Skessuhorn


Skessuhorn - 13.03.2019, Page 25

Skessuhorn - 13.03.2019, Page 25
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 25 Hljómsveit Unnar Birnu og Björns Thoroddsens blæs til tónleika á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi annað kvöld, fimmtudaginn 14. mars kl. 20:30. Tónleikarnir eru liður í dagskrá Írskra vetrardaga sem hefjast sama dag. Unnur Birna Bassadóttir fiðluleikari og söng- kona og Björn Thoroddsen gítar- leikari eru á ferð um landið ásamt Sigurgeiri Skafta Flosasyni bassa- leikara og Skúla Gíslasyni tromm- ara. Núverið héldu þau tónleika fyrir fullu húsi í Midgard á Hvols- velli og Skyrgerðinni í Hveragerði við frábærar undirtektir. Tónleikarnir eru mjög fjöl- breyttir, þar sem hljómsveitin flyt- ur lög úr ýmsum áttum og ýms- um stílum, allt frá Jimi Hendrix og Jethro Tull til Django Reinhardt, auk frumsamdra laga. Auk þess að segja skemmtilegar sögur leika þau listir sínar á hljóðfærin af mikilli snilld. Enginn ætti að láta þennan viðburð framhjá sér fara. Áhuga- sömum er bent á að miðasala er á www.midi.is. -tilkynning Tónleikar á Gamla Kaupfélaginu annað kvöld Kristjana Helga Ólafsdóttir, eig- andi Grósku garðvöruverslunar á Akranesi, hefur sett verslunina á sölu og hyggst nú snúa sér að öðrum störfum. Kristjana opnaði verslunina fyrst í október 2015 en nú segist hún hafa fundið sig betur í öðrum störfum. „Ég er að sjá um bókhald fyrir fyrirtæki og langar að einbeita mér meira að því, auk þess sem ég er í tímabundnu starfi hjá Akraneskaupstað núna,“ seg- ir Kristjana í samtali við Skessu- horn. „Það hefur margt breyst í versluninni frá því ég opnaði hana fyrst. Upphaflega var þetta garð- vöruverslun en hún hefur svo þró- ast meira út í blóma- og gjafavöru- verslun. Ég finn að það sé meira það sem Skagamenn vilja sjá en það er ekki endilega það svið sem ég kann best. Ég er því bara núna að leita að þeim einstaklingi sem er færari á þessu sviði en ég og vill taka við og fara með Grósku eins langt og mögulega er hægt,“ segir Kristjana. arg Gróska sett á sölu Þessa dagana er Landgræðslan á fundaferðalagi um Vesturland. Um er að ræða kynningar- og sam- ráðsfundi um verkefnið GróLind. Markmið verkefnisins er að skila með reglubundnum hætti heildar- mati á ástandi gróður- og jarðvegs- auðlinda landsins og gera grein fyr- ir breytingum þar á, sem og að þróa sjálfbærnivísa fyrir nýtingu þess- ara auðlinda. „Íslensk þurrlendis- vistkerfi veita fjölbreytta þjónustu; þau eru grundvöllur margs konar atvinnustarfsemi, draga úr áhrif- um náttúruhamfara og miðla okkur neysluvatni. Við allan atvinnurekst- ur þar sem gæði landsins eru nýtt, svo sem við hefðbundinn landbún- að eða ferðaþjónustu er mikilvægt að góð þekking á gróður- og jarð- vegsauðlindum landsins sé til stað- ar. Því þurfa upplýsingar um ástand lands og breytingar á því að liggja fyrir á hverjum tíma, svo unnt sé að tryggja sjálfbæra nýtingu,“ seg- ir um verkefnið á heimasíðu Land- græðslunnar. Kynningar- og samráðsfundirn- ir verða haldnir í Búðardal, Borg- arfirði og á Snæfellsnesi. Fjallað verður um aðferðafræði verkefn- isins, svo sem ástandsmat, þróun sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu, kortalagningu beitilanda, könnun á beitaratferli sauðfjár og samstarf við landsnotendur. Fyrsti fundur- inn í landshlutanum var haldinn í Félagsheimilinu Dalabúð í Búðar- dal í gærkvöldi. Annar fundurinn verður í kvöld, miðvikudaginn 13. mars kl. 20:00, í Félagsheimilinu Valfelli í Borgarhreppi og sá þriðji verður í Félagsheimilinu Lindar- tungu í Kolbeinsstaðahreppi ann- að kvöld, fimmtudaginn 14. mars kl. 20:00. Fundirnir eru öllum opnir og Landgræðslan hvetur alla til að mæta og taka þátt í þróun verkefn- isins. kgk Kynningarfundir um verkefnið GróLind Stjórn Knattspyrnusambands Ís- lands ákvað á fundi sínum 20. febrú- ar síðastliðinn að ársþing KSÍ árið 2020 verði haldið í Ólafsvík. Vík- ingur Ólafsvík hafði áður lýst yfir vilja til að halda ársþingið og ákvað stjórn KSÍ að það skyldi haldið í Ólafsvík. Jafnframt var ákveðið að halda stjórnarfund á Ísafirði í sum- ar og stefnt að því að ársþingið 2023 verði haldið vestur á Ísafirði, en Vestri hafði einng lýst sig tilbúinn að halda ársþingið á næsta ári. Ársþing KSÍ var síðast haldið utan Reykjavíkur árið 2017, þegar það var í Vestmannaeyjum og þar áður á Ak- ureyri 2014 og var það í fyrsta sinn í nærri áratug sem það var haldið utan höfuðborgarinnar. „Það er mikil viðurkenning fyrir sveitarfélagið að fá ársþing KSÍ í bæinn og verður ánægjulegt að taka á móti kjörgeng- um fulltrúum aðildarfélaga KSÍ frá öllum landshornum í Félagsheim- ilinu Klifi í febrúar næstkomandi,“ segir á heimasíðu Snæfellsbæjar. kgk Ársþing KSÍ verður í Ólafsvík á næsta ári Stuðningsmenn Víkings Ó. fylgjast með á pöllunum. Ljósm. KSÍ. Í ár er sú nýbreytni tekin upp í Grunnskóla Grundarfjarðar að boðið er upp á kínversku sem val- grein á unglingastigi. Nemendur tóku þessari nýjung vel og eru nú sex þeirra sem þreyta kínverskunám undir handleiðslu Alexöndru Suk- hova. Nemendur læra hvort tveggja tungumálið og tákn. Fyrstu tímar eru búnir og heyra má að nemend- ur séu mjög ánægðir með framtak- ið og því aldrei að vita nema heyra megi kínverskt mál á göngum skól- ans innan skamms, segir í frétt frá skólanum. mm Grunnskólanemendur læra kínversku Brunakerfið í Fjölbrautaskóla Snæ- fellinga fór í gang rétt eftir hádegið í gær, þriðjudag. Þá upphófst rým- ing skólans eins og oft hefur verið æfð og sýndu nemendur og starfs- fólk skólans fumlaust viðbragð og innan þriggja mínútna var búið að rýma skólann og safna öllum sam- an á fyrirfram ákveðnu söfnunar- svæði. Eftir æfinguna fóru þeir Val- geir Magnússon slökkviliðsstjóri og Ólafur Tryggvason, umsjónamað- ur fasteignarinnar, yfir rýminguna, um það sem betur mætti fara og það sem tókst vel til. Það er al- veg bráðnauðsynlegt að allir standi klárir á sínu og viti hvað á að gera ef að brunaboðunarkerfið fer í gang og því gott að rifja viðbragðið upp með svona æfingu. fk Rýmingaræfing í FSN

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.