Skessuhorn


Skessuhorn - 13.03.2019, Page 6

Skessuhorn - 13.03.2019, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 20196 Vottar enn grunsamlegir STYKKISH: Tilkynnt var um grunsamlegar manna- ferðir í Stykkishólmi á mánu- daginn. Lögregla kannaði málið og kom þá í ljós að þar voru á ferðinni erlendir Vott- ar Jehóva. Í dagbók lögreglu kemur fram að rætt hafi ver- ið við íbúa og þeir látnir vita að þarna hafi verið trúboðar á ferðinni. Sambærilegt mál kom upp í Borgarfirði á dög- unum, eins og greint var frá í Skessuhorni, þar sem er- lendir Vottar voru að leita uppi landa sína til að boða þeim fagnaðarerindið. Þá var tilkynnt um grunsam- legar mannaferðir í Grund- arfirði í vikunni sem leið, en ekkert kom út úr því máli að sögn lögreglu. -kgk Hlúð að manni við Glym HVALFJ: Björgunarsveit- ir á Vesturlandi voru kall- aðar út um hálf tvö á sunnu- dag vegna tilkynningar frá manni í vanda í Botnsdal í Hvalfirði. Maðurinn hafði verið á göngu í litlum hópi að fossinum Glymi. Rúm- um klukkutíma síðar var björgunarsveitarfólk kom- ið að manninum en meiðsli hans reyndust minni en tal- ið var í upphafi. Hlúð var að honum og gat hann gengið í fylgd björgunarsveitarfólks að bílastæði. Sjúkraflutn- ingamenn skoðuðu manninn og ekki þurfti að flytja hann til byggða. -mm Málþing um áhættumat erfðablöndunar laxa LANDIÐ: Kristján Þór Júlí- usson, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, hefur boð- að til málþings um áhættu- mat vegna mögulegrar erfða- blöndunar eldislaxa og nátt- úrulegra laxastofna á Íslandi. Málþingið verður haldið í Sjávarútvegshúsinu í Reykja- vík á morgun, fimmtudag- inn 14. mars og hefst kl. 9:00. Hafrannsóknarstofnun gaf fyrst út áhættumat í júlí 2017. Nýlega lagði ráðherra fram frumvarp um breyting- ar á ýmsum lögum sem tengj- ast fiskeldi. Þar er lagt til að áhættumat verði lögfest og jafnframt að það verði tek- ið til endurskoðunar í sumar. Á málþinginu verður farið yfir áhættumatið og þá vinnu sem liggur þar að baki, auk þess sem rætt verða næstu skref í þróun þess. -kgk Nýr gæðastjóri Fisk Seafood Stefanía Inga Sigurðardóttir hefur verið ráðin gæðastjóri hjá Fisk Seafood á Sauðár- króki. Í gæðateymi fyrirtæk- isins eru sérstakir í öllum rekstrareiningum, s.s. land- vinnslunni á Sauðárkróki, saltfisksvinnslu í Grund- arfirði, seiðaeldi á Hólum, fiskeldi í Þorlákshöfn og á frystitogaranum Arnari, auk ferskfisktogara fyrirtækisins. Stefanía er með B.Sc. gráðu í líftækni frá Háskólanum á Akureyrir og hefur starfað innan veggja Fisk Seafood hjá rannsóknar- og þróun- arfyrirtækinu Iceprotein frá 2013, þar af undanfarin þrjú ár sem rannsóknarstofustjóri. Auk verkefna sem tengjast vörum Iceprotein hélt hún utan um aðferðafræði við gæðamælingar afurða fyrir matvæla- og fóðurfyrirtæki á Norðurlandi vestra. „Vönd- uð gæðastjórnun í matvæla- framleiðslu er gífurlega mik- ilvæg og getur skipt sköpum fyrir orðspor vörunnar og verðmætasköpun,“ er haft eftir Stefaníu í tilkynningu frá Fisk Seafood. „Það er afar ánægjulegt að fá Stefan- íu til þessara starfa og ég er sannfærður um að hún hef- ur bæði þekkingu og reynslu til að taka gæðamálin okk- ar metnaðarfullum tökum,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri Fisk Sea- food, í tilkynningu frá fyrir- tækinu. -kgk Dalabyggð hefur auglýst útboð vegna fyrsta áfanga breytinga og við- byggingu Vínlandsseturs í Búðardal. Verkinu er skipt í tvennt. Annars vegar skal færa núverandi stiga og gera stokk fyrir lyftu, gera nýjan stiga og styrkja milligólf með stálbitum og súlum, rífa inniveggi, byggja nýtt gólf ofan á steingólf, setja upp milli- veggi og hurðir og smíða og setja í nýja glugga og útihurðir í sal. Hins vegar á að fjölga salernum og færa ræstiherbergi í austurálmu hússins, sem og breyta aðstöðu starfsmanna og fjölga þakgluggum. Kynning á verkinu verður á staðn- um í dag, miðvikudaginn 13. mars kl. 13:00, en útboðsgögn eru afhent rafrænt og endurgjaldslaust hjá um- sjónarmanni framkvæmda á net- fangið kristjan@dalir.is Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 26. mars næst- komandi og áætluð verklok eru 26. júlí. Húsinu á að skila fullgerðu, máluðu og tilbúnu til notkunar. kgk Breytingar og viðbygging Vínlandsseturs í útboð Áætlað er að búið verði að byggja við húsið í lok júlí næstkomandi. Ljósm. mm. Landssamband veiðifélaga gerir al- varlega athugasemdir við frumvarp að breytingum á fiskeldislögum. „Sérstaklega þeirri fyrirætlan að setja á fót samráðsnefnd, sem fjalla á um áhættumat um erfðablöndun sem í eiga að sitja fulltrúi ráðherra og hagsmunaaðila fiskeldis í meiri- hluta. Með þessu háttalagi mun ráðherra grafa undan áhættumatinu enda er áhættumatið nú aðeins orð- in tillaga Hafrannsóknastofnunar í frumvarpi hans. Þá er það ákvæði að ráðherra eigi að staðfesta matið af sama toga. Þessar breytingar eru að mati Landssambandsins skýlaust brot á undirrituðu samkomulagi sem náðist um meðferð áhættu- matsins í lögum sem samþykkt var í starfshópi um stefnumótun í fisk- eldi. Landssambandið harmar að samkomulagið sé brotið á þennan hátt,“ segir í tilkynningu. Sömuleiðis leggst sambandið gegn því að Hafrannsóknarstofn- un verði veittar víðtækar heimild- ir til að stunda eldistilraunir í sjó; „þegar fyrir liggur að stjórnvöld hyggjast nýta þá heimild til að setja niður 3000 tonna eldi á frjóum laxi í Ísafjarðardjúpi þvert á niður- stöðu áhættumats og framhjá öll- um reglum í umhverfisrétti,“ eins og segir í tilkynningu Landssam- bandsins. Vegna þessa hefur Landssamband veiðifélaga boðað til formanna- fundar allra veiðifélaga í landinu mánudaginn 18. mars næstkom- andi, til að ræða þessa stöðu og við- brögð við henni. kgk/ Ljósm. úr safni. Veiðifélög andsnúin breytingum á fiskeldislögum

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.