Skessuhorn - 10.04.2019, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 10. ApRíL 2019 27
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vakin
á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja
geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessu-
horn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún
birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausn-
inni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessu-
horn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir
í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birtist). Dregið verð-
ur úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá
Skessuhorni.
Lausnin á síðustu krossgáta var: „Hófsemi“. Heppinn þátttakandi
er: Guðmundur Samúelsson, Þorláksgeisla 23, 113 Reykjavík.
Leiftur
Lak
Pípur
Glens
Dyr
Dýpi
Dáð-
lausa
Sigar
Fyrnska
Flínk
Leynd
Læti
Útlim
Snagi
Alúðleg
Röð
Svall
Form
Afa
Hæla
Hal
Leyfist
Undir-
staða
Fésuga
1
Óhóf
Hvílir
Flýtir
Not
Baráttu-
merki
Kinka
Depill
Heimild
Reisla
Á fiski
Gæði
150
5
For-
föður
Tunga
Önug-
lyndur
Leyfi
Mann
Stafur
Á skipi
Blekkir
Skelin
Svar
Kinn
Ras
Væla
Þekkt
Málm-
tegund
Fjöldi
7
Kvakar
Röst
Duft
Óttinn
Sarg
Til
Stakur
4 Skjóla
Hreinsa
Eldur
Blaður Sprikl
Söxin
Vær
Alls-
lausar
Kostur
2 Fersk
Morg-
unn
Bréfa-
bindi
Óttast
Grípa
Nærist
Sam-
hlj.
Þvagan
1000
Ráða-
leysi
Ofboð
Versna
Hryssa
Svipt
3
Fák
Púkar
Sort
Smá-
ræði
Skelfing Más
Kleif
Elskar
Sérhlj.
Erill
Brúskur
Tvíhlj.
6
Dreitill
Elskar
Stóð
Utan
1 2 3 4 5 6 7
H A G S Æ L D S V I K T Ö F
Ó F R J Á O R T I L A X A
F L J Ó Ð K A U S M Ú Ð U R
K Ó R U N U N T U Ð A L
E R T A R Ú M D Y N U R V
R Ú L L A N U N N U R Á R I
N E T T I R Á D R E P A
H A S T N M I N N A S T
A T U N G A N A N N A R
G Á N A U M A R Þ A R I
K L Ó D U R T Ó J Á Á S
V Á Þ U S G Ó L A I S S
Æ Ð A R T A N N E S I Ð A
M A R H R Á G K G N K N
A N F A R M A U A L I N K
S T R Ó N A F R Ó A R Á R
T U S K S O Ð Æ L L R Á
O R Ð A L A GL
A
U
S
N
Ú
R
S
ÍÐ
A
S
T
A
B
L
A
Ð
I
Það muna kannski einhverjir þeg-
ar við foreldrar skarðabarna sner-
um bökum saman í haust og vöktum
athygli á að innan við 10% barna
sem fæðast með skarð í gómi fá ekki
greiðsluþátttöku samþykkta á nauð-
synlegum meðferðum og hvernig
fæðingargöllum er mismunað með
því að taka örfá börn út úr og segja;
því miður, þinn fæðingargalli er ekki
nógu alvarlegur! Þrátt fyrir aðgerðir
og afleiðingar. Þau börn sem fæðast
með klofinn góm (og einnig þau sem
fæðast líka með klofna vör) fara í að-
gerð á unga aldri þar sem skarðinu
er lokað en afleiðingar þesskonar
aðgerðar eru að hinn tilbúni góm-
ur verður alltaf stuttur og stífur því
það er mikill örvefur sem myndast.
Þessi örvefur heldur aftur af vexti
efri kjálkans þannig að ef ekkert er
að gert þá vex neðri kjálkinn eðli-
lega en efri kjálkinn mun minna, að
endingu fá börn með þennan fæð-
ingargalla skúffu og töluverðar lík-
ur eru á að þau þurfi í kjálkaaðgerð
þar sem kjálkarnir eru lagaðir svo að
þeir passi hvor við annan. Afleiðing-
arnar ef ekkert er að gert geta ver-
ið útlitslegar, það getur orðið erfitt
fyrir þau að nærast og talerfiðleikar
geta fylgt.
Nú er staðan þannig að heilbrigð-
isráðherra lýsti yfir vilja til að jafna
hlut þessara skarðabarna síðast-
liðið haust. Og í framhaldi breytti
hún reglugerðinni sem um ræðir
(451/2013) og skv. þeim þingmönn-
um í Velferðarnefnd sem fylgja okk-
ar máli eftir hefur ráðherra svarað
því til að nú eigi þessi börn sem út af
stóðu að falla undir reglugerðina.
Sem sagt; ráðuneytið sem er yf-
irmaður Sjúkratryggina og hef-
ur stjórnsýslu- og eftirlitsheimildir
með stofnuninni, hefur talað. Stofn-
unin sem er lægra sett stjórnvald
með nýjan forstjóra í brúnni huns-
ar fyrirmæli síns yfirmanns. Aflóga
risaeðlur sem eru komnar á eða að
komast á eftirlaunaaldur taka ein-
hliða ákvarðanir í bakherbergi
Sjúkratrygginga og hlusta hvorki á
rök né rannsóknir. Þeir virðast ekki
getað tekið því að fræðin segi ann-
að í dag en þegar þeir voru í námi
og að við eigum menntaða sérfræð-
inga sem hafa annað álit en þeir, við
höfum meira að segja leitað út fyrir
landsteinana eftir sérfræðiáliti. Risa-
eðlurnar hunsuðu það álit líka.
Ef ekkert er að gert þá enda þessi
börn í kjálkaaðgerð þar sem neðri
kjálkinn er styttur til að passa við
efri kjálkann. Þessa aðgerð, sem er
mun dýrari, borga Sjúkratryggingar
möglunarlaust. Sitthvor vasinn sem
krónurnar eru teknar úr. Og vas-
inn sem neitar þessum börnum um
nauðsynlega meðferð við alvarleg-
um fæðingargalla hefur víst skilað
afgangi seinustu ár svo það er ekki
eins og það séu ekki til fjármunir til
að greiða fyrir þessa meðferð örfárra
langveikra barna.
Ég held að flestum sé ljóst hvern-
ig það virkar ef maður fylgir ekki
fyrirmælum síns yfirmanns. Og
hunsar vilja hans sem hefur verið
settur fram fyrir alþjóð. Að halda í
nei-ið af því sem virðist þrjóska og
þvermóðska og ætla ekki að gefa sig
er óásættanlegt þótt maður vilji ekki
tapa. Að okkar mati er kominn tími
á að ráðuneytið segi; hingað og ekki
lengra!
Ragnheiður Sveinþórsdóttir og
Sigurður J. Atlason,
Sigurður Oddsson og Erla Helga
Sveinbjörnsdóttir,
Rakel Theodórsdóttir og Guðjón
Geir Einarsson.
Eiga aflóga risaeðlur að taka einhliða
ákvarðanir í bakherbergjum stofnana?
Pennagrein
Samtökin Orkan okkar hafa sent
áskorun á alla þingmenn. Þar seg-
ir: „Ágætu alþingismenn, segið nei
við staðfestingu ákvörðunar sam-
eiginlegu EES-nefndarinnar, nr.
97/2017, um breytingu á IV. við-
auka (Orka) við EES-samninginn
(þriðji orkupakkinn). Beinið þeim
tilmælum til sameiginlegu EES-
nefndarinnar að ísland verði und-
anþegið innleiðingu þriðja orku-
pakkans enda er ísland ekki tengt
raforkumarkaði ESB.“
í greinargerð með áskoruninni
segir að ódýr og örugg raforka sé
undirstaða góðra lífskjara í landinu.
„Raforkan er afurð náttúruauðlinda
landsins okkar og afar mikilvægt að
allar ákvarðanir sem teknar eru í
raforkumálum þjóni hag þeirra sem
hér búa. í dag eru 90% raforku-
framleiðslunnar í eigu þjóðarinnar,
hrein og endurnýjanleg. Raforku-
verð er hér mun lægra og stöðugra
en almennt í ríkjum ESB. Þetta er
einstök og öfundsverð staða en hana
þarf að verja. Markmið orkupakk-
anna er að efla vald ESB í orkumál-
um á svæðinu, auka markaðsvæð-
ingu og samtengingu raforkukerfa
milli landa. Varast ætti að innleiða
löggjöf sem sniðin er fyrir aðstæð-
ur í orkumálum sem eru mjög frá-
brugðnar þeim sem við búum við á
íslandi.“
Loks segir að með orkupökkum
ESB skerðist sjálfsákvörðunarrétt-
ur íslands í raforkumálum. „Lög-
gjöfin er samin af ESB og tekur því
ekki mið af vilja íslenskra kjósenda,
auk þess sem hluti löggjafar-, fram-
kvæmda- og dómsvalds í orkumál-
um flyst úr landi. Orkupakkar ESB
grafa því undan sjálfsákvörðunar-
rétti þjóðarinnar um eigin auðlind-
ir og geta haft ófyriséð áhrif á lífs-
kjör í landinu. Þessi þróun er líka
í hrópandi mótsögn við afstöðu al-
mennings og yfirlýsingar sumra
stjórnmálaflokka um að ekki skuli
framselja vald í orkumálum til er-
lendra stofnana.“
í tilkynningu segir að hægt sé að
taka þátt í áskoruninni á vefsíðunni
www.orkanokkar.is.
mm
Skorað á alþingismenn
að hafna þriðja orku-
pakka ESB