Skessuhorn - 08.05.2019, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Framar ei frestur gefst
„Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er
jörðin...“ Þannig hefst snilldarkvæði Tómasar Guðmundssonar um Hótel
jörð. Eitt fallegasta kvæði sem skrifað hefur verið. Fallegt af því boðskapur
þess er svo réttur. Fjallar borgarskáldið í því um dvöl okkar hér og landið
sem við fáum að láni. Sumir njóta þessarar dvalar meðan aðrir setjast bara
við hótelgluggann og bíða þess sem verða vill. En hvort sem við njótum
tímans eða látum okkur leiðast, þá höfum það í huga, eins og skáldið bend-
ir á, að; „við sem ferðumst eigum ei annars völ, það er ekki um fleiri gisti-
staði að ræða.“ Við eigum nefnilega bara þessa einu jörð. Því eigum við að
hlúa að henni og skila landinu í jafn góðu eða betra ástandi en við tókum
við því. Annað er glæpur.
Umræðan um umgengni okkar við jörðina hefur stauraukist á síðustu
mánuðum og misserum. Því veldur aukin fræðsla eins og til dæmis má sjá
í náttúrulífsþáttum David Attenborough, í góðum heimildaþáttum RUV;
Hvað höfum við gert og víðar. Sífellt fleiri gera sér grein fyrir því að neysla
og óhóf er gengið út í öfgar. Rusli er hent á sjó og landi, gengið er á gæði
loftsins og af þessu skapast mengun, breyting verður á veðráttu og um leið
lífslíkum fjölda plantna og dýrategunda. Hvort sem það er vegna hlýnandi
loftslags af mannavöldum eða einfaldlega að við erum stödd á þeim stað
í hlýnunarskeiði jarðar, þá mælist hiti nú meiri en áður. Þótt okkur finn-
ist notalegt að lesa fréttir um að hitamet falli, þá getur því vissulega fylgt
Þórðargleði. Það er ekkert grín að jöklar séu að hverfa, heilu fiskistofn-
arnir færa sig um set og leita á kaldari hafssvæði og jafnvel eru dæmi um að
heilu stofnarnir deyi út. Á þeim svæðum jarðarkringlunnar þar sem fólki
er þröngur stakkur skorinn er fátt um bjargir þegar öfgar í veðráttu kalla
ýmist yfir þurrka eða flóð.
En það þýðir ekkert að vera með einhvern barlóm. Við verðum að bregð-
ast við og bæta okkur. Við eigum ekki að hlusta á menn eins og Donald
Trump sem vilja gera lítið úr ástandinu, af því það hentar ekki iðnvæðing-
unni og heimsyfirráðum þeirra. Stjórnvöld eru fyrir margt löngu byrjuð
að leggja mengunarskatta á ökutæki og stutt er í að valkvæð ferðalög með
þotum eða skemmtiferðaskipum verði skattlögð sérstaklega. Það er ekkert
sjálfgefið að það taki ekki í budduna að ganga á gæði jarðar. Með öðrum
hætti en skattlagningu verður þróuninni ekki snúið við. Hér á jörðu niðri
er margt hægt að gera. Við eigum ekki að sætta okkur við að metani sem
kemur úr okkar eigin sorpurðun sé brennt engum til gagns. Hægt væri að
knýja þúsundir bíla með því, en nú er þessu eldsneyti brennt dag og nótt
engum til gagns. Við þurfum heldur ekki einnota drykkjarílát eða skyrdósir
úr plasti. Við þurfum ekki að kaupa burðarpoka í hverri verslunarferð og
við þurfum ekki allt þetta umbúðafargan. Þótt okkur sé ekki tamt að flokka
rusl, þá eigum við að gera það. Enginn vandi er að jarðgera afganga úr eld-
húsinu og flokka úrgang í að minnsta kosti sjö til átta endurvinnanlega
hluta. Það gátu Danir gert fyrir þrjátíu árum þegar ég bjó ytra, en ennþá
eru flokkunarílátin okkar einungis tvö eða í besta falli þrjú! Að fjölga flokk-
um endurvinnanlegs sorps snýst um að koma sér í gang og hætta þessu væli.
Af því við verðum einfaldlega öll að leggjast á árar í þágu umhverfisverndar
og fyrir jörðina sem við höfum að láni.
Ef við gerum ekkert mun sá dagur upp renna, eins og segir í lokaerindi
Tómasar: „Þá verður oss ljóst að framar ei frestur gefst - né færi á að ráð-
stafa nokkru betur.“
Magnús Magnússon
Hjólað í vinnuna er verkefni sem
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands hefur staðið fyrir ár hvert frá
árinu 2003. Verkefnið nær yfir þrjár
vikur í maí á hverju ári og hefst í
dag, miðvikudaginn 8. maí og
stendur fram yfir þriðjudaginn 28.
maí. Tilgangurinn er að efla hreyf-
ingu og starfsanda á vinnustöðum
og er megin markmið verkefnisins
að vekja athygli á heilsusamlegum
og umhverfisvænum ferðamáta eins
og að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta
almenningssamgöngur. Hægt er að
skrá sig til leiks á www.hjoladivinn-
una.is. arg
Nýverið lauk Þorsteinn Guð-
mundsson verktaki á Fróðastöð-
um við jarðvegsskipti undir þrjú
síðustu húsin sem eftir á að byggja
við Hallveigartröð í Reykholti. Sig-
urður Magnússon byggingameist-
ari mun síðar í sumar hefja fram-
kvæmdir við smíði tveggja einbýlis-
húsa og eins raðhúss. Að sögn séra
Geirs Waage sóknarprests í Reyk-
holti var það fyrirtækið Reykholts-
staður ehf sem átti frumkvæði að
gerð Hallveigartraðar en með sam-
komulagi við þáverandi Borgar-
fjarðarsveit, sem síðar varð hluti
Borgarbyggðar. Var gatan því gerð
í einkaframkvæmd og hafist handa
um aldamótin. Eftir bankahrun-
ið 2008 varð Reykholtsstaður ehf.
hins vegar að leysa til sín þrjár lóð-
ir sem áður hafði verið úthlutað
og eru það síðustu þrjár óbyggðu
byggingalóðirnar við götuna. Nú
þegar er búið að selja annað ein-
býlishúsið og aðra parhússíbúðina
og segir Geir að Sigurður Magnús-
son muni byggja húsin og selja þau
sem eftir eru. Hvetur Geir áhuga-
sama kaupendur um að snúa sér til
Sigurðar. Geir segist leggja áherslu
á að lóðunum verði skilað fullbún-
um í takti við hið gróna land neðan
við Hallveigartröð þaðan sem út-
sýni er yfir staðinn. mm
Alþingi samþykkti í síðustu viku
ný lög um skóga og skógrækt. Sett
eru fram ný markmið m.a. varðandi
verndun náttúruskóga og aukna út-
breiðslu þeirra, ræktun skóga til
fjölþættra nytja og sjálfbæra nýt-
ingu skóga. Skógræktin er sú stofn-
un sem hefur eftirlit með fram-
kvæmd laganna og daglega stjórn-
sýslu á því sviði sem lögin ná til.
Lögin kveða jafnframt á um gerð
landsáætlunar í skógrækt sem fjallar
um stöðu og framtíð skóga í land-
inu, ásamt tölusettum markmið-
um um árangur. Vinna skal lands-
hlutaáætlanir í samráði við sveitar-
félög og aðra hagsmunaaðila sem
útfæra þá stefnu sem fram kemur
í landsáætlun. Lögin gera ráð fyr-
ir að Skógræktin geti tekið þátt í og
stutt við skógræktarverkefni sem
er á ábyrgð annarra svo sem ein-
staklinga, félagasamtaka eða sveit-
arfélaga. Sérstakur kafli fjallar um
skógrækt á lögbýlum og er víkk-
að út frá eldri lögum hvers konar
skógrækt fellur þar undir.
Sjálfbær nýting skóga er leiðar-
stef í nýjum lögum og kveða á um
að við fellingu skóga þurfi leyfi
Skógræktarinnar. Grundvallarregla
er að árleg felling í skógum lands-
ins skal að jafnaði ekki vera meiri
en árlegur vöxtur þeirra. Einnig
skal umhirða og nýting skóga mið-
ast við að skógarnytjar skili sem
mestum hagrænum, félagslegum
og umhverfislegum ávinningi fyrir
samfélagið. Varanleg eyðing skóga
er óheimil samkvæmt lögunum og
skal með slík mál farið í samræmi
við ákvæði laga um mat á umhverf-
isáhrifum.
„Það eru tímamót að nú sé búið
að samþykkja ný skógræktarlög.
Með þeim er mótaður mun skýr-
ari rammi fyrir stefnumótun og
skipulag skógræktar, vernd og end-
urheimt birkiskóga og nýtingu á
ræktuðum skógi,“ segir Guðmund-
ur Ingi Guðbrandsson, umhverfis-
og auðlindaráðherra. „Á grundvelli
nýrra laga um landgræðslu og skóg-
rækt verða nú unnar landsáætlanir
fyrir þessa náskyldu málaflokka. Sú
vinna mun skipta miklu þegar kem-
ur að framkvæmd á alþjóðasamn-
ingum hérlendis um loftslagsmál
og líffræðilega fjölbreytni,“ segir
ráðherrann. mm
Jarðvegsskipt fyrir
þrjú hús í Reykholti
Hjólað í
vinnuna
Ný lög um skóga og skógrækt
Daníelslundur við Svignaskarð í Borgarfirði.