Skessuhorn - 13.03.2019, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Skallagrímur lék síðasta heimaleik
sinn í Domino‘s deild karla í körfu-
knattleik í bili þegar þeir mættu
Tindastóli í Borgarnesi á sunnu-
dagskvöld. Borgnesingar eru sem
kunnugt er fallnir úr deild þeirra
bestu eftir tap gegn Val á fimmtu-
dagskvöld. Þeir voru því ekki að
spila upp á neitt nema stoltið á
sunnudaginn. Skallagrímsmenn
réðu ferðinni allan fyrri hálfleikinn
gegn sterku liði Tindastóls. Sá síð-
ari var jafn og spennandi og úrslitin
réðust ekki fyrr en á lokamínútun-
um. Fór svo að gestirnir frá Sauð-
árkróki sigruðu með átta stigum,
82-90.
Borgnesingar voru miklu betri í
fyrsta leikhluta, héldu gestunum í
aðeins átta stigum en skoruðu 23
stig sjálfir og höfðu því gott for-
skot að upphafsfjórðungnum lokn-
um. Skallagrímsmenn voru áfram
sterkari í öðrum leikhluta og náðu
20 stiga forskoti um miðjan ann-
an leikhluta. Gestirnir minnkuðu
muninn lítið eitt næstu mínúturn-
ar en Borgnesingar höfðu góða for-
ystu þegar flautað var til hálfleiks,
45-30.
Gestirnir mættu mjög ákveðnir
til síðari hálfleiks og voru aðeins
þrjár mínútur að koma sér upp að
hlið Skallagríms. Leikurinn varð
snarlega mjög jafn og spennandi
þar sem liðin skipustu á að leiða
út þriðja leikhlutann. Skallagrím-
ur var stigi yfir fyrir lokafjórðung-
inn, 59-58. Stólarnir náðu undir-
tökunum á fyrri hluta fjórða leik-
hluta, komust átta stigum yfir en
Skallagrímur kom til baka og náði
forystunni að nýju. Borgnesingar
leiddu með þremur stigum þegar
tvær mínútur lifðu leiks. Þá náðu
gestirnir hins vegar góðri rispu
þar sem þeir skoruðu 16 stig gegn
fimm síðustu tvær mínútur leiksins
og tryggðu sér sigurinn, 82-90.
Matej Buovac var atkvæðamest-
ur í liði Skallagríms með 23 stig og
13 fráköst og Björgvin Hafþór Rík-
harðsson setti upp þrennu, skoraði
16 srtig, tók tíu fráköst og gaf tíu
stoðsendingar. Bjarni Guðmann
Jónsson var með 15 stig og sex frá-
köst og Aundre Jackson skoraði 13
stig.
Brynjar Þór Björnsson var at-
kvæðamestur í liði Tindastóls með
23 stig og sex fráköst, Dino Buto-
rac skoraði 16 stig og gaf sex stoð-
sendingar, Philip Alawoya var með
15 stig og tíu fráköst og Pétur Rún-
ar Birgisson skoraði 14 stig, tók átta
fráköst og gaf tíu stoðsendingar.
Borgnesingar hafa átta stig í ell-
efta og næstneðsta sæti deildarinn-
ar, sex stigum á eftir Val þegar einn
leikur er eftir. Síðasti leikur Skalla-
grímsmanna í Domino‘s deildinni í
vetur fer fram á morgun, fimmtu-
daginn 14. mars, þegar þeir mæta
Njarðvíkingum á útivelli.
kgk/ Ljósm. úr safni/ Skallagrím-
ur.
Tap í síðasta
heimaleiknum
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu-
kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni,
hafnaði í fimmta sæti á NSW Open
mótinu sem fram fór í Ástralíu um
helgina. Mótið er hluti af Evrópu-
mótaröð kvenna.
Valdís lék frábært golf á fyrsta
hring mótsins, fór hann á 63 högg-
um eða hvorki meira né minna en
átta höggum undir pari. Annan
hringinn fór hún á einu undir pari
vallarins og sat í toppsætinu eftir
fyrstu tvo hringina á níu höggum
undir pari. Þriðja hringinn fór hún
á einu yfir pari og lokahringinn fór
hún á tveimur yfir pari. Hún lauk
þar með keppni á sex höggum und-
ir pari og í fimmta sæti mótsins.
Valdís hefur verið að glíma við
þrálát bakmeiðsli síðan í haust og
það gerði henni erfitt fyrir í mótinu
eftir frábæra byrjun. Sú hefur
reyndar verið raunin í mótum und-
anfarnar vikur. „Þetta eru búnar að
vera langar og strembnar sex vik-
ur. Ég var rosalega nálægt því að
spila mjög vel í öllum mótunum en
klúðraði svo alltaf einhverju. Bakið
á mér hefur verið að hrjá mig síð-
an í ágúst en síðustu vikur hefur
það verið mjög slæmt,“ ritar Valdís
á Facebook-síðu sína eftir mótið.
„Spilamennska helgarinnar er smá
vonbrigði en ég barðist eins og ég
gat og varð að sætta mig við 5. sæt-
ið í þetta sinn,“ ritar hún.
Næsta mál á dagskrá hjá Valdísi
Þóru er mót í Suður-Afríku sem
hefst á morgun, fimmtudaginn 15.
mars. Að því búnu ætlar hún að
snúa heim til Íslands og leita að-
stoðar lækna vegna bakmeiðslanna.
Í framhaldi af því mun hún ákveða
hvað hún gerir til að reyna að ná sér
af meiðslunum. kgk
Valdís í fimmta
sæti í Ástralíu
Snæfell tók á móti Stjörnunni í stór-
leik 24. umferðar Domino‘s deildar
kvenna í körfuknattleik á laugar-
daginn. Liðin eru í harðri baráttu
um fjórða sæti deildarinnar og þar
með sæti í úrslitakeppninni. Fyr-
ir leikinn var Snæfell í fimmta sæti,
tveimur stigum á eftir Stjörnunni.
Leikurinn í Stykkishólmi þróaðist
þannig að Stjarnan hafði undirtök-
in allan tímann og vann að lokum
sjö stiga sigur, 66-73.
Gestirnir byrjuðu betur og
skoruðu fyrstu ellefu stig leiks-
ins. Þá tóku Snæfellskonur við sér
og minnkuðu muninn í 12-16 en
Stjarnan átti lokaorðið og leiddi
15-25 eftir fyrsta leikhluta. Snæ-
fellskonur fundu sig engan veginn í
öðrum fjórðungi og skoruðu aðeins
sjö stig allan leikhlutann. Á meðan
bætti Stjarnan 16 stigum á töfluna
og var komin 19 stigum yfir í hálf-
leik, 22-41.
Snæfellskonur kroppuðu örfá stig
af forskotinu í þriðja leikhluta, en
14 stigum munaði fyrir lokafjórð-
unginn og á brattann að sækja fyrir
Hólmara. En snæfell var sterkara í
fjórða, minnkaði muninn enn frek-
ar en komst ekki nær en sem nam
stigunum sjö sem skildi liðin að í
leikslok. Stjarnan vann, 66-73.
Kristen McCarthy lék afar vel í
liði Snæfells, skoraði 34 stig og tók
ellefu fráköst. Hún var hins vegar
sú eina sem komst í tveggja stafa
tölu á stigatöflunni. Gunnhildur
Gunnarsdóttir skoraði níu stig og
tók átta fráköst og Berglind Gunn-
arsdóttir skoraði átt stig en aðrar
höfðu minna.
Danielle Rodriguez átti stórleik
fyrir Stjörnuna, skoraði 37 stig, tók
átta fráköst og gaf átta stoðsend-
ingar. Ragnheiður Benónísdóttir
var með ellefu stig og sex fráköst
og Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði
tíu stig.
Snæfell hefur 26 stig í fimmta
sæti deildarinnar, tveimur stigum á
eftir KR og Stjörnunni í sætunum
fyrir ofan. Næsti leikur liðsins er
gegn KR á útivelli í dag, miðviku-
daginn 13. mars. Sigur í þeim gæti
reynst Snæfellskonu gríðarlega
mikilvægur í baráttunni um sæti í
úrslitakeppninni.
kgk/ Ljósm. sá.
Róður Snæfellskvenna þyngist
Það hefur verið töluvert um að vera í
leikmannamálum Víkings Ó. undan-
farið, en nýverið samdi Ólafsvíkur-
liðið við fjóra leikmenn. Ber þar fyrst
að nefna að fyrirliðinn Emir Dokara
hefur gert nýjan samning við liðið út
keppnistímabilið 2019. Emir leikur
í vörninni og hefur verið á mála hjá
Víkingi Ó. frá árinu 2011. Fyrirlið-
inn er jafnframt reynslumesti leik-
maður liðsins, en hann hefur leik-
ið 149 leiki fyrir félagið í tveimur
efstu deildum Íslandsmótsins og bik-
arkeppninni. „Víkingur Ó. lýsir yfir
mikilli ánægju með að hafa framlengt
við Emir,“ segir í tilkynningu á Fa-
cebook-síðu Víkings Ó.
Styrkja miðjuna
Þá hafa Víkingur Ó. og FH kom-
ist að samkomulagi um að Grétar
Snær Gunnarsson gangi til liðs við
Ólafsvíkinga, en hann skrifaði undir
tveggja ára samning. Grétar er 22 ára
gamall miðjumaður á að baki 18 leiki
fyrir yngri landslið Íslands. Hann var
á láni hjá HB Þórshöfn í Færeyjum
á síðasta keppnistímabili og fagnaði
meistaratitli með liðinu.
Sömuleiðis hefur verið samið við
breskan miðjumann, Harley Willard,
um að leika með liðinu á komandi
sumri. Harley verður 22 ára gamall
á árinu og getur spilað sem sókndj-
arfur miðjumaður eða kantmaður.
Hann er alinn upp í knattspyrnuaka-
demíu Arsenal og síðar Southampton
en hefur síðan þá spilað með liðum á
Englandi, Svíþjóð og í Asíu.
Staðan milli stanganna
Tveir markverðir skrifuðu nýverið
undir samning við Víking Ó. Króat-
inn Franko Lalic mun verja mark
liðsins í 1. deild karla í sumar. Franko
er 28 ára gamall og reynslumikill
leikmaður sem undanfarinn ár hefur
spilað bæði í Litháen og Bosníu.
Að lokum hefur hinn ungi og efni-
legi markvörður Konráð Ragnarsson
endurnýjað samning sinn við Víking
Ó. Hann var á láni hjá Skallagrími
í 4. deildinni í fyrrasumar, en lið-
ið tryggði sér sem kunnugt er sæti í
deildinni fyrir ofan að loknu tímabili.
Konráð, sem verður 21 árs á árinu,
lék 18 leiki með Borgarnesliðinu í
fyrra, þar af alla fimm leiki liðsins í
úrslitakeppninni.
kgk
Fyrirliðinn framlengir
við Víking Ólafsvík
Samið við tvo markverði og tvo miðjumenn að auki
Emir Dokara í leik
með Víkingi Ó.
Ljósm. úr safni.
Körfuknattleikskonan Berglind
Gunnarsdóttir var á föstudags-
kvöld útnefnd íþróttamaður Snæ-
fells 2018. Er þetta annað árið í röð
sem hún er sæmd þessari heiðurs-
nafnbót.
Berglind hefur leikið með Snæ-
felli alla tíð og á að baki nálægt 300
leiki fyrir félagið. Þar að auki á hún
að baki 21 landsleik fyrir A landslið
Íslands í körfuknattleik og 18 leiki
með yngri landsliðum. „Nálgun
Berglindar á íþróttinni og öllu sem
hún tekur sér fyrir hendur er aðdá-
unarverð,“ segir um útnefninguna
á Facebook-síðu Héraðssambands
Snæfellsness og Hnappadalssýslu.
„Þrátt fyrir að axlarmeiðsli hafi
plagað hana er engan bilbug að
finna á Berglindi. Viðhorf Berglind-
ar í íþróttum og hvernig hún leggur
sig ávallt 100% fram er öðrum til
fyrirmyndar og eftirbreytni.“
kgk
Berglind Gunnarsdóttir
er íþróttamaður Snæfells
Berglind Gunnarsdóttir, íþróttamaður
Snæfells 2018. Ljósm. sá.