Skessuhorn - 16.04.2019, Side 26
ÞRIÐJUDAGUR 16. ApRÍL 201926
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvernig páskaegg langar
þig að fá?
Spurni g
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi)
Ingveldur Eyþórsdóttir
Nóa Síríus egg, venjulegt.
Kristrún Þorgrímsdóttir
Nóakropp páskaegg.
Guðbjörg Valsdóttir
Venjulegt egg frá Nóa Síríus.
Guðrún Erna Magnúsdóttir
Nóa Síríus, venjulegt egg.
Fjölbrautaskóli Vesturlands flutti hið vinsæla lag Shallow með glæsibrag.
Hæfileikakeppni starfsbrauta var
haldin í Grundarfirði
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt
hæfileikakeppni starfsbrautanna
2019 í stóra sal skólans í liðinni
viku. Alls mættu þrettán skólar og
sýndu afrakstur þrotlausra æfinga.
Atriðin voru hvert öðru glæsilegra
en að lokum var það Fjölbrauta-
skóli Suðurnesja sem sigraði í hæfi-
leikakeppninni. Í öðru sæti var at-
riði frá Fjölbrautaskóla Mosfells-
bæjar og Borgarholtsskóla en Fjöl-
brautaskóli Snæfellinga hafnaði í
þriðja sæti. Eftir hæfileikakeppn-
ina var slegið upp dansleik að hætti
hússins og var gleðin í fyrirrúmi á
þessu glæsilega kvöldi.
tfk
Fjölbrautaskóli Suðurnesja með fyrstu verðlaun. Jakob Þorsteinsson flytur hér atriði heimamanna.
Söngkeppni framhaldsskólanna var
haldin í Bíóhöllinni á Akranesi síð-
astliðið laugardagskvöld. Þar voru
flutt atriði 26 framhaldsskóla víðs-
vegar af landinu. Það voru Vin-
ir hallarinnar sem héldu utan um
skipulag viðburðarins ásamt RUV,
en keppnin var sýnd í beinni á Rík-
issjónvarpsstöðinni. Birgir Þóris-
son var hljómsveitarstjóri en kynn-
ar voru bræðurnir Jón Jónsson og
Friðrik Dór. Fyrirkomulag keppn-
innar var svipað og á síðasta ári
þegar keppnin fór fram í Íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á Akranesi.
Hver skóli fékk tvær og hálfa mín-
útu til að slá í gegn og var það í
höndum dómnefndar og þjóðar-
innar með símakosningu að skera
úr um sigurvegara.
Hófstilltur flutningur Aarons Ís-
aks Berry úr Tækniskóla Íslands á
laginu Love of my life, eftir Freddy
Mercury, þótti skara fram úr að
mati dómnefndar. Í öðru sæti varð
Anna Róshildur Benediktsdóttir úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð
sem klæddi Súrmjólk í hádeginu
eftir Bjartmar Guðlaugsson í nýj-
an og áður óþekktan búning. Loks
var Diljá pétursdóttir frá Verzl-
unarskóla Íslands í þriðja sæti en
hún flutti lagið Creep eftir bresku
hljómsveitina Radiohead.
Frá skólunum á Vesturlandi stigu
á stokk í keppninni þær Jóna Alla
Axelsdóttir frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands, Soffía Meldal Krist-
jánsdóttir frá Menntaskóla Borg-
arfjarðar og Elva Björk Jónsdóttir
frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Grundarfirði. mm
Tækniskólinn sigurvegari í
Söngkeppni framhaldsskólanna
Aarons Ísak Berry söng til sigurs með flutningi á lagi Freddy Mercury; Love of my
life.
Tónlistarskólinn á Akranesi tók
þátt í lokahátíð Nótunnar, upp-
skeruhátíðar tónlistarskólanna hér
á landi, sem fram fór í Menning-
arhúsinu Hofi á Akureyri 6. apríl
síðastliðinn. Hljómsveitin Skull
Crusher var fulltrúi tónlistarskól-
ans að þessu sinni og flutti Metal-
lica lagið For Whom the Bell tolls.
Hljómsveitina skipa þeir Bald-
ur Bent Vattar Oddsson á bassa,
Fannar Björnsson á rafgítar, Helgi
Rafn Bergþórsson söngur og Ingi-
bergur Valgarðsson á trommur.
Alls komust tuttugu og fjögur at-
riði á lokahátíðina og voru þau flutt
á tvennum tónleikum. Atriðin voru
hvert öðru glæsilegri og mjög fjöl-
breytt. Hlutu strákarnir frá Akra-
nesi verðlaun í opnum flokki og er
þetta að líkindum í fyrsta sinn sem
þungarokkssveit hlýtur viðurkenn-
ingu á lokahátíð Nótunnar. Sjón-
varpsstöðin N4 tók tónleikana upp
og verða þeir sýndir á annan páska-
dag í sjónvarpinu.
mm/ Ljósm. jea
Fyrsta þungarokkshljómsveitin til að hljóta verðlaun á Nótunni
Hljómsveitin á sviði í Hofi.
Skull Crusher eftir að atriði þeirra
var valið til að verða fulltrúi skóla af
Vesturlandi í úrslitakeppni Nótunnar.
Halldóra Baldursdóttir
Venjulegt Nóa Síríus páskaegg.