Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 9. tbl. 22. árg. 27. febrúar 2019 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
Gildir alla daga
frá 11–16
ef þú sækir
1.000 KR.
Lítil pizza af matseðli
0,5 lítra gos
1.500 KR.
Pizza af matseðli, miðstærð
0,5 lítra gos
Landnámssetrið
Borgarnesi
sími 437-1600
Ný sýning á Söguloftinu
Njálssaga Bjarna Harðar
Frumsýning
laugardaginn 2. mars kl. 20:00
Næsta sýning
sunnudaginn 3. mars kl. 16:00
Nánar um dagskrá og miðasala á
landnam.is/vidburdir
NOKKUR SÆTI LAUS
Verður 7. mars í:
FVA Kl. 10–11:30
Kynning á öllu
háskólanámi á Íslandi
Allir velkomnir!
Mjög hásjávað var undan suður- og vesturströnd landsins fyrir síðustu helgi
og ölduðhæð var sömuleiðis óvenjumikil út af vestur- og suðurströndinni.
Ástæðan var há sjávarstaða og djúp lægð vestur af landinu. Íbúar á Vestur-
landi urðu varir við óvenju háa stöðu sjávar strax á fimmtudagsmorgun. Þá
gekk sjór á land í Stykkishólmi og var engu líkara en bátarnir í höfninni
stæðu á kæjanum en lægju ekki bundnir við bryggju. Sjávarstaðan var svo
há að landgangurinn út á eina flotbryggjuna hallaði í öfuga átt. Sumarliði
Ásgeirsson, tíðindamaður Skessuhorns í Stykkishólmi, sagði Hólmara ekki
muna eftir öðru eins.
Sama morgun var gamla trébryggjan í Rifshöfn til að mynda komin í kaf,
en flóðið þar mældist í 4,5 metra laust eftir kl. 8:00 á fimmtudagsmorgun.
Þá flæddi yfir göngustíginn að Kirkjufellsfossi í Grundarfirði á háflóði á
föstudagsmorgun, eins og sagt er frá í annarri frétt hér að neðan.
kgk
Var engu líkara en að bátarnir í
Stykkishólmshöfn stæðu á kæjanum.
Ljósm. sá.
Sjór gekk á land
Sjávarstaða var mjög há í síðustu
viku og stórstreymt við strend-
ur sunnan- og vestanlands. Ferða-
menn sem hugðust ganga að
Kirkjufellsfossi við Grundarfjörð á
föstudaginn þurftu að leggja lykkju
á leið sína til að komast að fossin-
um þar sem gönguleiðin var ófær
um morguninn á meðan háflóð var.
Önnur myndun sem fylgir var tekin
klukkan hálf níu um morguninn en
hin klukkan hálf tvö eftir hádegi en
þá þurftu ferðamenn að skáskjóta
sér á milli strandaðra ísjaka úr lón-
inu til að komast leiðar sinnar.
Hvort sem var á flóði eða fjöru leit
skiltið með áletruninni „No camp-
ing“ nokkuð skoplega út, því gæði
tjaldsvæðis voru hvort sem var á
flóði eða fjöru undir miðlungi gott.
tfk
Stórstreymt við Kirkjufellsfoss