Skessuhorn - 13.03.2019, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 201912
Viðburðurinn „Mín framtíð 2019“
verður haldinn í Laugardalshöll
í Reykjavík dagana 14.-16. mars
næstkomandi. Um er að ræða
þriggja daga hátíð sem öll hverf-
ist um iðn- og verknám á Íslandi.
Keppt verður á Íslandsmótinu í
iðn- og verkgreinum auk þess sem
haldin verður kynning á náms-
framboði 33 framhaldsskóla um
allt land. Þar munu hátt í 200 ung-
menni etja kappi í alls 28 iðn-
greinum. Sigurvegarar eiga marg-
ir hverjir kost á að keppa síðar við
þá bestu í sinni grein á Evrópu-
mótinu sem haldið verður í Aust-
urríki á næsta ári. Laugardagur-
inn 16. mars verður sérstakur fjöl-
skyldudagur þar sem gestum og
gangandi býðst að kynna sér iðn-
og verknám og reyna sig við eitt
og annað sem tengist greinunum.
Sérstök dagskrá með viðburðum
og kynningum verður sama dag.
„Markmiðið með þessari kynn-
ingu er m.a. að kynna fyrir ungu
fólki þau fjölmörgu tækifæri sem
felast í iðn-, verk- og tæknifræði-
námi og auðvelda þeim að kynna
sér fjölbreytt námsframboð fram-
haldsskólanna með það fyrir aug-
um að fleiri taki upplýsta ákvörð-
un um námsval sem tekur mið af
áhugasviði þeirra og hæfni. Mark-
visst námsval dregur úr brotthvarfi
úr námi sem er stórt vandamál hér
á landi,“ segir í tilkynningu.
kgk
Háskólalestin var á ferð um land-
ið í síðustu viku. Fimmtudaginn 8.
mars stoppaði lestin í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi. Slegið
var upp básum þar sem nemendur
gátu kynnt sér námsframboð í öll-
um Háskólum landsins; Háskólan-
um á Bifröst, Landbúnaðarháskóla
Íslands, Háskólanum á Hólum,
Háskóla Íslands, Háskólnum á Ak-
ureyri, Listaháskóla Íslands og Há-
skólanum í Reykjavík. Viðburður-
inn stóð yfir frá kl. 10:00 að morgni
til 11:30 og fjöldi ungmenna kynnti
sér námsframboð skólanna á með-
an Háskólalestin gerði töf á Akra-
nesi.
kgk
Ungmenni kynntu
sér háskólanám
Íslandsmót iðn- og
verkgreina framundan
Kynning á námsframboði 33 framhaldsskóla
Svipmynd frá keppni á Íslandsmóti iðn- og verkgreina árið 2017.
Ljósm. úr safni/ kgk.
Keppni í gæðingafimi í Vestur-
landsdeildinni fór fram í síðustu
viku í Faxaborg. Greinin er krefj-
andi bæði fyrir knapa og hest og
kannski hægt að segja að hún sé
ekki í miklu uppáhaldi hjá öllum
knöpum. Trúlega er það ástæðan
fyrir því að sjaldan er keppt í grein-
inni og menn því óvanir henni. En
kvöldið var mjög ánægjulegt og
óhætt að segja að sigurvegari þess
hafi verið Fredrica Fagerlund.
Hún átti magnaða sýninu á hesti
sínum Stormi frá Ysta-Felli. Eft-
ir þetta kvöld leiðir enn í einstak-
lingskeppninni Siguroddur Pét-
ursson, en í liðakeppni er það lið
Skáney/Hestalands sem er í broddi
fylkingar, en keppendur þess fengu
einnig liðaskjöldin afhentan eftir
gæðingafimina. Hróar ehf. í Skipa-
nesi var styrktaraðili kvöldsins.
Efstu fimm í úrslitum gæðinga-
fiminnar voru:
Fredrica Fagerlund og Stormur
frá Yzta Felli 7,71
Siguroddur Pétursson og Stegg-
ur frá Hrísdal 7,25
Haukur Bjarnason og Ísar frá
Skáney 6,82
Randi Holaker og Þytur frá
Skáney 6,69
Guðmar Þór Pétursson og Ást-
arpungur frá Staðarhúsum 6,65.
iss
Fagerlund átti frábært kvöld
í gæðingafiminni
Fredrica Fagerlund og Stormur á vellinum.
Soffía G. Þórðardóttir ljósmóð-
ir fagnaði nýverið 70 ára afmæli
sínu. Á afmælisdaginn afþakk-
aði hún gjafir en hafði þess í stað
söfnunarkassa og tók við frjálsum
framlögum. Alls söfnuðust í kass-
ann 208.500 kr., sem Soffía ákvað
að láta renna til Krabbameinsfélags
Akraness og heiðra þannig minn-
ingu föður síns, Þórðar Jónssonar
og systur sinnar, Agnesar Sigrún-
ar Þórðardóttur, sem bæði létust úr
krabbameini með 16 daga millibili í
janúar 1991.
„Stjórn krabbameinsfélagsins
þakkar Soffíu kærlega fyrir hugul-
semina og stuðninginn. Styrkurinn
mun nýtast vel í komandi verkefni
félagsins,“ segir í tilkynningu frá
Krabbameinsfélagi Akraness.
kgk
Færði Krabbameinsfélagi
Akraness peningagjöf
Soffía G. Þórðardóttir ljósmóðir (t.h.)
og Sólveig Ásta Gautadóttir, formaður
Krabbameinsfélags Akraness.