Skessuhorn - 13.03.2019, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 201910
Hreppsnefnd Skorradalshrepps
samþykkti á fundi sínum 20. febrú-
ar að auglýsa tillögu að verndarsvæði
í byggð fyrir framdalinn í Skorradal.
Í stuttu máli felur tillagan í sér að
svipmót búsetulandslags framdals-
ins verði verndað, sem og að þekk-
ingu um fornar þjóðleiðir um svæðið
verði viðhaldið.
Framtalurinn er suðaustasti hluti
Skorradalsvatns auk dalsins beggja
vegna við vatnið og tilheyrir sókn
Fitjakirkju. Ákveðið var að afmarka
verndarsvæðið við heimatún bæja
innst í dalnum þar sem svipmót land-
búnaðarlandslags fyrri tíma hefur
varðveist nokkuð vel, dreifing minja
er þétt og þekkt er talsvert af göml-
um þjóðleiðum. Verndarsvæðið af-
markast þannig af heimatúnum bæj-
anna Háafells, Fitja, Sarps, Efstabæj-
ar, Bakkakots og Vatnshorns. Vernd-
unin nær einnig til gömlu þjóðleið-
anna sem liggja um lönd bæjanna.
Í rökstuðningi segir að sérstaða
framdals Skorradals felist meðal ann-
ars í því að hann geti orðið nokkurs
konar kennslustofa um þróun byggð-
ar og búskaparhátta, um leið og hann
er kyrrlátur áfangastaður til útiveru.
Tillagan liggur frammi á skrif-
stofu Skorradalshrepps og heima-
síðu sveitarfélagins. Þeim sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta
gefst kostur á að gera formleg-
ar athugasemdir til og með 12.
apríl.
kgk/ Ljósm. úr safni/ mm.
Gera framdal Skorradals að verndarsvæði í byggð
Horft til vesturs eftir framdalnum í Skorradal. Að Fitjum.
Á vef Vegagerðarinnar var á
þriðjudaginn í síðustu viku birt
löng tilkynning sem að hluta eða
öllu leyti er svar við frétt Skessu-
horns frá 20. febrúar síðastliðnum.
Þar var rætt við Þráinn Ólafsson
slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akra-
ness og Hvalfjarðarsveitar og ítar-
lega farið yfir atvikalýsingu í kjöl-
far óhapps sem varð í Hvalfjarðar-
göngunum 12. febrúar síðastlið-
inn. Þá var bíl ekið aftan á kyrr-
stæðan bíl í ofanverðum göngun-
um norðanmegin með þeim af-
leiðingum að tveir slösuðust. Þrá-
inn gagnrýndi í viðtali við Skessu-
horn að eftirlit hefði brugðist, út-
kall sömuleiðis og að viðbúnaði
hafi verið ábótavant sökum þess
að eldsneyti lak af ökutækjum. Þá
var í fréttinni því haldið fram að
mengun í göngunum hefði aukist,
lýsing versnað og göngin væru því
ekki eins örugg og þau hafa verið.
Byggðist sú fullyrðing á ummæl-
um fjölda daglegra notenda Hval-
fjarðarganga sem sett hafa sig í
samband við ritstjórn Skessuhorns
á liðnum vikum. Tilkynningin á
vef Vegagerðarinnar í síðustu viku
virðist vera svar við þeim efnisat-
riðum sem fram komu í fréttaskýr-
ingu Skessuhorns og viðtalinu við
slökkviliðsstjórann. Í upphafi svars
Vegagerðarinnar segir: „Örygg-
ismál í Hvalfjarðargöngum eft-
ir að gjaldtöku í göngum var hætt
hafa verið í góðu standi þrátt fyrir
að vakt við annan gangamunnann
hafi verið aflögð. Öryggi má allt-
af bæta og er unnið að því af hálfu
Vegagerðarinnar. Það verður gert
jafnt og þétt eftir því sem tækni
batnar og eftir því sem aukin um-
ferð kallar á auknar kröfur. Göng-
in hafa verið þrifin mun oftar eft-
ir að Vegagerðin tók við rekstrin-
um. Lýsing og notkun blásara hef-
ur ekkert breyst. Vegagerðin mun
fylgjast vel með mengun og mistri
í göngunum, betur og meira en
gert hefur verið hingað til.“
Gerðist á
„blindu“ svæði
Í lýsingu Vegagerðarinnar um
fyrrnefndan árekstur 12. febrúar
sl. segir m.a. „Varðandi slysið þá
stöðvaði bíll á akbraut og því miður
skynjaði myndavélavöktunarkerfið
það ekki, það gaf þess vegna ekki
viðvörun. Starfsmenn Vegagerðar-
innar voru þá búnir að átta sig á
því að á þremur stuttum köflum í
göngunum þyrfti að vera styttra á
milli myndavéla til að minnka lík-
ur á að svona nokkuð komi fyrir.
Strax var ákveðið að þétta mynda-
vélarnar á þessum köflum og koma
í veg fyrir blinda kafla með því.
Myndavélar eru í pöntun.“
Endurskoðun viðbragðs-
áætlunar stendur yfir
Þá segir að verklagið sé annars
þannig að þegar vaktmaður sér bíl
stopp á vegi í göngunum er a.m.k.
þeirri akrein sem hann er á strax
lokað og kallaður út kranabíll frá
Akranesi til að draga bílinn út úr
göngunum. „Þetta gengur almennt
ágætlega þó að bíða þurfi smástund
eftir kranabílnum. Það er hins veg-
ar ekki brugðist við því á sama hátt
stoppi bíll í útskoti. Útskotin eru
til þess að bílar geti stöðvað þar
og skiptir ekki öllu máli af hverju
það er. Í slysinu 12. febrúar til-
kynnti bílstjórinn slysið til Neyðar-
línu eins og eðlilegt er. Um göng-
in er í gildi sérstök viðbragðsáætlun
frá árinu 2013 sem unnin var und-
ir stjórn Almannavarnadeildar Rík-
islögreglustjóra. Neyðarlína kallaði
út lögreglu en vissi líklega ekki um
það að eldsneyti hafði lekið á ak-
braut og kallaði því ekki út slökkvi-
lið Akraness strax, enda átti ekki
að gera það samkvæmt viðbragð-
sáætluninni. Samkvæmt henni er
slökkvilið ekki kallað út ef það er
ekki eldsneytisleki eða eldur. Það
var síðan gert þegar meiri upplýs-
ingar bárust. Þetta varðar reyndar
Vegagerðina lítið eða ekki, en hún á
þó að koma að gerð viðbragðsáætl-
ana. Vegagerðin mun í framhaldinu
leggja til að skoðað verði að alltaf ef
árekstur verður í jarðgöngum (ein-
hverjum jarðgöngum) sé kallaður
út bíll frá slökkviliði vegna sérstakr-
ar hættu af mögulegum eldsneytis-
leka í jarðgöngum. Gagnrýnt hef-
ur verið að ekki sé lengur vaktmað-
ur í gamla gjaldskýlinu. Um það
er fjallað betur hér á eftir, en það
er ljóst að það hefði engu breytt í
þessu tilviki,“ segir í tilkynningu
Vegagerðarinnar og tekið fram að
endurskoðun viðbragðsáætlunar
Hvalfjarðarganga vegna yfirtöku
Vegagerðarinnar undir verkstjórn
Ríkislögreglustjóra standi yfir. „Í
sjálfu sé þarf ekki að breyta grunni
viðbragðsáætlunarinnar en það þarf
að breyta skráðum aðilum að áætl-
uninni, sumir að fara út og aðr-
ir koma inn í staðinn. Gjaldskýlið
hafði vöktunarhlutverk sem hefur
verið fært yfir til vaktstöðvar Vega-
gerðarinnar, það er aðalbreyting-
in. Vaktstöðin hefur sömu tæki til
vöktunar og gjaldskýli hafði og get-
ur verið í beinu sambandi við vett-
vang í gegnum TETRA fjarskipta-
kerfi.“
Rykmengun
aðalvandamálið
Þá segir í tilkynningu Vegagerð-
arinnar: „20. febrúar birtist grein
í Skessuhorni af tilefni slyssins í
Hvalfjarðargöngum og er þar rætt
um öryggismál í göngunum al-
mennt og er það jákvætt. Vega-
gerðin er að vísu ekki alveg sam-
mála öllu sem kom fram, en grein-
inni lýkur á eftirfarandi hátt: „Þá
hefur mengun í göngunum auk-
ist, lýsing versnað og endurskins-
merki geri ekki sitt gagn. All-
ir draga þessir þættir úr öryggi
vegfarenda“. Í tilkynningu Vega-
gerðarinnar er farið yfir mengun í
göngunum og segir m.a.: „Meng-
unarmælar stjórna loftræstingu
en varla hefur mengun frá bílvél-
um aukist við það að Vegagerðin
hefur tekið við rekstri ganganna.
Hins vegar er mengun af völdum
ryks og það er aðalvandamálið.
Það er raunar mælt líka og mjög
mikið ryk í lofti setur fleiri blásara
í gang. Rykið er að hluta til slit úr
malbiki ganganna en berst að hluta
til inn í göngin með skítugum bíl-
um, til dæmis malarbílum og ann-
arri umferð, hlutföllin liggja ekki
fyrir. Til að minnka rykið verður
að þrífa göngin,“ segir í tilkynn-
ingunni og rakið hvenær göng-
in hafa verið þrifin frá því Spöl-
ur skilaði göngunum til ríkis-
ins. Þá segir: „Það liggja ekki fyr-
ir neinar mælingar um það hvort
mengun hefur minnkað eða auk-
ist, en það er a.m.k. ólíklegt hún
hafi aukist merkjanlega og ekki
heldur ljóst af hverju það ætti að
vera. Það er ljóst að rykmengunin
er óþægileg og leiðinleg og hættu-
leg sé hún mjög mikil. Vegagerð-
in mun reyna að minnka hana eft-
ir föngum.“
Sama lýsing
Loks segir í tilkynningu Vega-
gerðarinnar: „Það er ótrúlegt að
því sé haldið fram að lýsing hafi
minnkað, halda menn virkilega að
Vegagerðin hafi slökkt á einhverj-
um ljósum eða sett í þau minni
perur. Þetta er fjarstæða, lýsingin
er nákvæmlega eins og hún hef-
ur verið. Svo eru það endurskins-
merkin, gagnrýni á að þau geri
ekki sitt gagn. Þau verður að þvo
og svo vill til að Vegagerðin þvoði
alltaf stikur fyrir Spöl með til þess
sérútbúnum [tækjum innsk. blm.].
Aðferðafræðin er því nákvæmlega
eins og hún var. Stikur hafa ver-
ið þrifnar fjórum sinnum frá því
í haust sem er mun tíðari þrif en
áður var.“
Ætla að auka öryggi
Að lokum er í tilkynningu Vega-
gerðarinnar rakið hvað er í undir-
búningi til að auka öryggi í Hval-
fjarðargöngum.
„Myndavélum í atvikakerfinu
verður fjölgað, og um leið verður
farið yfir allt myndavélakerfið.
Bætt verður við mengunarnema
til að nema CO og NO2 til að gera
stjórnun loftræstingar öruggari.
Jafnframt verður bætt við trekk-
nema til að mæla lofthraða í göng-
unum. Það er einn slíkur mælir
núna en öruggara er að hafa tvo.
Ef bruni verður í göngunum er
mjög mikilvægt að vita sem mest
um lofthraðann eða trekkinn.
Nærri gangamunna við lok-
unarslá eru rauð blikkljós til að
stöðva umferð. Þau verða gerð
meira áberandi og sett beggja
vegna vegar, svipað og gert hefur
verið við Vaðlaheiðargöng.
Það er ekki bara hátæknibún-
aður sem skiptir máli. Vegrið við
gangaenda stenst ekki núverandi
kröfur og verður það lagfært fljót-
lega þegar sól er komin aðeins
hærra á loft, efni til þess er kom-
ið.
Allt eru þetta smáatriði en
margt smátt getur sameiginlega
skipt miklu máli. Hugmyndir eru
uppi um fleiri smærri atriði sem
mætti laga, sem ekki er vitað
hvort mönnum líst á að séu raun-
hæf eftir frekari skoðun.“
mm
Vegagerðin telur óbreytt öryggi í Hvalfjarðargöngum
Mynd sem tekin var á vettvangi slyss í göngunum 12. febrúar síðastliðinn.