Skessuhorn


Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 5 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Verð stykkið (Þrír litir) Leitið tilboða í stærri kaup www.stalidjan.is Stáliðjan ehf - Smiðjuvegi 5, 200 Kópavogi - Sími 564 5885 - www.stalidjan.is Dempar hljóð um allt að 18dB. Minnkar slit á gól . Má þvo í þvottavél. Mjög létt að setja á og taka af. Bráðnauðsynlegt í skóla, mötuneyti og allstaðar þar sem að fjölmenni kemur saman. 970 kr. Hljóðsokkar á stóla Matvælastofnun og Lyfjastofn- un vara við neyslu á tianeptine og annarra efna sem seld eru á netinu undir heitinu Nootropics og hafa mörg hver lyfjavirkni. Nootropics eru efni sem sögð eru örva heila- starfsemi og eru algeng í netsölu erlendis frá. Þau innihalda í sum- um tilvikum lyfjavirk efni sem geta verið hættuleg heilsu ef þau eru notuð án samráðs við lækni. Talið er að einstaklingur hafi ný- lega látist hérlendis vegna inn- töku tianeptine. Efnið tianeptine sulphate fannst í fórum einstaklingsins og telja læknar að það kunni að hafa valdið dauða hans. Ekki er hægt að veita nánari upplýsingar um atvikið. Ekki er að fullu ljóst hvort efnið sem einstaklingurinn tók og inni- hélt tianeptine hafi verið flutt inn sem lyf eða fæðubótarefni. Eins er óljóst hvort viðkomandi hafi flutt inn efnið sjálfur og hve lengi hann hafi notað það. Tianeptine er lyf notað við þunglyndi. Tianeptine er ekki með markaðsleyfi á Íslandi og því engin lyf til sölu á Íslandi sem innihalda efnið. Það er hins vegar með markaðsleyfi sumstað- ar í Evrópu, Asíu og Suður Am- eríku. Einföld leit á netinu leiðir í ljós að auðvelt er að nálgast tianeptine í gegnum erlendar vefverslanir. Þannig er hægt að kaupa efnið frá Evrópu, Bandaríkjunum og öðr- um ríkjum. Yfirleitt er tianept- ine ekki selt sem lyf heldur mark- aðssett sem fæðubótarefni. Efnið virðist einnig vera markaðssett án skilgreiningar á því hvort um lyf eða fæðubótarefni sé að ræða. Rétt er að benda á að ólíkar reglur er að finna í mismunandi ríkjum um hvort efni séu skilgreind sem fæðubótarefni eða lyf. Ekki eru gerðar jafn ríkar kröfur til fram- leiðslu fæðubótarefna eins og ger- ist með lyf. Því skal ávallt gæta varúðar við kaup og notkun slíkra efna, einkum ef þau eru keypt er- lendis eða í gegnum erlendar vef- verslanir. Matvælastofnun og Lyfjastofn- un vara við notkun á vörum sem innihalda tianeptine, sérstaklega ef efnið er ekki notað í þeim til- gangi sem upphaflega var ætl- að, þ.e. sem lyf við þunglyndi í skömmtum skv. læknisráði. Röng inntaka lyfja getur valdið auka- verkunum og í versta falli dauða. Því er mikilvægt að hafa ávallt samráð við lækni áður en lyfseð- ilsskyld lyf eru notuð og fylgja leiðbeiningum sem fylgja lausa- sölulyfjum. Matvælastofnun sinnir inn- flutningseftirliti með fæðubótar- efnum og hefur stöðvað innflutn- ing fjölda efna sem markaðssett eru undir heitinu Nootropics og innihalda efnið tianeptine. No- otropics eru fjölbreyttur flokkur efna með mismunandi efnainni- hald. Innflutningur þeirra sem fæðubótarefni er óheimill ef þau innihalda lyfjavirk efni. mm Rannsaka andlát í kjölfar notkunar á efninu tianeptine „Fjölmennur fundur fagaðila í bygg- ingariðnaði, sem í eru framleiðend- ur, starfsmenn og áhugamenn ís- lensks handverks og framleiðslu, fordæmir harðlega óforskömm- uð vinnubrögð verkalýðshreyfing- arinnar og þeirra aðila sem ganga freklega framhjá innlendri fram- leiðslu við innflutning á fullbúnum húsum, innréttingum og húsgögn- um hingað til lands.“ Þannig hljóð- ar upphaf harðorðrar tilkynning- ar sem fagaðilar í íslenskum bygg- ingariðnaði samþykktu á fjölmenn- um fundi sl. mánudag. Gagnrýnt er hvernig verkalýðshreyfingin kaus að sniðganga innlend fyrirtæki við útboð á fjölbýlishúsum, meðal ann- ars þremur húsum á Akranesi, sem ætluð eru til útleigu. „Að forsvarsmenn verkalýðs- hreyfingarinnar semji við erlenda aðila um innflutning á húsum, inn- réttingum og húsgögnum, á sama tíma og þeir eiga að standa vörð um innlenda framleiðslu, vernda störf, halda við kunnáttu í handverki og tryggja réttindi þeirra starfsmanna sem vinna þessi störf, ber heil- indum þeirra ekki gott vitni né er sannfærandi vitnisburður um getu þeirra til að sinna þeim störfum sem þeim hefur verið falið. Stað- reyndin er sú að innlend fram- leiðsla stenst ekki aðeins erlendu framleiðslunni snúning hvað varðar gæði og útlit, heldur er mjög sam- keppnisfær í verði og framleiðslu- tíma. Innlend verðmætasköpun er grunnur að hagsæld í okkar sam- félagi, ekki undirboð erlendis frá á kostnað íslenskra starfa,“ segir í til- kynningunni. Tekið er dæmi um ósvinnu hvernig íbúðafélagið Bjarg, félag sem stofnað er af ASÍ og BSRB, hefur látið framleiða og flytja inn einingahús frá Lettlandi og borið fyrir sig að innlendir aðilar anni ekki því magni sem óskað er eft- ir. „Þetta er alrangt og fundur- inn mótmælir innihaldslausum og ósönnum málflutningi þeirra sem vinna með þessum hætti svo sterk- lega gegn hagsmunum launafólks í landinu. Málflutningur um fjölda erlendra iðnaðarmanna á Íslandi og getuleysi innlendra framleiðenda til framleiðslu, er ekki samboðin þessum aðilum, enda vita þeir bet- ur þó þeir kjósi að skýla sér á bak við rökleysu af þessu tagi. Vinnu- brögð verkalýðshreyfingarinnar og þeirra sem ganga með þessum hætti framhjá afar samkeppnishæfri inn- lendri framleiðslu er áfellisdómur yfir þeim og lýsir vanhæfi þeirra og afskiptaleysi gagnvart iðnaðar- mönnum hér á landi, fyrirtækjum og þeirri þekkingu sem hér er til staðar. Hún er eins og blaut tuska framan í andlit almennings á þeim tíma sem samstaða væri dýrmæt- ari en sundurlyndi,“ segir í ályktun fagaðila í byggingariðnaði. mm Fagaðilar í byggingariðnaði átelja harðlega vinnubrögð við útboð Teikning af einu húsanna sem Bjarg leigufélag lætur erlenda verktaka byggja á Akranesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.