryggja sér fullan þátt- tökurétt fyrir næsta tímabil. Fyrir mótið er Valdís í 71. sæti á stigalista mótaraðarinnar, Order of Merit, en 70 efstu kylfingarnir halda fullum þátttökurétti. Annars gæti Valdís þurft að endurnýja þátttökuréttinn í gegnum úrtökumótin. „Það er erfitt að segja hvort maður finni fyrir meiri pressu í ljósi stöðunnar. Ég einblíni bara á að spila vel hérna í Kenýa og reyni að líta á þetta eins og hvert annað mót. Það er afskaplega fallegt umhverfi hérna, völlurinn er flottur og hugar- farið er á réttum stað. Auðvitað er ég ákveðin í að endurnýja keppnis- réttinn,“ segir Valdís í samtali við Fréttablaðið, aðspurð hvernig hugarfarið sé fyrir lokamótið. Þetta er í fyrsta sinn sem móta- röðin fer til Kenýa og eru f lestir af bestu kylfingum mótaraðarinnar mættir á Baobab-völlinn sem er fyrir norðan Mombasa, næstfjöl- mennustu borg Kenýa. Valdís hefur tvívegis lent í þriðja sæti á þessari sterku mótaröð en komst næst því að vinna mót fyrr á þessu ári þegar hún leiddi mót í Ástralíu þegar mótið var hálfnað, þrátt fyrir að glíma við bakmeiðsli . „Tímabilið hefur verið kaf la- skipt. Besti árangurinn kom í Ástr- alíu þar sem ég lenti í fimmta sæti í móti þar sem verðlaunaféð var því miður ekki hátt. Þegar líða tók á árið lék ég betur og vonandi tekst manni að enda þetta á jákvæðum nótum,“ segir Valdís. Skagamærin segist enn vera að glíma við meiðsli í baki en er búin að læra hvernig hún getur tekist á við þau og reynt að fyrirbyggja að álag komi á bakið. „Meiðslin eru enn til staðar en ég er búin að læra hvað hjálpar til að halda þeim í skefjum. Ég mun alltaf finna fyrir meiðslunum en okkur tókst í vor að finna út hvað hjálpaði til og hvað ætti að forðast þegar kæmi að bakinu.“ – kpt Hefur tekist að halda meiðslunum í skefjum Ég einblíni bara á að spila vel hérna í Kenýa og reyni að líta á þetta eins og hvert annað mót. Valdís vippar hér inn á flötina á móti í Skotlandi. NORDICPHOTOS/GETTY 5 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.