Skessuhorn - 10.04.2019, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 20192
fyrir eldra fólk er á lóð númer 57.
Á jarðhæð er hins vegar um fjög-
ur hundruð fermetra rými í tengi-
byggingu. Því hefur nú öllu verið
ráðstafað. Verslunin Fok var opn-
uð í húsinu í lok síðasta árs, næst
anddyri hótelsins og veitingasal.
Nú verður verslunin stækkuð í lok
þessarar viku, að sögn Maríu Júlíu
Jónsdóttur verslunarstjóra. Teknar
verða inn útivistarvörur frá ZoOn
og verslunin stækkuð um 30 fer-
metra til viðbótar við lífstíls- og
gjafavöruverslunina. Þá hefur
Jónas Björgvin Ólafsson eigin-
maður Maríu Júlíu hætt á sjó, en
hann hefur um árabil verið kokk-
ur á togara. Jónas Björgvin er að
standsetja veislueldhús í hluta
tengibyggingarinnar þar sem hann
hyggst fara í sælkera matarþróun
sem seld verður í FOK og jafnvel
víðar. Auk þessarar starfsemi eru á
jarðhæð byggingarinnar skrifstofa
Gjafa - arkitekt og sköpun þar sem
vinnuborð eru til leigu fyrir skrif-
stofustarfsemi. Loks hefur Borg-
arverk flutt skrifstofur fyrirtækisins
frá Sólbakka og í rýmið undir fjöl-
býlishúsinu. Skessuhorn leit nýver-
ið við í byggingunni og lýstu leigj-
endur húsnæðisins allir ánægju sinni
með að nú væri búið að ráðstafa
öllu plássi á hæðinni og mikið líf
og fjör sem þar er samhliða hótel-
rekstrinum við hliðina.
Því má bæta hér við að næstkom-
andi föstudag, klukkan 16:30-18:30,
verður Borgarverk með opið hús í
skrifstofuhúsnæði sínu Borgarbraut
57 og býður upp á veitingar. mm
Við minnum á tvo ólíka við-
burði á laugardag. Klukkan 13
verður opnuð sýning á verkum
Snjólaugar Guðmundsdóttur
í Safnahúsinu í Borgarnesi. Þá
verður Söngkeppni framhalds-
skólanna haldin í Bíóhöllinni á
Akranesi á laugardagskvöldið
og sýnt frá keppninni í beinni
útsendingu á RÚV. Ítarlega er
fjallað um báða þessa viðburði í
Skessuhorni í dag.
Á morgun er spáð suðaustan
átt 8-13 m/s og rigning með
köflum en heldur hægari og
léttskýjað norðanlands. Hiti á
bilinu 5-10 stig. Á föstudaginn
er útlit fyrir suðaustanátt 13-20
m/s og dálítil rigning eða súld.
Aðeins hægari vindur og þurrt
á Norður- og Austurlandi. Hiti
6-12 stig. Á laugardag er spáð
sunnanátt 13-20 m/s og tals-
verð rigning en úrkomulítið
norðanlands og hiti breytist lít-
ið. Á sunnudag og mánudag er
útlit fyrir suðlæga átt og vætu
með köflum en þurrt norðan-
lands. Hiti 5-10 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Telur þú að koma
hefði átt rekstri WOW air til
bjargar?“ „Nei, alveg fráleitt“
svöruðu 36%, „Já, tvímælalaust“
sögðu 25% svarenda, „Nei, það
hefði verið óráðlegt“ svöruðu
23% og „Já, líklega“ svöruðu
10%. Um fimm prósent svar-
enda höfðu ekki skoðun á því.
Í næstu viku er spurt:
Hvernig ætlar þú að verja
páskafríinu?
Birgir Þórisson tónlistarstjóri
Söngkeppni framhaldsskólanna
sem fram fer um helgina á Akra-
nesi hefur varið síðustu vikum í
að aðstoða keppendur að gera
atriðin sín tilbúin fyrir keppnina
sem sýnd verður í beinni á RUV.
Þetta er annað árið í röð sem
Birgir er tónlistarstjóri keppn-
innar. Hann er Vestlendingur
vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Hefja undir-
búning fyrir nýtt
íþróttahús
BORGARNES: Byggðarráð
Borgarbyggðar ræddi á fundi
sínum í liðinni viku nauðsyn
þess að hefja undirbúning að
byggingu íþróttahúss í Borg-
arnesi. í því sambandi sam-
þykkti byggðarráð að tíma-
bært væri að stofna formlegan
undirbúningshóp til að stýra
þeirri vinnu sem framund-
an er. Sveitarstjóra var falið
að gera tillögu að erindisbréfi
fyrir hópinn. -mm
Fasteignasala
í mars
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 49 kaupsamningum
um fasteignir þinglýst í mars.
Þar af voru 24 samningar um
eignir í fjölbýli, 18 samningar
um eignir í sérbýli og sjö samn-
ingar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 1.467 millj-
ónir króna og meðalupphæð á
samning 29,9 milljónir króna.
Af þessum 49 voru 28 samn-
ingar um eignir á Akranesi. Þar
af voru 19 samningar um eign-
ir í fjölbýli, átta samningar um
eignir í sérbýli og einn samn-
ingur um annars konar eignir.
Heildarveltan var 1.009 millj-
ónir króna og meðalupphæð á
samning 36,0 milljónir króna.
-mm
Leitað að bæjar-
listamanni
AKRANES: Menningar-
og safnanefnd Akraneskaup-
staðar óskar eftir tillögum al-
mennings um bæjarlistamann
Akraness 2019. Hægt er að
senda inn tillögur rafrænt á
heimasíðu Akraneskaupstað-
ar. Nefndin mun fara yfir all-
ar tillögur sem berast. Niður-
stöðurnar verða kynntar við
hátíðlega athöfn á þjóðhátíð-
ardaginn 17. júní. Fyrsti bæj-
arlistamaður Akraness var
Hreinn Elíasson myndlist-
armaður árið 1992. Síðan þá
hafa fjölmargir listamenn ver-
ið útnefndir og fyrirkomulag-
ið verið með ýmsu móti. Und-
anfarinn áratug hefur verið út-
nefnt á hverju ári og til eins árs
í senn. Eðvarð Lárusson gít-
arleikari var bæjarlistamaður
Akraness 2018 og Kolbrún S.
Kjarval leirlistakona árið þar á
undan. -kgk
Byggja nýja
kennslustofu
AKRANES: Ný kennslustofa
verður byggð við Grunda-
skóla á Akranesi fyrir upphaf
skólaársins haustið 2019. Um
er að ræða færanlega skóla-
stofu, sem reist verður á skóla-
lóðinni. Um leið verður elsta
færanlega kennslustofan tek-
in úr umferð en salerni not-
uð áfram, sem og aðstaða fyr-
ir ræstingu og sá hluti hús-
næðisins lagfærður. Er þetta
gert að tillögu skóla- og frí-
stundaráðs sem bæjarráð sam-
þykkti á fundi sínum 27. mars
sl. Kostnaður vegna fram-
kvæmdanna er 30 milljón-
ir króna og verður mætt með
lækkun á handbæru fé. Bæj-
arráð vísaði ákvörðuninni til
staðfestingar í bæjarstjórn.
-kgk
Ófeigur Gestsson lést 2. apríl síð-
astliðinn á Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akranesi, 75 ára að
aldri. Hann hafði um árabil glímt
við hjartveiki. Ófeigur var fædd-
ur í Reykjavík 12. október 1943,
sonur Gests Jónssonar gjaldkera
og Kristínar Jónsdóttur húsmóð-
ur. Á fyrri hluta starfsferils síns
vann hann í rúma tvo áratugi sem
frjótæknir hjá Búnaðarsambandi
Borgarfjarðar og bjó þá á Hvann-
eyri. Þar tók hann virkan þátt í
félagsstarfi í héraði, var meðal
annars formaður Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar í áratug og á
þeim vettvangi í hópi drifkrafta að
Húsafellshátíðum sem sambandið
hélt um árabil. Þá var hann lengi
starfandi innan Lionshreyfingar-
innar og var á tímabili fréttaritari
Morgunblaðsins. Árið 1982 söðl-
aði Ófeigur um og gerðist sveitar-
stjóri Hofsóshrepps og eftir það
bæjarstjóri á Blönduósi frá 1988
til 1994. Hann tók eftir það við
starfi ferðamálafulltrúa í Húna-
vatnssýslum en starfaði einn-
ig hjá Kaupfélagi Húnvetninga á
Blönduósi, áður en haldið var suð-
ur fyrir heiði að nýju á vit nýrra
ævintýra.
Árið 2004 fluttu Ófeigur og
fjölskylda á Akranes þar sem hann
bjó til æviloka. Seinni kona hans er
Svanborg Þórdís Frostadóttir við-
skiptafræðingur og eiga þau sam-
an eina dóttur. Ófeigur lætur auk
þess eftir sig fimm börn og fjögur
fósturbörn.
Ófeigur hafði alla tíð óbilandi
áhuga á samfélags- og félagsmál-
um og var vel lesinn og kynnt-
ur. Eftir að Ófeigur og fjölskylda
fluttu á Akranes fyrir fimmtán
árum skrifaði hann fréttir og tók
talsvert af viðtölum fyrir Skessu-
horn. í mörgum þessara verk-
efna var hann um leið að rifja upp
gömul kynni sín við Borgfirðinga,
en í sveitum þess héraðs var hann
lengi starfandi. Þá átti fjölskyldan
sumarhús í Hvítársíðu. Skessu-
horn þakkar Ófeigi gott samstarf
og góð kynni í áranna rás og fær-
ir eiginkonu og börnum innilegar
samúðarkveðjur. mm
And lát:
Ófeigur Gestsson
í byggingunum við Borgarbraut 57
og 59 í Borgarnesi er eins og kunn-
ugt er rekið Hótel B59 á lóð núm-
er 59 og fjölbýlishús með íbúðum
Fullnýtt neðsta hæð í nýbyggingu
Borgarbraut 57 og 59 í Borgarnesi.
Jónas Björgvin Ólafsson og María Júlía Jónsdóttir. Á bakvið þau sést inn í rými
sem innréttað verður fyrir ZoOn útivistarfatnað.
Tæknifyrirtækin Skaginn 3X og
Kælismiðjan Frost hafa land-
að milljarðasamningi um hönn-
un, uppsetningu og innleiðingu á
vinnslu- og kælibúnaði í risavax-
inn frysti- og vinnslutogara sem er
í smíðum fyrir rússneska útgerð-
ar- og fiskvinnslufyrirtækið Collec-
tive Farm Fishery. Framleiðslugeta
togarans verður allt að 450 tonn á
dag og frystilestarnar rúma 5.100
tonn. Heildarlausnir Frosts sam-
anstanda af frystikerfi, sem mun
sjá um frystingu á sex sjálfvirkum
frystiskápum frá Skaganum 3X.
„Við erum stolt af því að hafa feng-
ið tækifæri til þess að taka þátt í nú-
tímavæðingu sjávarútvegs í Rúss-
landi,“ segir pétur Jakob péturs-
son, sölustjóri Skagans 3X á svæð-
inu. Skipið er það stærsta sem Rúss-
ar hafa smíðað í áratugi og til marks
um það er framleiðslugetan um
borð 50% meiri en í öðrum sam-
bærilegum rússneskum skipum.
Áætlað er að skipið, sem er í
smíðum í Yantar-skipasmíðastöð-
inni í Kalíníngrad, verði fullbúið
og tilbúið til afhendingar í árslok
2022. Verkefnið er liður í stefnu
rússneskra stjórnvalda að renna
styrkari stoðum undir sjávarútveg
landsins, tryggja sjálfbærni veiða og
mataröryggi með því að hvetja til
nútímavæðingar greinarinnar.
mm
Skaginn 3X semur um stórt verkefni í Rússlandi
Frá undirritun samningsins um aðkomu íslensku fyrirtækjanna að smíði stærsta
frysti- og vinnslutogara Rússa.
Frystilestar skipsins rúma hvorki meira né minna en 5100 tonn.