Skessuhorn - 08.05.2019, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 13
Heimavist MA og VMA
Nánari
upplýsingar
og umsóknir
heimavist.is
TIL 7.JÚNÍÁ heimavistinni
búa 330
framhaldsskólanemendur
alls staðar að
af landinu
8 M
ÍNÚ
TUR
3 MÍNÚTUR
7 MÍ
NÚT
UR
3 MÍNÚTUR
15
M
ÍN
ÚT
UR
2
M
ÍN
ÚT
UR
3
M
ÍN
ÚT
UR
MENNINGARHÚS
SU
ND
RÆ
KT
IN
ÍÞ
RÓ
TT
AH
ÚS
M
IÐBÆ
RINN
VERSLANIR
BÍÓHÚS
LYSTIGARÐURINN
KAFFIHÚS
HL
ÍÐ
AR
FJ
AL
L
VE
IT
IN
GA
RS
TA
ÐU
R
HE
IM
AV
IST
MA
OG VMA Á AKUREYRI
SUND
RÆKTIN
Auðarskóli
Ábyrgð – Ánægja – Árangur
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Auðarskóli óskar eftir að ráða
í eftirfarandi stöður skólaárið
2019-2020
Kennarar í Auðarskóla
Við Auðarskóla er laus 100% staða umsjónarkennara á unglingastigi og
100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi fyrir skólaárið 2019-2020.
Umsjónarkennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina eru:
Íslenska
Samfélagsfræði
Erlend tunugmál
Val
Umsjónarkennsla á yngsta stigi, meðal kennslugreina eru:
Stærðfræði
Íslenska
Náttúrufræði
Samfélagsfræði
Enska
Mikilvægt er að umsækjendur búi að:
Færni í samskiptum
Frumkvæði í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu
Auðarskóla í teymiskennslu.
Umsóknarfrestur er til 17.maí 2019
Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til þess að kenna í grunnskóla.
Umsóknir um starfið berist á netfangið keli@audarskoli.is. Í umsókninni
þurfa að vera ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Upplýsingar um
starfið veitir Þorkell aðstoðarskólastjóri í síma 4304757.
Margrét Björk Björnsdóttir tók
við starfi forstöðumanns Markaðs-
stofu Vesturlands um mánaðamót-
in síðustu. Síðast gegndi starfinu
Rósa Gréta Ívarsdóttir sem nú er
flutt erlendis. Margrét Björk, eða
Maggý eins og hún er oftast köll-
uð, er vel kunnug Vesturlandi enda
borinn og barnfæddur Snæfelling-
ur og starfar hjá Samtökum sveit-
arfélaga á Vesturlandi. Hún er m.a.
höfundur skýrslunnar um Áfanga-
staðaáætlun Vesturlands sem gefin
var út í vetur.
Margrét Björk var í fyrsta út-
skriftarhópnum sem lauk BA námi í
ferðamálum frá Háskólanum á Hól-
um. BA verkefnið hennar fjallaði
um ferðamál, sjálfsvirðingu samfé-
laga og byggðaþróun. Hún er því
ferðamálafræðingur að mennt en
hefur einnig lokið diplóma í verk-
efnastjórnun og leiðtogafræðum
frá EHÍ, stofnun og rekstri smá-
fyrirtækja frá Viðskiptaháskólan-
um á Bifröst og ferðamálum dreif-
býlis frá Hólaskóla. Margrét Björk
hefur starfað sem atvinnuráðgjafi
hjá SSV-þróun og ráðgjöf síðast-
liðin ellefu ár, en hefur einnig sinnt
verkefnastjórn í ýmsum verkefnum
sem lúta að byggðaþróun og ferða-
málum.
„Starfið mitt hjá SSV hefur þró-
ast í áranna rás. Ég hef bætt við
mig þekkingu í verkefnastjórnun
og leiðtogahæfni og hef verið verk-
efnisstjóri í nokkrum sérverkefnum
sem flest tengjast ferðamálum og
byggðaþróun. Ég tók einnig þrjá
MS kúrsa í skipulagsfræðum við
LbhÍ til að skerpa skilning minn
á skipulagsmálum þegar þau voru
orðin stór þáttur í ferðamálaum-
ræðunni. Síðasta árið hef ég svo
unnið fyrir Markaðsstofu Vest-
urlands sem verkefnisstjóri fyrir
Áfangastaðaáætlun Vesturlands sem
unnin var undir verkstjórn og fyrir
Ferðamálastofu. Í beinu framhaldi
af vinnunni við Áfangastaðaáætlun
Vesturlands fékkst stuðningur til
að vinna að fjórum áhersluverkefn-
um árin 2019 og 2020 til að stuðla
að ábyrgri uppbyggingu ferðamála
á Vesturlandi og hef ég unnið að
kynningu á Áfangastaðaáætlun og
innleiðingu á þeim verkefnum síð-
astliðna mánuði. Ég þekki því vel til
stöðu mála, væntinga og framtíðar-
sýn varðandi ferðamál á Vesturlandi
og hlakka til að vinna með öllu því
góða fólki sem tengist ferðamálum
á Vesturlandi og takast á við þau
spennandi en jafnframt krefjandi
verkefni sem blasa við til að efla
gæði og ábyrga uppbyggingu ferða-
mála og kynna Vesturland sem eft-
irsóknarverðan áfangastað,” segir
Margrét Björk. mm
Sveitarstjórnarráðstefnu Vinstri
hreifingarinnar græns framboðs fór
fram á Akranesi síðastliðinn laugar-
dag. Ráðstefnunni lauk undir kvöld
með því að gestir réðust í plokk
ásamt Guðmundi Inga Guðbrands-
syni umhverfisráðherra. „Aðgerð-
in rímaði vel við efni fundarins
sem fjallaði bæði um umhverfis- og
heilbrigðismál og héldu bæði Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, um-
hverfisráðherra og Svandís Svav-
arsdóttir, heilbrigðisráðherra erindi
á fundinum. Loftslagsverkfall ung-
menna var sérliður á dagskránni, en
Elsa María Guðlaugs Drífudóttir,
formaður Landssambands íslenskra
stúdenta og ein af skipuleggjendum
Loftlagsverkfallsins, sagði frá hug-
myndafræði og kröfum verkfalls-
ins en Elsa María á einmitt heima á
Akranesi,“ segir í tilkynningu.
Átján sveitarstjórnarráðsliðar
VG sátu fundinn sem einnig var vel
sóttur af þingmönnum, almenn-
um VG félögum og fleiri gestum,
en um sjötíu manns mættu á opna
hluta fundarins. Bjarni Jónsson,
sveitarstjórnarmaður í Skagafirði
og varaþingmaður skipulagði sveit-
arstjórnarþingið og stýrði fundi.
Heimamenn og langt að komnir
sveitarstjórnarmenn tóku svo þátt
í plokkinu með umhverfisráðherra
að loknum fundi. Plokkaðir voru
tveir kílómetrar kringum vitann á
Breið og var pallbíll fenginn ofan af
Mýrum til að koma ruslinu á sinn
stað í Fíflholtum.
mm
Margrét Björk tekur við starfi forstöðu-
manns Markaðsstofunnar
Margrét Björk Björnsdóttir.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og borgarfulltrúinn Líf
Magneu dóttur plokka á Breiðinni.
Umhverfi og
heilsa sem
sveitarstjórnarmál