Skessuhorn - 20.03.2019, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 20. MARS 20198
Undirbúa fell-
ingu strompsins
AKRANES: Að morgni laug-
ardags fóru menn upp í Sem-
entsstrompinn á Akranesi
í heimildarleysi og í óþökk
verktaka. Klifruðu þeir upp á
strompinn þar sem þeir tóku
ljósmyndir og sigu síðan niður
til jarðar aftur. Eins og greint
er frá í frétt á bls. 2 er stefnt að
því að fella strompinn á morg-
un, fimmtudaginn 21. mars.
Að sögn lögreglu er felling
strompsins stóra verkefnið í
vikunni. Unnið er náið með
bæjaryfirvöldum og björgun-
arsveit í aðdraganda viðburð-
arins og verður lögregla með
töluverðan viðbúnað þeg-
ar sprengt verður. Ákveðnum
svæðum og götum á Akranesi
verður lokað og hús í grennd-
inni verða rýmd. Gætt verður
fyllsta öryggis í einu og öllu,
verði af fellingu strompsins á
morgun, en það ræðst meðal
annars af veðri. -kgk
Suðurnesjamenn
sameinast VR
LANDIÐ: Félagsmenn í
Verslunarmannafélagi Suð-
urnesja (VS) samþykktu í at-
kvæðagreiðslu sem lauk í síð-
ustu viku að sameina félagið
VR. Til að sameining yrði
samþykkt þurfti samþykki
a.m.k. 2/3 hluta greiddra at-
kvæða fullgildra félagsmanna
VS. Niðurstaðan var sú að
82,54% félagsmanna VS sem
þátt tóku í kosningunni sam-
þykktu sameiningu en 17,14%
voru henni mótfallin. VS mun
því sameinast undir nafni og
kennitölu VR frá og með 1.
apríl 2019 að því gefnu að
sameining verði samþykkt af
hálfu VR á aðalfundi félagsins
27. mars nk. -mm
Opnað fyrir um-
sóknir um líf-
lambaflutning
LANDIÐ: Matvælastofnun
hefur opnað fyrir umsókn-
ir til líflambaflutninga í Þjón-
ustugátt stofnunarinnar. Um-
sóknarfrestur er til 1. júlí. Til
þess að hefta útbreiðslu smit-
sjúkdóma í búfénaði og stuðla
að útrýmingu sjúkdóma er
óheimilt að flytja sauðfé, geit-
ur og nautgripi yfir varnarlín-
ur nema með leyfi frá Mat-
vælastofnun. Þá er einn-
ig bannað að flytja sauðfé og
geitur milli hjarða á svæð-
um þar sem riða er landlæg
og hefur greinst undanfarin
20 ár. Þessi svokölluðu sýktu
svæði eru eftirtalin varnarhólf
og svæði: Vatnsneshólf, Húna-
og Skagahólf, Skjálfandahólf
nema Skútustaðahreppur,
Engidalur, Lundarbrekka og
bæir þar fyrir sunnan, Suður-
fjarðahólf, Hreppa-, Skeiða-
og Flóahólf og Biskupstungn-
ahólf. Auk þess er Dalvíkur-
byggð norðan Hámundar-
staða sýkt svæði í Tröllaskaga-
hólfi og Sveitarfélögin Ölf-
us, Hveragerði og Árborg og
Grafningur í Grímsnes- og
Grafningshreppi í Landnáms-
hólfi. Í dag eru fjögur varnar-
hólf á landinu sem eru skil-
greind sem líflambasöluhólf
en það eru Snæfellsneshólf,
Vestfjarðahólf eystra, N-Þing-
eyjarsýsluhluti Norðaustur-
hólfs og Öræfahólf. -mm
Árekstur
BORGARFJ: Umferðaró-
happ varð á fimmtudag við
útsýnissvæðið við Fossatún í
Borgarfirði. Um minniháttar
árekstur var að ræða þar sem
enginn meiddist og bifreið-
arnar skemmdust lítið.
-kgk
Nýr upplýsinga-
fulltrúi félags-
málaráðuneytis
RVK: Vera Einarsdóttir hefur
verið ráðin upplýsingafulltrúi
félagsmálaráðuneytisins. Vera
er félagsráðgjafi að mennt en
hefur lengst af starfað sem
blaðamaður og ritstjóri. Hón
hóf störf sem blaðamaður á
Fréttablaðinu árið 2007. Þá
leiddi hún sérblaða- og kynn-
ingardeild Fréttablaðsins frá
árinu 2012 til 2017. Auk þess
hefur Vera starfað sem ver-
katki hjá Barnavernd Reykja-
víkur. -kgk
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 9.-15. mars
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes: 11 bátar.
Heildarlöndun: 51.589 kg.
Mestur afli: Eskey ÓF: 22.988
kg í fjórum róðrum.
Arnarstapi: 2 bátar.
Heildarlöndun: 42.137 kg.
Mestur afli: Álfur SH: 21.913
kg í fjórum róðrum.
Grundarfjörður: 12 bátar.
Heildarlöndun: 905.357 kg.
Mestur afli: Drangey SK:
221.618 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 22 bátar.
Heildarlöndun: 913.443 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
131.790 kg í tólf róðrum.
Rif: 16 bátar.
Heildarlöndun: 766.130 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
112.128 kg í fjórum löndun-
um.
Stykkishólmur: 3 bátar.
Heildarlöndun: 10.537 kg.
Mestur afli: Kristborg SH:
6.303 kg í fjórum róðrum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Drangey SK - GRU:
221.618 kg. 10. mars.
2. Málmey SK - GRU:
203.266 kg. 13. mars.
3. Tjaldur SH - RIF:
90.551 kg. 12. mars.
4. Örvar SH - RIF:
69.796 kg. 11. mars.
5. Hringur SH - GRU:
65.784 kg. 13. mars.
-kgk
Ferðamenn í Leifsstöð voru ríf-
lega 132 þúsund í febrúar og fækk-
aði um 8% samanborið við febrú-
ar 2018. Í skammtímahagvísi ferða-
þjónustunnar sem Hagstofan gef-
ur út kemur fram að talið er að sú
fækkun sem varð á erlendum far-
þegum í gegnum Keflavíkurflugvöll
á fyrstu tveimur mánuðum þessa
árs megi eingöngu rekja til fækkun-
ar ferðamanna. Reiknað er með að
sjálftengifarþegum og dagsferða-
mönnum hafi fækkað í sama hlut-
falli og ferðamönnum. Í skamm-
tímahagvísinum kemur einnig fram
að verulega dregur úr nýtingu gisti-
rýmis á Austurlandi í febrúar og lít-
ilsháttar fækkun varð sömuleiðis
á höfuðborgarsvæðinu. Hins veg-
ar mælist veruleg aukning gisting-
ar á vestanverðu landinu og er hún
sú mesta á landinu, eða 27% á síð-
ustu tólf mánuðum. Sömu sögu er
að segja að umferð um þjóðveg-
ina samkvæmt talningu Vegagerð-
arinnar á 14 stöðum á landinu. Á
Vesturlandi óku að jafnaði 10.765
bílar á dag í febrúar, en þeir voru
8.808 í febrúar fyrir ári. Aukningin
nemur 22% milli ára.
mm
Ferðamönnum fjölgaði
mest á Vesturlandi
Myndin sýnir 12 mánaða breytingu í nýtingu gistirýmis fyrir tímabilið febrúar
2018 til janúar 2019 borið saman við sama tímabil árið áður. Heimild: Hagstofa
Íslands.
Fulltrúar Framsóknarflokksins í
sveitarstjórn Borgarbyggðar lögðu
það til á fundi síðastliðinn fimmtu-
dag að lögð verði áherslu á að skól-
ar sveitarfélagsins eigi að vera sá
vettvangur þar sem börn og ung-
lingar eiga félagsleg samskipti sín
á milli án truflana frá símtækjum.
„Vísbendingar eru um að snjall-
símtæki geti haft neikvæð áhrif á
athygli, þroska og andlega heilsu
barna og ungmenna. Leggja full-
trúar Framsóknarflokksins til að
unnið verði að því í samstarfi við
nemendafélög skólanna, foreldra
og skólastofnir að móta sameigin-
legar reglur um snjalltækjanotkun
á skólatíma og í félagsstarfi skól-
anna. Undirrituð óska eftir því
að efni bókunarinnar verði vísað
inn í fræðslunefnd til frekari um-
ræðu,“ segir í bókunni. Samþykkt
var samhljóða að vísa tillögunni til
umræðu í fræðslunefnd Borgar-
byggðar.
mm
Móta reglur um snjalltækjanotkun
í skólum Borgarbyggðar
Skipulagsstofnun gaf Reykhóla-
hreppi fyrr í mánuðinum umsögn
um tillögu að breytingu á aðal-
skipulagi sveitarfélagsins vegna
Vestfjarðavegar. Stofnunin hefur
það lögboðna hlutverk að yfirfara
framsetningu og efni aðalskipulag-
stillagna sveitarfélaga áður en þær
eru auglýstar til opinberrar kynn-
ingar fyrir almenningi. Tilgang-
ur þess er að tryggja að framsetn-
ing skipulagstillagna sé skýr og að
efni þeirra og framsetning sé í sam-
ræmi við fyrirmæli laga, reglu-
gerða og stefnu stjórnvalda. „Í um-
sögn stofnunarinnar til Reykhóla-
hrepps er bent á nokkur atriði sem
bæta þarf í skipulagstillögunni. Þau
varða helst umfjöllun um samræmi
skipulagstillögunnar við náttúru-
verndarlög og stefnu stjórnvalda,
umfjöllun í tillögunni um niður-
stöður mats á umhverfisáhrifum
Vestfjarðavegar frá árinu 2017 og
upplýsingar um rannsóknir á nátt-
úrufari sem unnar hafa verið eftir
að mati á umhverfisáhrifum Vest-
fjarðavegar lauk. Einnig upplýsing-
ar um áformaðar mótvægisaðgerð-
ir vegna umhverfisáhrifa vegarins,“
segir í frétt Skipulagsstofnunar um
afgreiðsluna. Þá áréttar stofnunin
að í umsögninni sé hinsvegar ekki
gerð krafa um að færð séu frekari
rök fyrir nauðsyn þess að leggja
veginn eftir leið ÞH um Teigs-
skóg,“ eins og komið hafði fram í
frétt sem Ríkisútvarpið flutti um
málið; „enda liggur fyrir í bókunum
sveitarstjórnar við afgreiðslu máls-
ins að fulltrúar í sveitarstjórn telja
sér ekki fært að velja aðra leið.“
Á fundi sveitarstjórnar Reykhóla-
hrepps 12. mars síðastliðinn voru
athugasemdir Skipulagsstofnunar
við tillögu að aðalskipulagsbreyt-
ingu vegna Vestfjarðavegar lagð-
ar fram. Sveitarstjóra var þar falið
í samráði við Vegagerðina og Alta
að lagfæra tillöguna í samræmi við
fram komnar athugasemdir Skipu-
lagstofnunar og samþykkti meiri-
hluti hreppsnefndar að eftir það
verði tillagan auglýst.
mm
Væntanlegur vegur um Teigsskóg er grænmerktur á þessari teikningu.
Sníða af vankanta áður en
aðalskipulagstillaga verður kynnt