Skessuhorn - 13.03.2019, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 201920
Nú eru nokkrar vikur síðan
vinnsla hófst í nýrri fiskvinnslu
Guðmundar Runólfssonar hf. í
Grundarfirði. „Það hafa að sjálf-
sögðu verið einhverjir hnökrar
svona eins og búist var við,” segir
Unnsteinn Guðmundsson, tækni-
stjóri, og einn eigenda fyrirtæk-
isins í samtali við Skessuhorn.
„Þetta er samt allt á réttri leið og
vinnslugetan eykst með hverri vik-
unni sem líður, bætir hann við.
Fréttaritari Skessuhorns fékk að
svipast um í nýju vinnslunni síð-
asta mánudag. Allt starfsfólkið
skartar appelsínugulum vinnufatn-
aði sem setur skemmtilegan svip á
heildarútlit vinnslusalarins og er
skemmtilegt mótvægi við gráa og
bláa litinn sem er svo yfirgnæf-
andi. Guðmundur Smári Guð-
mundsson framkvæmdastjóri er
bjartsýnn á framhaldið. „Við erum
að renna rúmlega tuttugu tonnum
af fiski í gegn núna en það mun
aukast jafnt og þétt. Við munum
vinna rúmlega þrjátíu tonn á dag
á fullum afköstum,“ segir Guð-
mundur Smári.
tfk
Góður gangur í nýrri
fiskvinnslu G.Run
Séð yfir vinnslusalinn. Verið að pakka afurðum og gera þær tilbúnar til flutnings.
Starfsmenn G.Run létu ljósmyndara Skessuhorns ekki trufla sig enda nóg að gera.
Loftmynd af G.Run séð yfir höfnina.