Skessuhorn


Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 18

Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 201918 Körfuknattleiksfélag Akraness í samvinnu við Theater Mogul, stendur fyrir sýningu á hinni geysi- vinsælu sýningu Hellisbúanum í Tónbergi á Akranesi föstudaginn 8. mars næstkomandi. Um er að ræða fjáröflun fyrir 7.-9. flokk drengja hjá ÍA. Mun allur ágóðinn af miða- sölu sýningarinnar renna til æf- ingaferðar körfuknattleiksdrengj- anna til Spánar. Hellisbúinn er einn vinsælasti einleikur heims og hefur verið sýnd- ur í meira eitt þúsund borgum í 52 löndum heimsins. Það er Jóel Sæ- mundsson sem færir Hellisbúanum nýtt líf í nýrri útfærslu hans og leik- stjórans Emmu Peirson, en sýning- in hefur verið endurskrifuð að fullu og uppfærð. Miðasala á sýninguna á Akranesi fer fram í Hár-Stúdíói við Stillholt 16-18. Miðaverð er kr. 4.000 og ágóðinn rennur sem fyrr segir til æfingaferðar ungra og upp- rennandi körfuknattleiksdrengja á Akranesi. kgk Hellisbúinn verður sýndur á Akranesi í næstu viku Fjáröflun fyrir æfingaferð körfuknattleiksdrengja hjá ÍA Kvenfélagið Gleym mér ei kom fær- andi hendi í Grunnskóla Grundar- fjarðar á dögunum þegar konurnar færðu skólanum tíu taflsett að gjöf fyrir nemendur. Það var Ein- ar Þór Jóhannsson kennari sem tók við gjöfinni fyrir hönd skólans en þær Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir, Helga María Jóhannsdóttir, Dag- björt Lína Kristjánsdóttir og Bryn- dís Theodórsdóttir afhentu gjöfina. Nú geta nemendur teflt við hvern annan en mikil gróska er í tafl- mennsku innan skólans. tfk Kvenfélagið Gleym mér ei gefur gjafir Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms frumsýndi síðastliðið föstudagskvöld gamanleikinn Full- komið brúðkaup eftir Robin Haw- don í þýðingu Arnar Árnasonar. Sýnt er í félagsheimilinu Lyng- brekku. Verkið er eftir sama höf- und og skrifaði leikgerðina á Sex í sveit sem er ein fjölsóttasta sýn- ing hér á landi frá upphafi. Verkið Fullkomið brúðkaup var fyrst fært á fjalirnar í Menningarhúsinu Hofi 2005 og naut mikilla vinsælda. Það hefur síðan verið sýnt í Borgarleik- húsinu og víðar um land. Leikstjóri hjá Umf. Skallagrími er Guðmund- ur Lúðvík Þorvaldsson. Óhætt er að segja að verkið byggi á misskilningi allt frá fyrsta augna- bliki og til söguloka. Hér er á ferð- inni rómantískur gamanleikur; hraður, stappfullur af misskilningi, lygi, framhjáhaldi og ást. Sagt er frá ungu fólki og atburðum í lífi þess á hóteli nokkrum tímum fyrir brúð- kaup. Að morgni vaknar brúðgum- inn með konu sér við hlið. Konu sem hann minnist ekki að hafa séð fyrr. Spuninn byggist síðan á að komast að því hvað raunverulega gerðist nóttina fyrir brúðkaupið og hylja hina sönnu atburðarás. Hlutverkin í sýningunni eru sex talsins. Þau eru í höndum Hákonar M Magnússonar, Jónasar Þorkels- sonar, Svanhvítar Pétursdóttur, Ásu Dóru Garðarsdóttur, Aðalbjargar Þórólfsdóttur og Ágústs Þorkels- sonar. Almennt miðaverð er 3000 kr, eldri borgarar og öryrkjar greiða 2500 kr en börn yngri en 12 ára 2000 kr. Miðapantanir eru í síma 846-2293 eða á leikdeildskalla@ gmail.com. Alls eru skipulagðar ellefu sýn- ingar á verkinu og verða þær næstu 28. febrúar, 1. mars, 3. mars og 8. mars. mm Sýna Fullkomið brúðkaup í Lyngbrekku Leikarar ásamt leikstjóra í Fullkomnu brúðkaupi. Leikdeild Umf. Stafholtstungna í Borgarfirði hefur að undanförnu æft leik- og söngverkið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egils- dóttur. Sýnt verður í félagsheim- ilinu Þinghamri. Verkið er barna- og fjölskylduleikrit sem gerist á ruslahaug þar sem Rympa býr ásamt honum Volta sínum. Óhætt er að segja að Rympa sé persónu- gervingur óæskilegs félagsskapar og finnst henni hrekkir og þjófn- aðir lítið mál og raunar hin mesta skemmtun. En þegar allt kemur til alls er Rympa umkomulaus stúlka sem fæstir vilja vita af. Kvöld eitt koma svo á ruslahauginn pers- ónur sem sennilegast flokkast sem meira „venjulegar“ og fjallar verk- ið um samskipti Rympu við þær. Með hlutverk Rympu fer Sigur- laug Kjartansdóttir á Hamraend- um sem áður hefur getið sér gott orð á leiksviðinu í Þinghamri. Að sögn Erlu Gunnlaugsdótt- ur, gjaldkera í leikdeild félagsins, var leitað til Þrastar Guðbjarts- sonar um að leikstýra verkinu, en hann hefur áður starfað með fé- laginu við uppfærslu leikrita, síð- ast árið 2014. „Nú auglýstum við eftir áhugasömum leikurum og svo ánægjulega vildi til að nokkr- ir krakkar úr Grunnskóla Borgar- fjarðar á Varmalandi lýstu áhuga á að taka þátt. Það var svo í ljósi þessa áhuga unga fólksins sem Þröstur stakk upp á að fært yrði á fjalirnar verkið um Rympu. Þau eru því um helmingur leikhópsins sem alls telur þrettán auk annarra verkefna baksviðs,“ segir Erla. Hafsteinn Þórisson var fenginn til að vera tónlistarstjóri í verkinu og stýra bæði einsöng og hópsöng. Erla segir að æfingar hafi geng- ið vel allt frá því þær hófust um miðjan janúar og nú er stefnt að frumsýningu sunnudaginn 3. mars. „Það er mikið sungið í þessu verki, allt lög og textar eftir Her- dísi. Við eigum svo von á höfund- inum á frumsýningu til okkar og mikil tilhlökkun er farin að byggj- ast upp í hópnum þegar líður að frumsýningu,“ segir Erla Gunn- laugsdóttir. mm/ Ljósm. Elisabeth Ýr Egils- dóttir Mosbech Rympa á ruslahaugnum frumsýnd í Þinghamri

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.