Skessuhorn - 13.03.2019, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 13
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Opið hús / kynningarfundur vegna fyrirhugaðra
breytinga á skipulagi verður fimmtudaginn 14. mars
nk. frá kl. 12:30 til 17:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18.
Breyting á deiliskipulagi Æðarodda
Breytingin felst í að afmörkuð verður ný lóð með
byggingarreit fyrir reiðskemmu, norðan
aðkomuleiðar í hverfinu. Vegi syðst á skipulags-
svæðinu er breytt til samræmis.
Eftir kynningu (Opið hús) á ofangreindum skipulags-
breytingum (skipulagsgögnum) verða þau lögð fyrir
skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari
afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar
skipulagsbreytingar mun frestur til að gera athuga-
semdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Opið hús / kynningarfundur
Síðastliðinn miðvikudag var 97.
sambandsþing Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar haldið í Félags-
heimilinu Brautartungu í Lund-
arreykjadal. Framkvæmd þingsins
var í höndum gestgjafanna í Ung-
mennafélaginu Dagrenningu. Dag-
skrá þingsins var með hefðbundnu
sniði. Góðir gestir komu á þingið
og fluttu ávarp. Gunnlaugur A Júlí-
usson sveitarstjóri kom fyrir hönd
Borgarbyggðar, Hafsteinn Páls-
son frá Íþróttasambandi Íslands
og Guðmundur Sigurbergsson frá
Ungmennafélagi Íslands. Guð-
mundur heiðraði nokkra sjálfboða-
liða UMSB fyrir starf þeirra í þágu
ungmennafélagshreyfingarinnar.
Guðmundur Þorsteinsson á Skálpa-
stöðum var sæmdur gullmerki
UMFÍ fyrir starf sitt fyrir Umf. Da-
grenningu í áranna rás. Hann var
þrisvar sinnum formaður félagsins á
tímabilinu 1964 til 2011. Einnig var
hann ritari stjórnar UMSB frá 1961
til 1965. Þá voru Ásgeir Ásgeirsson,
Guðríður Ebba Pálsdóttir og Hrönn
Jónsdóttir sæmd starfsmerki UMFÍ.
„UMSB færir þessum öflugu sjálf-
boðaliðum bestu þakkir fyrir góð
störf,“ segir í frétt á vef UMSB.
Rekstur sambandsins skilaði hagn-
aði á síðasta ári og var ánægja þing-
fulltrúa með það. Fjöldi barna og
unglinga stundar skipulagt íþrótta-
starf hjá UMSB og aðildarfélögum
þeirra. Samstaða var um þær til-
lögur sem afgreiddar voru og al-
menn ánægja með gott þing. Sveit-
arfélögum á starfssvæði UMSB voru
færðar sérstakar þakkir fyrir stuðning
og samstarf á liðnu ári. „Stuðningur
þessi gerir UMSB kleift að halda úti
öflugu starfi. Alltaf má gera betur og
var samþykkt ályktun með áskorun
til Borgarbyggðar um að starfsstyrk-
ir verði hækkaðir. Einnig var lögð
fram tillaga þess efnis að endurvekja
Íþróttahátíð UMSB, sem haldin var
hér á árum áður. Hugsunin er að í
boði verði þær greinar sem stund-
aðar eru innan UMSB,“ segir á vef
sambandsins.
Kosið var í nýja stjórn ungmenna-
sambandsins. María Júlía Jónsdótt-
ir, fráfarandi sambandsstjóri, Krist-
ín Gunnarsdóttir, fráfrandi ritari og
Anna Dís Þórarinsdóttir, fráfarandi
meðstjórnandi, gáfu ekki kost á sér
til endurkjörs. Nýja stjórn UMSB
skipa; Bragi Þór Svavarsson sam-
bandsstjóri, Guðrún Þórðardótt-
ir varasambandsstjóri, Hafdís Ósk
Jónsdóttir, varavarasambandsstjóri,
Sigríður Bjarnadóttir gjaldkeri,
Bjarni Traustason ritari, Rakel Guð-
jónsdóttir meðstjórnandi, Ástríður
Guðmundsdóttir vararitari og Eyj-
ólfur Kristinn Örnólfsson varagjald-
keri.
„Framundan eru fjölbreytt, mik-
ilvæg og skemmtileg verkefni inn-
an UMSB. Meðal helstu verkefna
næstu vikur og mánuði eru Sýnum
karakter, Hreyfivika UMFÍ, útfærsla
á íþróttahátíð, undirbúningur þátt-
töku UMSB á Landsmóti UMFÍ
50+ ásamt því að undirbúa sumar-
ið. Því er óhætt að segja að nóg sé
um að vera hjá hinu 107 ára félagi
UMSB.“
kgk/ Ljósm. Sigurður
Guðmundsson.
Sambandsþing
UMSB var haldið
í síðustu viku
F.v. Kristín Gunnarsdóttir, fráfarandi
ritari, María Júlía Jónsdóttir,
fráfarandi sambandsstjóri, Sigríður
Bjarnadóttir gjaldkeri, Rakel Guðjóns-
dóttir, nýr meðstjórnandi, Bragi Þór
Sævarsson, nýr sambandsstjóri og
Bjarni Þór Traustason, nýr ritari.
Guðmundur Þorsteinsson á Skálpastöðum (t.h.) var sæmdur gullmerki UMFÍ fyrir
framlag sitt til starfs í þágu ungmennahreyfingarinnar í áranna rás. Nafni hans
Guðmundur Sigurbergsson frá UMFÍ afhendir honum merkið.
Hrönn Jónsdóttir tekur við starfsmerki UMFÍ úr hendi Guðmundar Þorbergssonar.
Guðríður Ebba Pálsdóttir var sæmd starfsmerki UMFÍ. Guðmundur Þorbergsson
frá UMFÍ afhendir henni merkið.
Fundarmenn ræða málin á 97. sambandsþingi UMSB.