Skessuhorn


Skessuhorn - 13.03.2019, Síða 14

Skessuhorn - 13.03.2019, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 201914 Kvenfélagið Gleym mér ei í Grund- arfirði hélt Góugleði síðastliðinn laugardag en félagið heldur slíka hátíð annað hvert ár og safnar um leið fyrir góðu málefni. Söfnuðu félagskonur fyrir krabbameinsdeild Landspítalans fyrir tveimur árum og voru þá keypt nokkur sjónvörp fyrir ágóðan. Að þessu sinni söfn- uðu kvenfélagskonur fyrir húsbún- aði í nýbyggingu Dvalarheimilis- ins Fellaskjóls. Tæplega 80 konur mættu á skemmtunina en það voru kvenfélagskonur sjálfar sem sáu um veislustjórn og skemmtiatriði. Boðið var upp á tískusýningar þar sem kjólar, dragtir og hattar í eigu kvenfélagskonunnar Huldu Vilmundardóttur voru til sýnis. Var elsti kjóllinn rétt tæplega hundrað ára gamall. Dregið var í happdrætti en félagskonur voru búnar að safna og gefa veglega vinninga. Seldust yfir 500 miðar og rann allur ágóði af sölu þeirra í söfninuna. Anna Aðalsteinsdóttir á Kaffi 59 sá um að elda veislumat en Eiríkur Hafdal trúbador sá um að halda uppi fjöri fram eftir nóttu. þa Kvenfélagskonur söfnuðu fyrir húsbúnaði í Fellaskjól Svipmynd af kjólasýningu úr safni Huldu Vilmundardóttur. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarð- arsveitar hélt óvænta útkallsæfingu síðastliðinn fimmtudag. Æfingin var liður í undirbúningi og þjálf- un nýliða. Áttu slökkviliðsmenn að mæta á æfingu kl. 18:00 en níu mínútum áður barst þeim út- kall um eld í vélsmiðju á Grund- artanga. Þar skíðlogaði eldur í gámi. Það sem þeir vissu hins veg- ar ekki var að þjálfararnir höfðu fyllt gáminn, sem stóð á opnu svæði, af timbri, hellt olíu yfir og kveikt í. Á leiðinni flæktu þjálfar- arnir enn um fyrir þeim, með því að tilkynna bílveltu hinum meg- in Akrafjallsins og kalla eftir því að slökkviliðsmenn kæmu með klippur. Sú tilkynning var aftur- kölluð skömmu síðar og látið sem allir hefðu komist ómeiddir út úr bílnum. Þegar komið var á staðinn beið eldur þess að verða slökktur. Slöngunni var rúllað út, talsvert langa vegalengd og síðan spraut- að á eldinn með One-seven froðu. Kveikt var aftur upp í gámnum og þá fengu menn að æfa sig á körfu- bílnum. Fóru menn upp í körf- unni og slökktu eldinn þaðan. kgk Æfðu viðbrögð við bruna í vélsmiðju Sprautað á eldinn úr körfunni. Slökkviliðsmennirnir mættir á staðinn. Staðan tekin. Slökkviliðsmenn ræða málin á æfingunni. Eldurinn slökktur með One-seven froðunni. Æfingastjórarnir fylgjast með vinnubrögðum sinna manna. Verið að undirbúa æfingu við slökkvistarf með körfubílnum. Verslun Olís í Stykkishólmi verð- ur lokað á næstunni. Gunnar Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Olís á Vesturlandi, staðfestir þetta í sam- tali við Skessuhorn. Gunnar seg- ir mikla eftirsjá af verslun Olís í Stykkishólmi, enda er þar með að ljúka áratugalöngum verslun- arrekstri Olís í Hólminum. „Ég persónulega sé mikið eftir stöð- inni í Stykkishólmi, mér þykir hún hafa verið flaggskip fyrirtækisins á Snæfellsnesi. Olís hefur mjög lengi verið með rekstur í Hólm- inum en nú er ekkert eftir nema bátabryggjan,“ segir Gunnar. Hann segir lokun stöðvarinnar í Hólminum gerða að kröfu kröfu Samkeppniseftirlitsins í kjölfar sameiningar Olís og Haga síð- astliðið haust. Lokunin hafi ver- ið einn liður í samkomulagi sem gera þurfti til að sú sameining gæti gengið eftir. „Ég skil ekki þessar ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins, hvorki núna né þegar fyrri upp- stokkun var gerð sem leiddi til þess að Olís var gert að selja stöð- ina í Ólafsvík. Þá var talið nóg fyr- ir okkur að vera með stöð í Hólm- inum. Mér finnst þetta ekki traust- vekjandi aðgerðir, hvorki fyrri að- gerð né þessi núna,“ segir Gunn- ar. Framkvæmdastjórinn kveðst ekki geta sagt nákvæmlega til um hvenær versluninni verður lokað. Ekki sé búið að fastsetja dagsetningu, en þó sé ljóst að það verði mjög fljótlega. Stundin hefur sagt frá því að Sig- urður Pálmi Sigurbjörnsson hafi keypt húsið sem hýst hefur versl- un Olís í Stykkishólmi. Hann opn- aði nýverið verslun undir merkjum Super1 í Reykjavík og samkvæmt heimildum Skessuhorns verður Su- per1 verslun opnuð í Stykkishólmi á næstunni. kgk Verslun Olís í Stykkishólmi lokað

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.