Skessuhorn


Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 201910 Síðastliðinn sunnudag hélt Lions- klúbbur Ólafsvíkur fund í Slökkvi- stöð Snæfellsbæjar. Tilefnið var að afhenda slökkviliðinu gjafir, svo sem hitamyndavél, brunndælu, vasaljós og fleira. Vasaljósin sem klúbburinn gaf slökkviliðinu eru ætluð til þess að lýsa í sjáöldur fólks á vettvangi óhappa. Vatnsdælan er mjög öflug en hún dælir 600 lítrum á mínútu í fjögurra metra hæð. Þess má geta að slökkviliðið á fyrir aðra hitamyndavél en sú nýja er góð við- bót. Svanur Tómasson slökkvi- liðsstjóri þakkaði fyrir rausnarlega gjöf. Í ávarpi gat hann þess hversu dýrmætt það væri að hafa félaga- samtök á borð við Lionsklúbbinn starfandi í bæjarfélaginu. Þessi fé- lög styddu hin ýmsu málefni og hefði slökkviliðið notið góðs af því undanfarin ár með veglegum gjöf- um. Lionsmönnum var boðið að skoða slökkvistöðina undir leið- sögn slökkviliðsmanna. þa Slökkviliði Snæfellsbæjar færðar gjafir Frá afhendingu gjfanna. F.v. Fannar Baldursson, Svanur Tómasson og Sævar Gíslason. Óvenju öflugt eldingaveður gekk yfir suðvesturhorn landsins á fimmtudagskvöld. Íbúar á svæðinu urðu margir hverjir varir við kröft- ugar eldingarnar, mikla blossa og þungar drunur sem þeim fylgdu. Eldingarnar voru í um 250 km skúragarði sem lá frá Snæfells- nesi í norðri til suðausturs að Vest- mannaeyjum á áttunda tímanum á fimmtudagskvöldið. Veðrið gekk frekar hratt yfir. kgk Þrumur og eldingar Síðastliðinn föstudag var fyrsta skóflustungan tekin að fimm hæða íbúða- og þjónustuhúsi við Dal- braut 4 á Akranesi. Verður það fyrsta húsið af fjórum sem bygg- ingafélagið Bestla ehf. mun byggja á Dalbrautarreit. Í húsinu verð- ur 1270 fm fjölnota salur á neðstu hæð í eigu Akraneskaupstaðar sem m.a. Félag eldri borgara á Akra- nesi og nágrenni fær til afnota fyrir félagsstarf sitt. Á efri fjórum hæð- unum verða 26 tveggja og þriggja herbergja íbúðir fyrir eldri borg- ara og bílastæði fyrir hverja íbúð í kjallara. Jarðvegsframkvæmdir hefjast við húsið á næstu dögum og ráðgert að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar vorið 2020. Búið er að taka frá allar íbúðirnar í húsinu og langur biðlisti að auki, að sögn Jóns Ágústs Garðarssonar, fram- kvæmdastjóra Bestla ehf. Við útboð Akraneskaupstaðar í fyrravetur var Bestla eina fyrirtæk- ið sem bauð í byggingarrétt á lóð- um Dalbrautarreitsins og sótti það í fyrstu einungis um að byggja á lóð- inni Dalbraut 4. Fyrirtækið hefur hins vegar nú fengið svæðinu út- hlutað í heild sinni og hyggst reisa hús á öllum fjórum lóðum bygg- ingareitsins. „Við byrjum á Dal- braut 4 og munum því næst hefja framkvæmdir á lóðinni Þjóðbraut 3, sem einnig verður fimm hæða bygging sem myndar „L“ líkt og öll húsin á reitnum. Á neðstu hæð Þjóðbrautar 3 verður verslunar- rými, sem búið er að ráðstafa, en íbúðir á efri hæðunum líkt og þessu fyrsta. Næst í framkvæmdaröð- inni verður sambærilegt hús á lóð- inni Þjóðbraut 5 og endað á fjög- urra hæða húsi á lóðinni Dalbraut 6 þar sem ÞÞÞ húsið stendur núna. Það hús mun nýtast okkur meðan á byggingaframkvæmdum við hin húsin stendur, en verður að end- ingu rifið áður en nýtt hús verður byggt á lóðinni,“ segir Jón Ágúst Garðarsson í samtali við Skessu- horn. Að sögn Sædísar Alexíu Sig- urmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Akraneskaupstað, mun Fimleika- félag Akraness einnig hafa aðstöðu á neðri hæð ÞÞÞ hússins þar til nýtt fimleikahús verður tekið í notkun við Vesturgötu um næstu áramót. Löng forsaga Fjölmenni var viðstatt þegar tekn- ar voru fyrstu skóflustungurnar að Dalbraut 4; bæjarfulltrúar og emb- ættismenn auk hóps félaga úr FEB- AN og byggingaverktaka. „Þetta er gleðidagur fyrir okkar félag,“ sagði Viðar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Skessuhorn. Áður en mannskapurinn mundaði stunguskóflur til að hefja verkið með táknrænum hætti sagði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri nokk- ur orð. Rifjaði hann upp að það var árið 2014 sem Akraneskaup- staður keypti Dalbrautarreitinn af Bifreiðastöð ÞÞÞ. „FEBAN hafði lengi vantað stærra og varanlegt húsnæði fyrir starfsemi sína og var horft til þess að á svæðinu myndi slík aðstaða verða. Skipaðir voru starfshópar og boðað til íbúaþings undir formerkjunum „Farsæl öldr- un.“ Einn afrakstur íbúaþings var að fólk kallaði eftir fjölbreyttu bú- setuúrræði sem hentaði hverjum og einum. Eldri borgarar vildu raun- hæft val um að búa heima, í dvalar- rými eða í þjónustuíbúð. Hér mun því auk félagsaðstöðu rísa glæsileg- ar íbúðablokkir sem henta þessum aldurshópi í samfélaginu okkar,“ sagði Sævar Freyr. Færði hann fjöl- mörgum aðilum þakkir fyrir þeirra hlut í undirbúningi þess að verk- efnið er að komast á framkvæmda- stig. Meðal annars forsvarmönn- um FEBAN; bæjarstjórn auk fyrr- verandi bæjarstjórn og embættis- mönnum bæjarfélagsins. Sérstakar þakkir færði hann Ólafi Adolfssyni fyrir hans hlut í málinu, „en hann hefur sýnt mikla pólitíska forystu í framgangi þessa verkefnis,“ sagði Sævar Freyr. mm Framkvæmdir hefjast á Dalbrautarreitnum á Akranesi Jón Ágúst Garðarsson framkvæmdastjóri Bestla ehf. Hópur fólks hóf verkefnið með táknrænum hætti og mundaði skóflustungurnar. Bæjarstjórn, embættismenn, framkvæmdastjóri Bestla og fulltrúar FEBAN. Skipulag Dalbrautarreitsins. Byggingafélagið Bestla ehf. mun byggja öll fjögur húsin sem rísa á reitnum. Hér er horft yfir væntanlegt framkvæmdasvæði. Fyrsta húsið á reitnum mun rísa á Dalbraut 4, annað í röðinni verður hús á Þjóðbraut 3, þá Þjóðbraut 5 og loks Dalbraut 6 þar sem ÞÞÞ húsið stendur nú.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.