Skessuhorn


Skessuhorn - 13.03.2019, Side 29

Skessuhorn - 13.03.2019, Side 29
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 2019 29 Snæfellsbær - miðvikudagur 13. mars Heilsuvika stendur yfir í Snæfellsbæ fram á föstudag. Fjölbreytt dagskrá með heilsutengdum viðburðum. Ítarlega dagskrá heilsvikunnar má sjá í síðasta tölublaði Skessuhorns eða á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is. Stykkishólmur - miðvikdagur 13. mars Snæfellskonur mæta KR í stórleik í Domio‘s deild kvenna í körfuknattleik. Mikilvægur leikur í baráttunni um 4. sætið í deildinni og þar með sæti í úrslitakeppninni. Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Borgarbyggð - miðvikudagur 13. mars Opinn fundur GróLindar í félagsheimilinu Valfelli kl. 20:00. Fjallað verður um aðferðafræði verkefnisins GróLindar, m.a. ástandsmat, þróun sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu, kortlagningu beitilanda, könnun á beitarferli sauðfjár og samstarf við landnotendur. Héraðsfulltrúar verða á svæðinu og halda stutt erindi um önnur verkefni. Grundarfjörður - fimmtudagur 14. mars Stóra upplestrarkeppnin verður haldin í Grundarfjarðarkirkju kl. 18:00. Borgarbyggð - fimmtudagur 14. mars Opinn fundur GróLindar í félagsheimilinu Lindartungu kl. 20:00. Fjallað verður um aðferðafræði verkefnisins GróLindar, m.a. ástandsmat, þróun sjálfbærnivísa fyrir landnýtingu, kortlagningu beitilanda, könnun á beitarferli sauðfjár og samstarf við landnotendur. Héraðsfulltrúar verða á svæðinu og halda stutt erindi um önnur verkefni. Akranes - fimmtudagur 14. mars Menningarhátíðin Írskir vetrardagar hefst á Akranesi og stendur fram til sunnudagsins 17. mars. Fjölbreytt dagskrá og fjöldi viðburða um allan bæ. Ítarlega dagskrá Írskra vetrardaga er að finna í auglýsingu í Skessuhorni vikunnar. Borgarbyggð - fimmtudagur 14. mars Myndamorgunn í Safnahúsi Borgarfjarðar kl. 10:00 til 11:30. Gestir aðstoða við að greina ljósmyndir úr skjalasafni. Akranes - fimmtudagur 14. mars Nótutónleikar Tónlistarskólans á Akranesi í Tónbergi kl. 18:00. Nemendur flytja fjölbreytta efnisskrá fyrir píanó, flautu, harmonikku og söng. Á tónleikunum mun dómnefnd auk þess velja þau atriði sem fara á fram á Vesturlans- og Vestfjarðanótuna sem haldin verður í Borgarnesi 23. mars. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Borgarbyggð - fimmtudagur 14. mars Fyrirlestur um Þorstein frá Hamri í Safnahúsi Borgarfjarðar kl. 20:30. Ástráður Eysteinsson prófessor flytur erindi um skáldið. Sjá nánar á www.safnahus.is. Akranes - fimmtudagur 14. mars Tónleikar á Gamla Kaupfélaginu kl. 20:30. Unnur Birna Bassadóttir, fiðluleikari og söngkona og Björn Thoroddsen gítarleikari koma fram ásamt Skúla Gíslasyni trommara og Sigurgeiri Skafta Flosasyni bassaleikara. Sjá nánar frétt í Skessuhorni vikunnar. Akranes - föstudagur 15. mars Opnun sýningarinnar Spáðu í bolla í Leirbakaríinu við Suðurgötu á Akranesi kl. 17:30. Borgarbyggð - föstudagur 15. mars Félagsvist í hátíðarsalnum í Brákarhlíð kl. 20:00. Fyrsta kvöldið í þriggja kvölda keppni, sem dreifist á fjögur kvöld. Góð kvöld- og lokaverðlaun. Veitingar í hléi. Allir velkomnir. Borgarbyggð - laugardagur 16. mars Opnun myndlistasýningar Josefinu Morell í Safnahúsi Borgarfjarðar kl. 16:00. Sjá nánar á www.safnahus.is. Akranes - sunnudagur 17. mars Tónleikar Landsmóts barna- og unglingakóra í Grundaskóla kl. 13:30, en eldri hópur Skólakórs Grundaskóla er gestgjafi landsmótsins sem fram fer helgina 15.-17. mars. Á sunnudaginn verða tónleikar á sal skólans þar sem afrakstur vikunnar verður fluttur. Á efnisskrá tónleikanna eru m.a. lög og textar eftir Svein Arnar Sæmundsson, organista Akraneskirkju og Valgerði Jónsdóttur, stjórnanda Skólakórs Grundaskóla. Þá verður frumflutt tónverkið Fögnuður eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, en það var samið sérstaklega fyrir mótið. Borgarbyggð - sunnudagur 17. mars Njála Bjarna Harðarsonar á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi kl. 16:00. Var Njáll á Bergþórshvoli byltingarleiðtogi og Gunnar vinur hans á Hlíðarenda lágvaxinn og heyrnarsljór írskur prins? Bjarni Harðarson rithöfundur fjallar um kynþáttaóeirðir í fjölmenningarsamfélagi 10. aldar og hlutverk þeirra í átökum og atburðarás Njálu. Miðaverð kr. 3.500. Miðasala og nánari upplýsingar á www.landnam.is Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni 9. mars. Stúlka. Þyngd: 2.750 gr. Lengd: 48 cm. Foreldrar: Kristjana Björg Karlsdóttir og Kristinn Samúel Guðmundsson, Kleppjárnsreykjum. Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir. Stúlkan hefur fengið nafnið Dagbjört Ylfa. Herbergi til leigu Er með herbergi til leigu í Borgarnesi með aðgangi að eldhúsi. Frekari upplýsingar í síma 846-3816, Hilmar. Marshall hátalarabox Til sölu Marshall 1960A, 4×12, 300W hátalarabox. Framleitt á Englandi í júní 2006. Einstaka rispur eins og gengur og gerist. Ekki mikið notað en auðvitað eitthvað. Gæðagripur sem hefur alltaf reynst vel. Ásett verð er kr. 70 þús. Áhugasamir hafi samband á kristjangauti@ gmail.com. Markaðstorg Vesturlands TIL SÖLU LEIGUMARKAÐUR 7. mars. Drengur. Þyngd: 3.486 gr. Lengd: 48 cm. Foreldrar: Svanlaug Nína Sigurðardóttir og Ottó Veturliði Birgisson, Akranesi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir. 7. mars. Stúlka. Þyngd: 4.086 gr. Lengd: 51,5 cm. Foreldrar: Elsa Þorbjarnardóttir og Guðmundur Freyr Kristbergsson, Borgarfirði. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir. 9. mars. Stúlka. Þyngd: 3.762 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: María Dís Einarsdóttir og Guðmundur Bjarni Björnsson, Akranesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles. Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.