Skessuhorn - 20.03.2019, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 20192
Vert er að minna á að Bókahátíðin Júlíana
verður haldin í Stykkishólmi frá fimmtudegi
til sunnudags. Nemendafélag Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi er einnig að
hefja sýningar á söngleiknum Rock of Ages á
föstudaginn í Bíóhöllinni og önnur leikfélög
eru í gangi með sýningar. Það er því margt
um að vera í menningarlandinu Vesturlandi.
Á morgun er spáð suðvestanátt 18-23 m/s
norðvestanlands og á annesjum norðaust-
anlands en lægir með morgninum. Annars
víða 8-15 m/s. Éljagangur en bjart norðaust-
anlands. Hiti um og yfir frostmarki að deg-
inum en vægt frost í innsveitum á Norður-
landi. Á föstudag er útlit fyrir suðlæga átt 3-8
m/s og dálítil él en þurrt að kalla á Norður-
landi. Gengur í vestanátt 8-15 m/s með élj-
um vestanlands seinnipartinn og um kvöld-
ið. Hiti í kringum frostmark yfir hádaginn. Á
laugardag er spáð suðvestanátt 8-15 m/s
með éljum eða snjókomu en þurrt norðaust-
anlands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag snýst
í norðvestanátt með snjókomu eða éljum á
Norður- og Austurlandi en léttir til sunnan-
og vestanlands. Frost 0-5 stig. Á mánudag
er spáð suðlægri átt. Þykknar upp sunnan-
og vestanlands með dálítilli vætu, en léttir til
norðaustanlands. Hlýnandi veður.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
hvort lesendur hafi prófað sykur- og kolvet-
naskert fæði eins og til dæmis Ketó. 55%
svarenda sögðust aldrei hafa prófað slíkt
mataræði, 27% svarenda hafa prófað slíkt
mataræði og líkar það vel. 10% segjast hafa
prófað en hætt og 8% svöruðu því að hafa
ekki prófað en langaði að gera það.
Í næstu viku er spurt:
Hvaða þingmanni í Norðvesturkjördæmi
treystir þú best?
Fjölskyldan í Fljótstungu í Borgarfirði stund-
ar ferðaþjónustu af miklum myndarbrag og
hefur síðustu ár lyft grettistaki í uppbygg-
ingu. Hún hefur gert hellinn Víðgelmi að-
gengilegan og hafa í kringum hann byggt
upp glæsilega ferðaþjónstu. Rætt er við fjöl-
skylduna í Skessuhorni vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Vilja efla
varnargirðingar
BORGARFJ: Aðalfundur Fé-
lags sauðfjárbænda í Borg-
arfjarðarhéraði var haldinn í
Þinghamri 6. mars síðastlið-
inn. Þar var samþykkt að beina
því til stjórnar Landssambands
sauðfjárbænda að setttur verði
þrýstingur á atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið að efla
og styrkja varnarlínur búfjár-
sjúkdóma í ljósi þeirrar stöðu
sem komin er upp vegna frum-
varps til laga um innflutning á
fersku kjöti, eggjum og ógeril-
sneyddri mjólk. Í greinargerð
með ályktunni er sérstaklega
bent á að Kristján Þór Júlíus-
son landbúnaðarráðherra hafði
sagt það í yfir 100 votta við-
urvist á fundi á Hótel Hamri
tveimur dögum áður að slíkt
hlyti að vera auðsótt mál. -mm
Samfelldur af-
greiðslutími
þjónustuvers
AKRANES: Bæjarráð Akra-
neskaupstaðar samþykkti ný-
verið að breyta opnunar-
tíma þjónustuvers bæjarskrif-
stofunnar við Stillholt 16-18.
Breytingin tók gildi síðastlið-
inn mánudag og verður út þetta
ár. Nú er opið mánudaga til
fimmtudaga frá klukkan 9-15
en á föstudögum klukkan 9-14.
Fram til þessa hefur opnunar-
tíminn verið kl. 9:30-12:00 og
12:30-15:30 alla virka daga og
því lokað í hálftíma í hádeginu.
Breyting þessi verður fyrst um
sinn tilraun þetta ár, en fyrir
næstu áramót verður opnunar-
tíminn endurmetinn og fram-
tíðarákvörðun tekin miðað við
reynslu af breytingunni. -mm
Samningur um
gagnkvæmar
veiðar
LANDIÐ: Kristján Þór Júlí-
usson og Högni Hoydal, sjáv-
arútvegsráðherrar Íslands og
Færeyja, hafa náð samkomulagi
um fiskveiðisamning á milli Ís-
lands og Færeyja. Samning-
urinn felur í sér endurnýjun á
samningi frá 2018 sem veitir
Íslandi aðgang að lögsögu Fær-
eyja til að veiða kolmunna og
norsk-íslenska síld og samhliða
fá Færeyjar aðgang að lögsögu
Íslands fyrir sömu tegundir. Ís-
land fær 1.300 tonn af makríl
frá Færeyjum og Færeyjar fá
5.600 tonn af bolfiski og allt að
30 þúsund tonn af loðnu frá Ís-
landi háð því að loðna finnist
í veiðanlegu magni í lögsögu
Íslands. Samkomulagið gildir
fyrir árin 2019 og 2020. Jafn-
framt sammæltust ráðherrarn-
ir um að halda áfram vinnu að
gerð rammasamnings um fisk-
veiðisamstarf þjóðanna og til-
nefna hvor um sig sérfræðinga
til að meta verðmæti aflaheim-
ilda og aðgangs sem nýtist við
gerð fiskveiðisamnings þjóð-
anna. Gert er ráð fyrir að þess-
ari vinnu verði lokið um mitt
ár 2020. Ljósm. Jóanis Niel-
sen. -mm
Á hverju ári fyrir fyrstu fermingar-
athafnir hefur Skessuhorn birt lista
yfir nöfn væntanlegra fermingar-
barna í landshlutanum. Samkvæmt
persónuverndarlögum sem tóku
gildi síðasta sumar er óheimilt að
birta nöfn fermingarbarnanna án
skriflegs leyfis foreldris. Ekki hef-
ur náðst að fá undirskriftir allra for-
eldra og hefur ritstjórn því ákeðið
að birta ekki nöfn fermingarbarna á
Vesturlandi að þessu sinni.
„Við vorum einfaldlega ekki nógu
vel undirbúin fyrir þetta og byrjuð-
um of seint að fá undirskriftir til að
geta birt lista yfir nöfn fermingar-
barnanna,“ segir Þráinn Haralds-
son, sóknarprestur á Akranesi, í
samtali við Skessuhorn. „Þessi lög
eru bara svo ný og við vorum ekki
búin að gera okkur grein fyrir þess-
ari breytingu tímanlega en næst
held ég að við biðjum um undir-
skrift fyrir nafnbirtingu strax um
haustið,“ bætir Þráinn við. Spurð-
ur hvort nýju persónuverndarlög-
in hafi einhver áhrif á fleiri þætti
fermingarundirbúnings segir Þrá-
inn myndbirtingu á samfélagsmiðl-
um úr kirkjuathöfnum einnig vera
óheimilar.
Þráinn segist ekki hafa neinar sér-
stakar áhyggjur af því að ekki megi
lengur birta lista yfir nöfn ferming-
arbarna, en segir það bara fyrst og
fremst leiðinlegt fyrir fermingar-
börnin sjálf. „Ég hef það á tilfinn-
ingunni að þetta séu lög sem væru
kannski skiljanleg í stórborgarsam-
félagi, en ekki í svona litlu samfé-
lagi eins og okkar hér á Akranesi.
Hér er það tæpast leyndarmál
hverjir eru að fermast. En að sama
skapi skil ég hina hliðina líka. Fólk
á að sjálfsögðu að geta tekið þátt í
starfi eins og kirkjustarfi án þess að
það sé auglýst,“ segir Þráinn. „Við
gætum þess bara betur næst að vera
tímanlega að fá undirskriftir.“
arg
Nöfn fermingarbarna má ekki
birta án upplýsts samþykkis
Stefnt er að því að fella sements-
strompinn á Akranesi á hádegi á
morgun, fimmtudaginn 21. mars
klukkan 12:15. Miðast sú tímasetn-
ing við að framvinda við undirbún-
ing gangi eftir. Ef undirbúningurinn
gengur ekki eftir eins og áætlað er,
þá verður fellingu strompsins frest-
að. Ný dagsetning verður þá auglýst
á heimasíðu Akraneskaupstaðar með
sólarhrings fyrirvara.
Strompurinn verður sprengdur
í tvennu lagi. Annars vegar verður
sprengt í um 25 metra hæð og fjór-
um sekúndum síðar verður sprengt
við rætur strompsins. Efri hlutinn
verður látinn falla til suðausturs, en
neðri hlutinn í suðvesturátt. Gefið
verður út hljóðmerki rétt fyrir fell-
inguna, sem aðvörun um að sprengt
verði innan nokkurra mínútna. Þeg-
ar strompurinn er fallinn verður gef-
Stefna á að fella strompinn á hádegi á morgun
ið út annað hljóðmerki, til marks um
að fellingin sé yfirstaðin og öll hætta
liðin hjá.
Það er fyrirtækið Work North ehf.
sem annast niðurrif á byggingum og
búnaði Sementsverksmiðjunnar sál-
ugu á Akranesi. Felling strompsins er
unnin í fullu samráði við undirverk-
takann Dansk Sprænging Service,
sem veitir sérfræðiaðstoð, skipu-
leggur fellinguna og mun stýra þeirri
framkvæmd.
160 metra öryggissvæði
Töluverður viðbúnaður verður á
Akranesi vegna fellingar strompsins.
Sunnubraut, Merkigerði og Suður-
götu verður lokað um hálfri til einni
klukkustund áður en sprengt verður
en Faxabraut verður lokað strax að
morgni dags. Öryggissvæði við fell-
ingu strompsins verður í 160 metrar
radíus umhverfis strompinn. Innan
þess svæðis má engin manneskja vera
óvarin. Íbúar í nokkrum húsum við
Suðurgötu verða beðnir að yfirgefa
hús sín. Íbúar húsa innan þess svæðis,
sem ekki verða beðnir að yfirgefa hús
sín, verða beðnir um að vera í skjóli
frá gluggum þegar sprengt verður.
Hættan við aðgerð sem þessa er sú
að það verði frákast, það er að segja
að steinar fljúgi þegar skorsteinninn
fellur. „Öryggisráðstafanir miðast
m.a. við að eitthvað gæti farið öðru-
vísi en ætlað er. Umfram allt er það
öryggi allra við þessa aðgerð sem
skiptir mestu máli. Björgunarfélag
Akraness og Lögreglan á Vesturlandi
munu aðstoða við lokanir og eftirlit
á svæðinu. Settir verða upp mælar til
að mæla titring frá fallinu. Íbúar og
vegfarendur eru beðnir um að virða
öryggisreglur við fellingu skorsteins-
ins og einnig að hafa gætur á gælu-
dýrum,“ segir í tilkynningu frá Akra-
neskaupstað. kgk
Sementsstrompurinn hefur verið eitt helsta kennileiti Akraness undanfarna
áratugi.
Í síðustu viku var brotið úr strompnum við rætur hans til að hægt verði að koma
fyrir sprengihleðslu. Hann verður sprengdur í tvennu lagi, fyrst springur í um 25
metra hæð og fjórum sekúndum síðar við rætur hans.
Öryggissvæðið vegna fellingu strompsins er merkt með grænum hring á
myndinni, í 160 metra radíus í kringum strompinn. Svartur hringur táknar
áhrifasvæði skortsteinsins, skyldi hann falla í heilu lagi. Bleikir blettir tákna svæði
fyrir áhorfendur. Teikning: Akraneskaupstaður.