Skessuhorn - 13.03.2019, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 20198
Jafnan þegar komið er fram á þenn-
an árstíma eru íslensku kartöflurn-
ar aðeins farnar að tapa bragðgæð-
um. Þó ekki þessar á meðfylgj-
andi mynd. Jón Valgeir Viggósson
á Bekansstöðum í Hvalfjarðarsveit
ræktar kartöflur í garði skammt frá
bænum. Af rælni datt Jóni nýverið
í hug að stinga gaffli niður í garð-
inn og viti menn; upp komu þess-
ar ljómandi góðu kartöflur sem
brögðuðust eins og nýjar að hausti.
Frostið hefur því ekki náð langt
niður í jörð í vetur.
ki
Með barn í
skottinu
AKRANES: Þriðjudaginn
5. mars síðastliðinn stöðv-
aði lögregla för ökumanns á
Akranesi. Reyndist hann aka
um bæinn með 12 ára barn í
skottinu. Lögregla segir slíkt
auðvitað algjörlega óviðun-
andi, aðeins eigi að aka um
með farþega í sætum bifreiða.
Athæfi sem þetta sé litið mjög
alvarlegum augum og minnir
lögregla á að há fjársekt ligg-
ur við broti af þessu tagi.
-kgk
Tveir seldu en
99 vildu kaupa
LANDIÐ: Fyrsti innlausnar-
dagur ársins á greiðslumarki í
mjólk var 1. mars. Greiðslu-
mark tveggja búa, alls um 60
þúsund lítrar, var innleyst en
99 framleiðendur lögðu inn
kauptilboð. Innlausnarvirði
greiðslumarks mjólkur er 100
krónur á lítra á þessu ári og
annast Matvælastofnun inn-
lausn þess. Samkvæmt bú-
vörusamningum, sem tóku
gildi í ársbyrjun 2017, skulu
framleiðendur sem teljast ný-
liðar eða hafa framleitt a.m.k.
10% umfram greiðslumark á
árunum 2013-2015 hafa for-
gang að kaupum 50% þess
greiðslumarks sem Matvæla-
stofnun hefur innleyst. Sá
pottur skiptist síðan jafnt á
milli forgangshópanna sam-
kvæmt reglugerð um stuðning
við nautgriparækt og skiptist
svo hlutfallslega í samræmi
við þann lítrafjölda sem ósk-
að var eftir af framleiðendum
í þeim hópum. Það greiðslu-
mark sem þá er eftir er til út-
hlutunar öðrum kaupendum
greiðslumarks og kaupend-
um í forgangshópum, að frá-
dregnu því magni sem þeir
fengu úthlutað úr forgangs-
potti. -mm
Þriðjungur yfir
hámarkshraða
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi var við hraðaeft-
irlit á tveimur stöðum í um-
dæminu í vikunni sem leið.
Fimmtudaginn 7. mars voru
lögreglumenn við mælingar
á myndavélabílnum á Borg-
arbraut í Borgarnesi. Hraði
312 ökutækja var mældur og
25 voru kærðir fyrir of hraðan
akstur. Sá sem hraðast ók fór á
85 km/klst hraða, en hámarks-
hraði á götunni er 50 km/klst.
Þá voru lögreglumenn einn-
ig við mælingar með hraða-
myndavél á Kalmansbraut á
Akranesi í vikunni. Þar var
hraði 31 ökutækis mældur og
hvorki fleiri né færri en tíu af
þessum 31 voru kærðir fyrir of
hraðan akstur, eða rúm 32%
ökumanna. Sá sem hraðast ók
var á 81 km/klst, en hámarks-
hraði á götunni er 50 km/klst.
-kgk
Allt í góðu
við skóla
AKRANES: Lögreglan á
Vesturlandi var tvisvar í síð-
ustu viku við skólaeftirlit við
Grundaskóla og Brekkubæjar-
skóla á Akranesi, annars veg-
ar á föstudag og hins vegar á
mánudag. Allt var þar til fyrir-
myndar báða dagana, að því er
fram kemur í dagbók lögregl-
unnar. Þá kemur einnig fram
að skólaball Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi, sem
haldið var á fimmtudagskvöld,
hafi farið vel fram.
-kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 2.-8. mars
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 6 bátar.
Heildarlöndun: 84.222 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 51.272
kg í fimm róðrum.
Arnarstapi: 3 bátar.
Heildarlöndun: 92.507 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 40.439 kg í fjórum róðr-
um.
Grundarfjörður: 8 bátar.
Heildarlöndun: 420.671 kg.
Mestur afli: Geir ÞH: 85.724
kg í fjórum löndunum.
Ólafsvík: 15 bátar.
Heildarlöndun: 665.004 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
101.060 kg í tíu löndunum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 943.857 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
184.407 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur: 2 bátar.
Heildarlöndun: 6.954 kg.
Mestur afli: Sjöfn SH: 4.286
kg í fimm róðrum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Tjaldur SH - RIF:
95.863 kg. 8. mars.
2. Rifsnes SH - RIF:
92.171 kg. 3. mars.
3. Tjaldur SH - RIF:
88.544 kg. 2. mars.
4. Örvar SH - RIF:
79.480 kg. 5. mars.
5. Rifsnes SH - RIF:
65.576 kg. 7. mars.
-kgk
Nýuppteknar kartöflur í byrjun mars
Umferðaróhapp varð á Kirkjubraut
á Akranesi rétt fyrir klukkan 13:00
á mánudag. Bíl var ekið af bílastæð-
inu við enda hússins að Kirkjubraut
40, í gegnum lágan steinvegg og út
á Kirkjubraut. Þaðan var bílnum
ekið yfir umferðareyjuna sem að-
skilur akbrautirnar, yfir götuna og
inn á bílastæðinu bakvið sjúkrahús-
ið á kyrrstæðan bíl sem hafði verið
lagt í stæði.
Að sögn lögreglu á vettvangi
virðist sem ökumaður hafi óvart
stigið á bensíngjöfina í stað brems-
unnar, með fyrrgreindum afleið-
ingum. Engin slys urðu á fólki að
sögn lögreglu en ökumanni bílsins
var eðlilega mjög brugðið. Tölu-
verðar skemmdir urðu á báðum bíl-
unum.
kgk
Ók yfir götu og á kyrrstæðan bíl
Frá vettvangi óhappsins. Lögreglumenn athuga með skemmdir bílsins sem ekið
var á.
Drangey SK-2 kom inn til lönd-
unar í Grundarfjarðarhöfn í fyrsta
skipti sunnudaginn 10. mars. Aflinn
var um 220 tonn og fór lítill hluti
af honum í fiskverkun Soffanías-
ar Cecilssonar hf. en megninu var
ekið á Sauðarkrók þar sem heima-
höfn skipsins er. Drangey SK-2 er
glæsilegt skip í eigu FISK Seafood.
Það er 62,5 metrar á lengd og 13,5
metrar á breidd. Drangey var smíð-
uð í Tyrklandi og kom í fyrsta skipti
til heimahafnar á Sauðárkróki í
ágúst 2017.
tfk
Drangey landaði í Grundarfirði
Sex íslensk uppsjávarveiðiskip leit-
uðu á mánudaginn vars inni á Done-
galflóa en óveður geisar nú á kol-
munnamiðunum vestur af Írlandi.
Að sögn Theódórs Þórðarsonar,
skipstjóra á Venusi NS, er veðurút-
lit slæmt og ekki horfur á að óveðr-
ið gangi niður fyrr en á föstudag.
„Það er búið að vera leiðindaveður
og það var bræla á miðunum þegar
við komum. Þrátt fyrir það náðum
við einu góðu holi, 440 tonnum, en
það var mun minni afli í næsta holi
á eftir. Eftir að veðrið versnaði var
ekki um annað að ræða en leita vars
og við komum inn á flóann í gær,
mánudag. Upphaflega ætlum við til
hafnar í Killybegs en þar var allt fullt
og því leituðum við var inni á Done-
galflóa. Í raun var ekki um annað
að ræða því auk brælunnar er sjólag
mjög slæmt þarna úti og tvö íslensku
skipanna höfðu fengið slæm brot á
sig,“ sagði Theódór í samtali við tíð-
indamann HB Granda.
Að þessu sinni var Venus að veið-
um töluvert norðar en kolmunna-
veiðarnar byrjuðu. Fiskurinn hrygn-
ir suður og suðvestur af Írlandi og
gengur svo norður í ætisleit. „Við
þekkjum lítið til veiða á kolunna á
þessum tíma enda höfum við ver-
ið á loðnuveiðum í febrúar og fram
í mars. Við höfum svo farið til kol-
munnaveiða og undanfarin tvö ár
hefur botninn dottið úr veiðunum
vestur af Írlandi 18. til 20. mars.
Vonandi verður breyting á því í ár og
við ættum að komast aftur á miðin
á fimmtudagskvöld eða á föstudag,“
sagði Theódór Þórðarson. mm
Bíða af sér óveður við Írlandsstrendur
Venus NS.