Skessuhorn


Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2019 7 Kynning á námsframboði, inntökuskilyrðum, heimavist, mötuneyti, félagslí, afreksíþróttum o.. Allir velkomnir sérstaklega 10. bekkingar og foreldrar/forráðamenn þeirra Stúdentsbrautir - 3 ára brautir Félagsfræðabraut Náttúrufræðabraut Opin stúdentsbraut Tónlistarsvið Tungumálasvið Viðskipta- og hagfræðisvið Opið svið Íþrótta- og heilsusvið Annað nám Framhaldsskólabraut Viðbótarnám eftir iðn- og starfsnám Starfsbraut Iðn- og starfsnám Tréiðngreinar Húsasmíði Húsgagnasmíði Málmiðngreinar Vélvirkjun Grunndeild bíliðngreina Raðngreinar Rafvirkjun Grunndeild rafeindavirkjunar Sjúkraliðabraut Afreksíþróttasvið OPIÐ HÚS þriðjudaginn 12. mars 2019 kl. 17 - 19 Námsbrautir Nánari upplýsingar um nám á brautum er að finna á vef skólans www.fva.is Góð aðstaða til náms og félagsstarfa Fjölbrautaskóli Vesturlands OPIÐ HÚS Fjölbrautaskóli Vesturlands • Vogabraut 5, 300 Akranes • 433 2500 • skrifstofa@fva.is Leikfélagsins Skagaleikflokksins verður haldinn á Mánabraut 20 (vesturinngangur) sunnudaginn 3. mars kl. 17:00 Venjuleg aðalfundarstörf Hvað er framundan? Námskeið – leikritalestur - götuleikhús - leiksýning Aðalfundur Stjórnin SK ES SU H O R N 2 01 9 Allir velkomnir Nýverið var skoðanakönnun á vef Skessuhorns um snjalltækjanotk- un samhliða akstri. Spurt var hvort fólk hefði freistast til að nota snjall- tæki við akstur bíls. Niðurstaðan var sláandi. Af 360 einstaklingum sem tóku þátt í könnuninni sögðust 10% oft freistast til að nota snjall- tæki við akstur og 39% segjast ein- staka sinnum hafa gert það, eða alls 49% þeirra sem svöruðu. 46% segj- ast hins vegar aldrei vera í snjall- tækjum við aksturinn. 5% þeirra sem tóku þátt aka ekki bíl. Ekki þarf að fjölyrða um hversu hættulegt er að nota síma án hand- frjáls búnaðar við akstur. Enn hættulegra er þó að fylgjast í snjall- símanum með því sem fram fer á netinu og á samfélagsmiðlun og vera jafnvel að skrifa inn skilaboð. Vísbendingar um að slíkt sé algengt eiga því við rök að styðjast. Vert er að minna á að sekt fyrir að nota síma við akstur, án þess að nota handfrjálsan búnað, hækkaði í 40 þúsund krónur 1. maí 2018. mm Tæpur helmingur notar snjalltæki við akstur „Nú er hvoru tveggja sá árstími og það tíðarfar sem eykur hættuna á holumyndunum á þjóðvegum,“ segir í tilkynningu frá Vegagerð- inni. „Þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar eru eykst hættan á því að holur myndist í bundnu slit- lagi, malbiki og klæðningu. Veg- farendur er því beðnir að sýna sér- staka árvekni og aka ætíð eftir að- stæðum.“ Fram kemur að það tek- ið skamman tíma fyrir holu að myndast, jafnvel djúpa holu sem getur leitt til tjóns á bílum. Starfs- menn þjónustustöðva Vegagerðar- innar fylgjast með eins og kostur er og bregðast við ábendingum um holur. Vegagerðin leitast við að bregðast við með viðgerð sem allra fyrst. „Vegagerðin tekur við ábendingum vegfarenda um holur og má t.d. senda upplýsingar á net- fangið vegagerdin@vegagerdin.is og í síma 1777. Lendi vegfarandi í tjóni er rétt að fylla út tjónstil- kynningu en hana má finna á vef Vegagerðarinnar. Það er mikil- vægt að sýna árvekni og vera vak- andi fyrir því í umferðinni að hol- ur geta myndast mjög hratt, þann- ig að þótt ekið sé á vegi sem var í góðu lagi í gær, getur verið komin hola í morgunsárið.“ mm Holutíð á vegum samhliða umhleypingum Ef gengið yrði til kosninga nú fengi Sjálfstæðisflokkurinn stuðn- ing 22,7% landsmanna, Samfylk- ing 15,9% og Framsóknarflokkur 13,5%. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-15. febrúar. Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að dala frá síðustu könnun MMR og er nú 11,1%. Fylgi Pírata minnk- aði sömuleiðis um rúmlega eitt og hálft prósentustig og fylgi Mið- flokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mæl- ingum. Flokkur fólksins bætir við sig og mælist nú 6,9%. Stuðn- ingur við ríkisstjórnina jókst lítil- lega frá síðustu könnun, en 42,8% sögðust styðja hana nú samanbor- ið við 41,5% í síðustu mælingu. mm Töluverð hreyfing á fylgi miðað við síðustu kosningar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.