Skessuhorn


Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 17 SK ES SU H O R N 2 01 9 Auglýsing um skipulag - Akraneskaupstaður Bæjarstjórn Akraness samþykkti 12. febrúar 2019 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 - Flóahverfi, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst breyting á deiliskipulagi. Breytingin felst m.a. í að landnotkunarreitur A11 er stækkaður um 3,5 ha. Gróðurbeltum er breytt til samræmis, sýndar eru tengingar svæðisins við megingatnakerfi og tenging við iðnaðar- svæði I15. Flutningslína raforku, jarðstrengur, er sýnd norðan Akrafjallsvegar og austan Flóahverfis að sveitarfélagamörkum. Breyting á deiliskipulagi Flóahverfis skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að gatnakerfið er stækkað, lóðastærðum breytt og lóðum fjölgað. Stígar umhverfis svæðið og gróðurbelti sýnd til leiðsagnar. Nýtingarhlutfalli lóða er breytt. Bæjarstjórn Akraness samþykkti 11. desember 2018 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 - Smiðjuvellir, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst breyting á deiliskipulagi Smiðjuvalla. Breyting á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 – Smiðjuvellir skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst m.a. í að landnotkunarreitir A9 og A10 eru sameinaðir í reit A8 og skipulagsákvæðum breytt, gert er ráð fyrir blandaðri landnotkun. Svæði I6 fyrir aðveitustöð rafveitu er fært til austurs í samræmi við orðinn hlut. Svæði V9 er leiðrétt til samræmis við rétta afmörkun lóðar. Engin breyting er gerð á skilmálum. Breyting á deiliskipulagi Smiðjuvalla vegna Smiðjuvalla 12-14-16-18-20-22. Breytingin felst m.a. í að sameina lóðirnar við Smiðjuvelli 12-22 í eina lóð. Sameinuð lóð er ætluð sem athafnalóð fyrir léttan iðnað, þjónustu og skrifstofur. Breytingatillögurnar verða til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is, frá og með 5. mars nk. til og með 28. apríl 2019. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kost- ur á að gera athugasemdir við breytingartillögurnar til 28. apríl nk. Skila skal skriflegum athugasemdum í þjónustuver Akraneskaup- staðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@akranes.is. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar Annað mótið í vestlensku móta- röðinni, Vesturlandsdeildinni, fór fram á föstudagskvöldið í Faxa- borg. Keppt var í fjórgangi og var það Fasteignamiðstöðin sem styrkti mótið að þessu sinni. Aft- ur var það Siguroddur Pétursson sem bar sigur úr býtum á hestinum Stegg frá Hrísdal, en þeir félagar höfðu einnig sigur í fjórganginum í fyrra. Mjótt var á munum bæði í einstaklings- og liðakeppninni og mörg stig enn í pottinum. Verður spennandi að sjá hvað gerist 6. mars þegar keppt verður í gæðingafimi. Liðaskjöldurinn í fjórganginum fór til liðs Skáney/Hestalands. Eft- ir kvöldið er Söðulsholt efst í sam- anlegðri liðakeppni með 87 stig, Stelpurnar í SuperJeep og Sonax í öðru með 85,5 og Skáney/Hesta- land í þriðja með 82,5 stig. Í fjórða sæti er Berg/Hrísdalur og fl. með 74,5 stig en önnur lið eru nokkru neðar í stigatöflunni. Úrslit kvöldsins í einstaklings- keppni: 1. Siguroddur Pétursson og Stegg- ur frá Hrísdal 2. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Prins frá Skúfslæk 3. Randi Holaker og Þytur frá Skáney 4. Haukur Bjarnason og Ísar frá Skáney 5-6. Flosi Ólafsson og Selja frá Gljúfurárholti 5-6. Leifur Gunnarsson og Sveðja frá Skipaskaga. iss Fjórgangskeppni í Vesturlandsdeildinni Fyrsta mótið af þremur í KB móta- röðinni í hestaíþróttum fór fram á laugardaginn í Faxaborg. Móta- röðin er bæði einstaklings- og liða- keppni og voru rúmlega 50 skrán- ingar. Keppt var í tölti í fimm flokk- um; barna-, unglinga-, ungmenna-, fyrsta og öðrum flokki. Einnig var boðið upp á pollaflokk við mikinn fögnuð gesta. Næsta mót verður svo keppni í fjórgangi og fer hún fram 23. mars. Eftirtaldir urðu í þremur efstu sætum í sínum flokkum: Barnaflokkur 1. Kolbrún Katla Halldórsdóttir og Sigurrós frá Söðulsholti 2. Kristín Karlsdóttir og Sóldögg frá Hamarsey 3. Kristín Eir Hauksdóttir og Sóló frá Skáney. Unglingaflokkur 1. Brynja Heiðarsdóttir og Dögun frá Grundarfirði 2. Andrea Ína Jökulsdóttir og Vala frá Eystra-Súlunesi 3. Hjördís Helma Jörgensdóttir og Mía frá Fornusöndum. Ungmennaflokkur 1. Ísólfur Ólafsson og Eygló frá Leirulæk 2. Gyða Helgadóttir og Freyðir frá Mið-Fossum 3. Ásta Guðný Unnsteinsdóttir og Mylla frá Hvammstanga. 2. flokkur 1. Viktoría Gunnarsdóttir og Kostur frá Nýjabæ 2.Tinna Rut Jónsdóttir og Kaldi frá Þrístiklu. 3. Oddur Björn Jóhannsson og Skjöldur frá Steinum. 1. flokkur 1. Heiða Dís Fjeldsted og Frami frá Ferjukoti 2. Maria Greve og Óskastund frá Hafsteinsstöðum 3. Anna Renisch og Aron frá Eyri. iss Keppt var í tölti á KB mótaröðinni Efstu fimm í fyrsta flokki. Einn af keppendum í pollaflokki, Heiðrún Inga Jóngeirsdóttir Ísólfur Ólafsson á Eygló frá Leirulæk. www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.