Skessuhorn - 27.02.2019, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 20196
Skildi börn eftir
í bíl í gangi
AKRANES: Lögreglumenn
á Vesturlandi voru við skóla-
eftirlit í vikunni sem leið. Á
Akranesi komu lögreglu-
menn að ökumanni sem
hafði skilið bíl eftir í gangi
með tvö börn innanborðs.
Lögregla segir að slíkt eigi
ekki að viðgangast og minn-
ir á að það er klárt brot á
umferðarlögum að skilja bíl
eftir í gangi. Þá bárust lög-
reglu ábendingar um ólög-
legar bifreiðastöður á Akra-
nesi. Strætisvagni var ekið
utan í bíl þar sem þeim var
þröngt og illa lagt þar í bæ.
Lögregla segir að sumar bif-
reiðastöður sem þeim var
tilkynnt um hafi verið með
þeim hætti að þær hafi getað
valdið öðrum vegfarendum
hættu, þá sérstaklega börn-
um. Vill lögregla beina því
til ökumanna að vanda frá-
gang ökutækja og ekki yfir-
gefa bíla sína ólæsta í gangi.
-kgk
Grunsamlegir
trúboðar
BORGARNES: Fimmtu-
daginn 21. febrúar var Lög-
reglunni á Vesturlandi til-
kynnt um grunsamlegar
mannaferðir í Borgarfirði.
Þar væru menn á ferð sem
leituðu að fólki sem talaði
pólsku eða ensku. Þótti íbú-
um það undarlegt og gerðu
lögreglu viðvart. Lögregla
kannaði málið og hitti fyrir
umrædda menn. Kom þá á
daginn að þar voru á ferðinni
Vottar Jehóva, sem vildu fá
að ræða við vantrúaða Borg-
firðinga um Jesú Krist. -kgk
Gengnir í
Miðflokkinn
ALÞINGI: Þingmennirn-
ir Karl Gauti Hjaltason og
Ólafur Ísleifsson, sem kosnir
voru á þing fyrir Flokk fólks-
ins, voru eins og kunnugt er
reknir úr flokki sínum í kjöl-
far Klaustursmálsins svokall-
aða í lok nóvember. Hafa
þeir verið utan flokka síðan
en nú ákveðið að ganga til
liðs við Miðflokkinn. „Við
teljum að á vettvangi Mið-
flokksins styrkjum við stöðu
okkar á Alþingi til að knýja
á um framgang þeirra mál-
efna, sem kjósendur treystu
okkur fyrir í síðustu alþingis-
kosningum,“ segir í tilkynn-
ingu frá þeim Karli Gauta og
Ólafi. -mm
Strætó ók
utan í kerru
VESTURLAND: Strætis-
vagni var ekið utan í kerru á
Vesturlandsvegi við Daníelsl-
und í Borgarfirði sl. miðviku-
dag. Dýna hafði fallið af kerr-
unni og ökumaður bifreiðar-
innar sem hana dró þess vegna
numið staðar á veginum. Strætó
ók utan í kerruna en ekki varð
alvarlegt tjón við óhappið og
engin meiðsli á fólki. Lögregla
minnir á að tryggja þarf farm
á kerrum, sérstaklega eins og
veðrið hefur verið undanfarið.
Bílvelta varð við Biskupsbeygju
á Holtavörðuheiði á mánudag-
inn. Fjórir voru í bílnum. Lög-
regla og sjúkralið fóru á vett-
vang en engin slys urðu á fólki.
Tilkynnt var um 30 manna rútu
sem var föst á Akrafjallsvegi
við Kjalardal nálægt miðnætti
á sunnudag. Rútan hafði fests
þegar bílstjóri reyndi að snúa
henni við á veginum. Þurfti að
fá beltagröfu til að draga hana
upp. Á sama tíma var tilkynnt
um grjóthrun við Búlandshöfða
á Snæfellsnesvegi. Þá var norð-
urtanga hafnarinnar í Ólafs-
vík lokað í um klukkustund
um miðjan dag á laugardaginn
vegna veðurs, en tilkynnt hafði
verið um fjúkandi ruslatunnur
og fiskikör á hafnarsvæðinu.
-kgk
Hraðamælingar
í Borgarnesi
BORGARNES: Lögreglan
á Vesturlandi gerði könnun á
ökuhraða á Borgarbraut í Borg-
arnesi í vikunni sem leið. Var
ökuhraði mældur með hraða-
myndavél síðastliðinn föstudag,
milli klukkan 16:00 og 17:00.
Alls voru 308 ökutæki hraða-
mæld og 25 brot skráð. Sá sem
hraðast ók var á 76 km/klst., en
hámarkshraði á staðnum er 50
km/klst.
-kgk
Síðastliðinn föstudag voru þeir
Sigurbjartur Loftsson bygginga-
fræðingur og Friðrik Tryggva-
son hjá Almennu umhverfisþjón-
ustunni í Grundarfirði að mæla
fyrir nýju bílastæði við Kirkju-
fell, en framkvæmdir við það hefj-
ast á næstu dögum. Á árunum
2017-2018 var unnið deiliskipulag
fyrir áningarstað við Kirkjufells-
foss en ekki hafði áður verið unnið
slíkt skipulag fyrir svæðið. Deili-
skipulagið tók gildi vorið 2018 og
nær til ríflega tíu hektara svæðis
umhverfis fossinn.
„Innan marka deiliskipulags-
svæðisins er gert ráð fyrir áningar-
stað með gönguleiðum og nýjum
bílastæðum, bæði fyrir minni og
stærri bíla,“ segir Björg Ágústs-
dóttir, bæjarstjóri
Grundarfjarðar-
bæjar, í samtali
við Skessuhorn.
„Nýja bílastæð-
ið liggur aðeins
vestar en núver-
andi bílastæði og
við þessar breyt-
ingar eykst ör-
yggi mikið þar
sem bílastæðið
liggur ekki alveg
við þjóðveginn.
Í skipulaginu er
bílastæðið stað-
sett við Reiðhól,
sem er gamalt
örnefni þarna,“
segir Björg. Í
framhaldi af stað-
festu deiliskipu-
lagi var farið í
vinnu við nánari
hönnun áfangar-
staðarins og kom
það í hlut Þráins
Haukssonar arki-
tekts hjá Lands-
lagi, arkitekta-
stofu í Reykja-
vík. „Þráinn og
félagar hans hjá
Landslagi hafa komið að mörg-
um svipuðum verkefnum en þeir
hönnuðu meðal annars stigann upp
á Saxhól í Snæfellsbæ sem unnið
hefur til verðlauna. Það eru land-
eigendur jarðarinnar Kirkjufells
sem ráða ferðinni þegar kemur að
skipulagi og hönnun en sveitarfé-
lagið kemur þó að málum og styð-
ur við. Bærinn hefur til dæmis sótt
um styrki úr Framkvæmdasjóði
ferðamannastaða til þessara fram-
kvæmda. Hönnun á göngustígum
og svæðinu umhverfis fossinn er
á lokametrunum og við stefnum á
framkvæmdum við það í sumar,“
segir Björg.
Fyrsti áfanginn sem nú er að
hefjast felst í að vinna jarðvinnu
við nýtt bílastæði og veginn að
því. „Við höfum samið við Al-
mennu umhverfisþjónustuna ehf.
um að vinna þann áfanga,“ segir
Björg, en honum verður væntan-
lega lokið fyrir vorið og þá verð-
ur hægt að hleypa umferð á veginn
og bílastæðin. Malbika á svo svæð-
ið í sumar og verður þá núverandi
bílastæði lagt af, sem og göngu-
leiðin frá því og vestan megin við
fossinn.
tfk
Framkvæmdir að hefjast
við nýtt bílastæði
Friðrik Tryggvason og Sigurbjartur Loftsson að mæla fyrir nýju bílastæði.
Teikning af nýjum áningarstað og bílastæðum við
Kirkjufellsfoss.