Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 201922
Söngkeppni framhaldsskólanna
verður í annað sinn haldin í Bíó-
höllinni á Akranesi næsta laugar-
dag, 13. apríl. Það eru Vinir hall-
arinnar sem hafa tekið að sér að
skipuleggja keppnina en þeir sáu
einnig um það verkefni á síðasta
ári þegar útlit var fyrir að ekkert
yrði af keppni. „Við tókum þetta að
okkur í fyrra með litlum fyrirvara
og það tókst rosalega vel til svo við
ákváðum að gera þetta aftur hér
á Akranesi í ár. Svo verður púls-
inn bara aftur tekinn eftir keppni
og við sjáum til hvort við höldum
áfram að sjá um þetta eða hvort
fólk vill fara aðrar leiðir, við tökum
bara eina keppni í einu,“ segir ís-
ólfur Haraldsson frá Vinum hallar-
innar í samtali við Skessuhorn.
Undirbúningur gengur að sögn
ísólfs afar vel og gera má ráð fyr-
ir flottri keppni um helgina. Það
eru 26 keppendur skráðir til leiks
og fá þeir að æfa sig í Bíóhöllinni á
fimmtudag og föstudag. „Við ætl-
um að brydda upp á þeirri nýjung
í ár að vera með fjölskyldudóm-
ararennsli klukkan 14:30 á laugar-
daginn. Þá getur fólk komið með
börnin með sér og horft á keppn-
ina. Keppnin sjálf hefst svo klukk-
an 20:55 og verður sýnd í beinni
útsendingu á RÚV,“ segir ísólf-
ur. Kynnar á keppninni í ár verða
bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik
Dór. „Hver og einn keppandi fær
tvær mínútur og 30 sekúndur til
að koma fram og heilla áhorfend-
ur svo við gerum ráð fyrir að út-
sending verði ekki nema um eina
klukkustund og 40-50 mínútur.
Þetta á að ganga hratt fyrir sig og
vera skemmtilegt fyrir áhorfend-
ur,“ segir ísólfur.
Skiptir mestu máli að
keppendurnir njóti sín
Tónlistarstjóri keppninnar er Birg-
ir Þórisson tónlistarmaður en hann
fær það hlutverk að klippa niður
lögin í samráði við keppendur og
setja saman hljómsveit. „Þar sem
þetta er sjónvarpsútsending mega
atriðin ekki vera lengri en tvær og
hálf mínúta. Það kemur í minn hlut
að klippa lögin niður í þá lengd, að
sjálfsögðu í samráði við keppendur.
Þetta getur stundum verið ákveð-
in áskorun og það þarf að passa að
bæði textinn og lagið haldi sam-
henginu þrátt fyrir styttingu. Svo
eru krakkarnir oft með óskir um
að halda ákveðnum parti af lög-
unum inni og að sjálfsögðu reyn-
ir maður að vinna í kringum það,“
segir Birgir. „Þetta er allt unnið í
fullu samráði við keppendur því
það skiptir auðvitað fyrst og fremst
máli að þeir fái að njóta sín og séu
ánægðir með sitt framlag. Það er
samt ákveðinn lúxus fyrir mig, að
þar sem við erum bara með loka-
keppnina og þetta eru krakkar sem
eru búnir að sigra í sínum skóla,
því fáum við atriðin sjálf nokk-
uð vel mótuð til okkar og ég þarf
í rauninni bara að stytta þau,“ bæt-
ir hann við.
Auk þess að vera tónlistar-
stjóri er Birgir hljómborðsleikari
í hljómsveit hússins. En auk Birg-
is skipar sveitina þá Helgi Reynir
Jónsson gítarleikara, Gunnar Leó
pálsson trommuleikara og Ingi
Björn Ingason bassaleikara. „Það
hefur einnig verið mikið að gera
hjá þeim síðustu daga. Þeir hafa
fengið sendan stóran stafla að lög-
um með skilaboðunum; „gjörið svo
vel, við erum að fara að spila þetta
í sjónvarpi á laugardaginn,“,“ segir
Birgir og hlær. „En þetta eru því-
líkir fagmenn sem gera þetta mjög
vel. Ég er svo heppinn að fá að
spila með svona flottum tónlistar-
mönnum.“
Jákvætt að hafa keppn-
ina á Akranesi
Birgir var einnig tónlistarstjóri á
keppninni á síðasta ári og segir það
ekki hafa verið spurning um að gera
þetta aftur í ár. „Það var í rauninni
ótrúlegt hversu vel þetta heppnað-
ist í fyrra. Ég var bara korter frá
því að stíga upp í flugvél, í fimm
daga ferð til póllands að spila,
þegar ísólfur hringdi í mig. Þá
hafði mig langað að vera partur af
hljómsveitinni í þessari keppni frá
því ég var krakki. Ég var því fljótur
að segja já þegar ísólfur spyr hvort
ég sé til í að vera í hljómsveitinni.
Svo spyr hann mig hvort ég sé ekki
líka til í að vera tónlistarstjóri. Ég
spurði hann þá hvenær keppnin
yrði og hann svarar: „Eftir þrjár
vikur!“ Og þarna var ég á leiðinni
í burtu í fimm daga. En þetta var
rosalega gaman þó það hafi allt
verið á haus þessar tvær vikur eftir
að ég kom heim frá póllandi,“ seg-
ir Birgir. „En ég er rosalega þakk-
látur ísólfi að hafa treyst mér fyrir
þessu verkefni og líka fyrir að færa
keppnina hingað á Akranes. Hann
gæti vel haldið keppnina í Reykja-
vík en hann ákveður að nota Bíó-
höllina og fá fólkið hingað, sem er
mjög jákvætt.“
Fjölbreytt lagaval í ár
Aðspurður segir hann lagavalið í
keppninni í ár vera mjög fjölbreytt,
allt frá klassískum lögum til rokks.
„Það er í raun allur skalinn, nema
rapp, sem kom mjög á óvart. En
það verða líka flutt tvö frumsamin
lög, sem er einnig mjög gaman,“
segir hann. Spurður hvernig gangi
að vinna lögin með keppendum
svona í fjarsamskiptum segir Birg-
ir það hafa gengið mjög vel. „Þau
hafa öll verið svo dugleg í þessu
ferli svo þetta hefur gengið mjög
vel. Núna er bara aðal spenning-
urinn fyrir fimmtudeginum, að
hitta krakkana og fá að sjá andlitin
bakvið lögin. í fyrra kom það mér
svo á óvart hversu fagmannleg þau
eru og flott tónlistarfólk. Ég er
því rosalega spenntur að hitta þau
og fá að vera með þeim á æfing-
um fimmtudag og föstudag,“ segir
Birgir að endingu.
arg
Söngkeppni framhaldsskólanna
verður í Bíóhöllinni um helgina
Hljómsveitin Pési og breiðnefirnir var fulltrúi Menntaskóla Borgarfjarðar í keppninni á síðasta ári. Sveitina skipuðu Þórður Brynjarsson, Snæþór Bjarki Jónsson, Pétur Snær Ómarsson og Kristján Guðmundsson.
Piltarnir sungu lagið Mescalin sem hljómsveitin Egó gerði frægt hér á árum áður.
Ísólfur Haraldsson frá Vinum hallarinnar sem skipuleggja Söngkeppni framhalds-
skólanna Ljósm. úr safni Skessuhorns/glh.
Birkir Blær Óðinsson, úr Menntaskólanum á Akureyri, sigraði í Söngkeppninni í fyrra. Hér er hann ásamt hljómsveitinni sem
spilaði undir í flestum atriðum keppninnar. Birgir Þórisson er annar frá hægri á myndinni. Ljósm. úr safni Skessuhorns/mm.