Skessuhorn - 08.05.2019, Side 1
arionbanki.is Arion appið
Nú geta allir notað
besta bankaappið*
*MMR 2018
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 19. tbl. 23. árg. 8. maí 2019 - kr. 750 í lausasölu
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
Travel West
2019-2020
Ferðablað
Vesturlands
er komið út
Hægt er að
nálgast blöð á
Markaðsstofu
Vesturlands
í Hyrnutorgi
Um eitt hundrað manns tóku á laugardaginn þátt í stranshreinsunardegi á fjórum svæðum á Snæfellsnesi; við Grundarkamp í Grundarfirði, Fúluvík og nágrenni í
Stykkishólmi og á tveimur svæðum í Snæfellsbæ; á Hraunlandarifi við Breiðuvík og Beruvík í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Áætlað er að um tíu tonn af allskyns rusli hafi
verið hreinsað úr náttúrunni. Meðfylgjandi mynd tók Kjartan Bollason þar sem kúlur eru dregnar úr Beruvík. Sjá nánar frétt bls. 18.
Síðastliðinn miðvikudag var tekin
fyrsta skóflustungan að nýrri reiðhöll
hestamannafélagsins Dreyra á Æðar-
odda á Akranesi. Það er Fasteignafélag
Akraneskaupstaðar sem verður form-
legur eigandi hússins en gerður hefur
verið langtímasamningur um rekst-
urinn við Dreyra. Það er sambæri-
legt rekstrarform og milli Akranes-
kaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis
um nýja Frístundamiðstöð sem nú er
risin við Garðavöll og verður einmitt
vígð næstkomandi laugardag. Ungir
og eldri fulltrúar í Dreyra, auk full-
trúa bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar
og sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar,
stungu fyrstu hnausana úr jörðu að
aflokinni Firmakeppni Dreyra 1. maí.
Ása Hólmarsdóttir formaður Dreyra
sagði þetta afar ánægjulega og lang-
þráða stund í sögu félagsins. Félagið
er stærst af fjórum hestamannafélög-
um á landinu sem fram til þessa hafa
verið án reiðhallar eða annarrar að-
stöðu til tamningar og þjálfunar.
Skrifað var undir samning um húsið
fyrir réttu ári en tafir urðu á að hægt
væri að hefja framkvæmdir þar sem
eignarhald lóðarinnar undir væntan-
legu húsi var hjá þrotabúi BM Vall-
ár. Í vetur var hins vegar gengið frá
kaupum á landinu. Nýja húsið verður
reist sunnan og ofan við fyrstu hest-
húsin sem komið er að á Æðarodda.
Reiðhöllin verður 1.125 fermetra
límtréshús frá Límtré-Vírneti; 25
metra breitt og 45 metra langt. Áæt-
laður byggingarkostnaður er um
100 milljónir króna. Vonir standa
til að næsta vor, 1. maí 2020, verði
hægt að vígja húsið, en unnið er að
breytingu deiliskipulags til að hægt
sé að hefja jarðvegsframkvæmdir
síðar í sumar.
mm
Fulltrúar yngri og eldri hestamanna og sveitarstjórna Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar tóku fyrstu skóflustungur-
nar að nýrri reiðhöll.
Skóflustunga að nýrri reiðhöll Dreyra á Æðarodda