Skessuhorn - 10.04.2019, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 2019 21
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Aðalskipulag Dalabyggðar
2004-2016
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 14.
mars að auglýsa skipulags- og matslýsingu vegna breytingu
á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004 – 2016, samkvæmt 1. mgr.
30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin er eftirfarandi:
Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði
Með skipulags- og matslýsingu þessari er íbúum og
öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að koma með
ábendingar og athugasemdir sem snúa að málefnum aðal-
skipulagsins. Lýsingarferli vegna annars samskonar verkefnis
er í farvatninu sem verður auglýst síðar.
Lýsingin liggur frammi, frá 11. apríl til 24. maí,
á skrifstofu Dalabyggðar Miðbraut 11, 370 Búðardal,
heimasíðu sveitarfélagsins dalir.is.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila til skrifstofu
Skipulagsfulltrúa, að Miðbraut 11 Búðardal eða netfang
skipulag@dalir.is fyrir 24. maí 2019.
í gær, þriðjudaginn 9. apríl, var ára-
tugur liðinn síðan Þorgrímur Ein-
ar Guðbjartsson og Helga Elínborg
Guðmundsdóttir, bændur á Erps-
stöðum í Dölum, hófum heima-
vinnslu afurða á bænum með fram-
leiðslu á rjómaís. Þar með var starf-
semi Rjómabúsins Erpsstaða hafin
og hefur staðið allar götur síðan.
Þorgrímur var að vonum hinn
ánægðasti þegar Skessuhorn sló á
þráðinn til hans á afmælisdaginn.
„Það er alltaf gott hljóðið í okk-
ur. Góður vetur er að baki og full
bjartsýni fyrir komandi sumri. Kis-
an okkar Spóla bíður spennt eftir að
taka á móti gestum dagsins í sólinni.
Ferðamennirnir eru farnir að láta sjá
sig og sólin skín á okkur þessa dag-
ana. Það er brakandi blíða hér í Döl-
unum, bjart um allan fjörð og ekki
ský á lofti nema eftir flugvélarnar
sem fljúga hérna yfir,“ segir Þor-
grímur hinn ánægðasti í samtali við
Skessuhorn.
Aðspurður segir hann að ekkert
eitt verði sett á oddinn öðru fremur
í tilefni afmælisins. „Fleiri viðburð-
um ætlum við að standa fyrir í sumar
en verið hafa, en það er ekkert orð-
ið fast í hendi enn sem komið er. En
við erum alltaf í einhverjum nýjung-
um. Þessa dagana erum við að fást
við nýja osta og reyna að finna nýj-
ar ístegundir og fleira. En það verða
ekki stórar breytingar á rútínunni hjá
okkur. Samhliða þessu erum við að
taka útisvæðið í gegn fyrir sumarið.
Þannig að þetta eru mest hefðbundin
vorverk og þróunarstarf. Við reynum
auðvitað alltaf að bæta okkur frá ári
til árs. Sumt gengur úr sér og svo fær
maður nýjar hugmyndir og reynir að
heimfæra þær, eins og gengur.“
Margar vörur bæst við
Sem fyrr segir hófst starfsemi Rjóma-
búsins með framleiðslu á ís en síðan
þá hafa margar vörur bæst við flór-
una, svo sem ostar, skyr og skyrkon-
fekt. „í upphafi kom til okkar maður
og kenndi okkur á græjurnar. Þetta
var 9. apríl 2009 og það er dagurinn
sem við byrjuðum að leika okkur að
búa eitthvað til. Fyrsta sumarið vor-
um við eingöngu með ís, en reynd-
ar mjög margar tegundir. Mig minn-
ir að við höfum verið með 17 teg-
undir, það átti sko að sigra heiminn
með ísnum,“ segir Þorgrímur létt-
ur í bragði. „Árið eftir byrjuðum við
að prófa okkur áfram í ostunum. Það
sumar vorum við aðallega með feta-
ost og síðan fórum við að fikra okk-
ur áfram í skyrinu, til að nýta alla
undanrennuna sem fellur til þeg-
Rjómabúið Erpsstaðir er tíu ára:
„Reynum alltaf
að bæta okkur
frá ári til árs“
ar við erum að ná í rjómann,“ segir
hann. „Það var síðan árið 2012 sem
má segja að vendipunktur hafi orðið
í okkar framleiðslu. Þá kom til okk-
ar ungur maður frá ítalíu, sem var
í rúmlega hálft ár við ostagerð og
fleira fólk frá útlöndum í styttri og
lengri dvalir við að prófa sig áfram
með afurðir. Þá var mikið þróunar-
starf unnið. Skyrkonfektið kom á
markað vorið 2012 og mikil breyting
varð á mörgum sviðum hjá okkur,“
útskýrir Þorgrímur. „Síðan tókum
við aftur stökk fyrir rúmu ári þegar
við tókum búðina í gegn. Þá vorum
við komin með frambærilegri fram-
setningu á vörunum okkar og þeirri
hugmyndafræði sem við vinnum eft-
ir. Þá kláruðum við í rauninni verk-
efnið sem við byrjuðum á 2009.“
Bjart framundan
Aðspurður kveðst Þorgrímur bjart-
sýnn á framtíðina á Erpsstöðum.
„Ég er alla jafnan bjartsýnn og það
hefur ekkert breyst,“ segir hann
léttur í bragði. „Aðsóknin hefur
alla tíð verið góð og vaxið ár frá ári.
Nú þegar er byrjað smá rennirí af
fólki. páskarnir eru framundan og
svo Jörvagleði í Dölum helgina eft-
ir páska. Ég reikna með að við verð-
um með opið meira og minna frá og
með næstu helgi og fram yfir leitir í
haust,“ bætir hann við. „Við höfum
aðeins verið að fikra okkur áfram í
að selja fyrir aðra framleiðendur í
héraði, einkum handverk en einnig
aðeins af matvöru, til dæmis lamba-
kjöt frá Fagradal. Ég sé fyrir mér að
slíkt mætti gjarnan auka og tel að
það yrði mikill fengur af vöruúrvali
í matnum. Það myndi bæði styrkja
búðina okkar og gagnast þeim fram-
leiðendum sem vilja selja afurðirn-
ar sínar hjá okkur,“ segir Þorgrím-
ur á Erpsstöðum að endingu, áður
en hann þeytist í næsta verkefni sem
er að setja saman gróðurhúsið sem
fauk í roki síðastliðið haust.
kgk
Þorgrímur Einar Guðbjartsson og Helga Elínborg Guðmundsdóttir, bændur á Erpsstöðum, ásamt börnum sínum.
Þorgrímur við afgreiðsluborðið í verslun Rjómabúsins Erpsstaða.
Ostarkælirinn á Erpsstöðum stappfullur af ostum.
Framleiðsla á skyrkonfekti hófst árið 2012 og hefur allar götur síðan notið mikilla
vinsælda.