Skessuhorn - 13.03.2019, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 201918
Nemendur í elstu deild Grunnskóla
Grundarfjarðar heimsóttu Grund-
arfjarðarhöfn á dögunum. Tilefn-
ið var að nemendur gætu aflað sér
fræðslu um öryggisatriði á höfninni
en það er að mörgu að hyggja þeg-
ar höfnin er heimsótt. Hafsteinn
Garðarsson hafnarstjóri fór yfir
helstu öryggisatriði hafnarsvæð-
isins og sýndi krökkunum réttu
handtökin á öryggisbúnaði. Það er
nauðsynlegt að kunna að bera sig
að ef slys ber að höndum á hafnar-
svæðinu. Það var margt sem nem-
endum þótti athyglisvert og voru
allir sannfærðir um nauðsyn slíkra
kynninga og hvernig bregðast á við
ef mikið liggur við.
tfk/ Ljósm. Sigurður Gísli Guð-
jónsson.
Nemendur á
unglingastigi fá
fræðslu á höfninni
Hér er Hafsteinn Garðarsson að sýna nemenum Markúsarnetið.Nemendur fylgjast með af athygli.
Á þessu ári eru 200 ár frá því Odd-
fellowreglan á Íslandi var stofn-
uð. Í tilefni afmælisins tóku Odd-
fellowstúkurnar á Akranesi, Egill
og Ásgerður, höndum saman um
gjöf til líknarmála á starfssvæði
stúkanna, með stuðningi styrkt-
ar- og líknarsjóðs Oddfellow. Var
það sameiginleg niðurstaða reglu-
systkina að láta Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands á Akranesi, Hjúkr-
unar- og dvalarheimilið Höfða á
Akranesi og Hjúkrunar- og dval-
arheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi
njóta gjafanna. Gjafirnar hafa allar
verið teknar í notkun en þær voru
formlega afhentar að viðstöddu
fjölmenni í Oddfellowhúsinu á
Akranesi síðastliðinn laugardag.
Smári V. Guðjónsson, yfirmaður
stúku Egils og Salvör Lilja Brands-
dóttir, yfirmaður stúku Ásgerðar,
afhentu gjafirnar fyrir hönd Odd-
fellow, ásamt Sigurði Sigurðssyni,
formanni stjórnar líknarsjóðs Eg-
ils og M. Hrönn Ríkharðsdóttur,
formanni stjórnar líknarsjóðs Ás-
gerðar.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
voru færðir tveir fæðingamónitor-
ar ásamt fylgihlutum, barkaþræð-
ingatæki og fimm ný sjúkrarúm.
Höfða gáfu Oddfellowbræður og
-systur nýjan fjölþjálfa og Brákar-
hlíð færðu þau tvo ný rafmagns-
fótahjól. Jóhanna Fjóla Jóhannes-
dóttir, forstjóri HVE, veitti gjöf-
unum viðtöku fyrir hönd HVE og
fékk því næst stjórnendur þeirra
deilda sem tækin eru til notkunar
til að segja frá þeim. Hrund Þór-
hallsdóttir, yfirlæknir kvenna-
deildar, fræddi gesti stuttlega um
virkni fæðingamónitorsins og Val-
dís Heiðarsdóttir, deildarstjóri á
lyflækningadeild, sagði frá nýju
sjúkrarúmunum. Björn Gunnars-
son, yfirlæknir skurð- og svæfinga-
deildar, sagði frá barkaþræðingar-
tækinu. Björn tók meira að segja
tækið með sér, enda lítil og nett
græja og lýsti því hvernig það er
notað. Kjartan Kjartansson, fram-
kvæmdastjór Höfða, tók við gjöf-
inni til heimilsins og sagði stutt-
lega frá því hvernig það er notað
í daglegu starfi og það sama gerði
Björn Bjarki Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri fyrir hönd Brákar-
hlíðar. Öll sem eitt þökkuðu þau
Oddfellow fyrir veittan stuðning
og sögðu að gjafirnir myndu koma
að góðum notum í starfi stofnan-
anna. kgk
Oddfellowstúkur gáfu til líknarmála í landshlutanum
Tvö hundruð ár frá stofnun reglunnar á Íslandi
Fulltrúar Oddfellow og þeirra heilbrigðisstofnana sem stúkurnar færðu gjafir. F.v. Smári V. Guðjónsson, yfirmaður Egils, M.
Hrönn Ríkharðsdóttir, formaður stjórnar líknarsjóðs Ásgerðar, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri HVE, Björn Bjarki Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri Brákarhlíðar, Kjartan Kjartansson, framkvæmdastjóri Höfða, Sigurður Sigurðsson, formaður
stjórnar líknarsjóðs Egils og Salvör Lilja Brandsdóttir, yfirmaður Ásgerðar.
Gjafaskjalið skoðað. Oddfellowsystur hlýða á erindi á samkomunni.
Prúðbúnir Oddfellowbræður. Oddfellowbræður og -systur ræða málin fyrir athöfnina.
Salvör Lilja afhendir Jóhönnu Fjólu gjöfina til HVE með formlegum hætti.