Skessuhorn - 08.05.2019, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 201914
Hann Magnús Jónsson á Arney SH
var ekki lengi að ná dagsskammtin-
um á fyrsta strandveiðidegi vikunn-
ar. Var hann kominn að landi fyrir
níu á mánudagsmorgni með leyfi-
legan afla og lét vel af veiðinni. tfk
Mokveiði hefur verið frá Akranesi
undanfarnar vikur. Línubátar leggja
fyrir þorsk, grásleppuvertíðin er haf-
in og þá hófst strandveiðitímabilið
fimmtudaginn 2. maí. Böðvar Ingva-
son hefur umsjón með útibúi Fisk-
markaðs Snæfellsbæjar á Akranesi.
Hann var að vonum hinn ánægðasti
þegar Skessuhorn ræddi við hann á
hlaupum á hafnarsvæðinu. „Und-
anfarið höfum við verið að landa í
kringum 50 tonnum á dag, en voru
kannski tíu tonn áður,“ segir Böðv-
ar. „Markaðurinn er að taka við sér
og við reynum að veita sjómönnum
góða þjónustu svo að þeir komi til
okkar. Það byggist allt á því,“ bæt-
ir hann við. „Enda hafa fleiri bátar
verið að koma hingað,“ skýtur Jón
Sigurðsson að, en hann leysti Einar
Guðmundsson af í hafnarvörslunni
þennan daginn.
Flestir bátarnir sem róa frá Akra-
nesi þessa dagana hafa verið við
veiðar skammt frá, inni í Hvalfirði
og vestur af Akranesi. „Það hef-
ur verið alveg landburður af fiski,“
segir Böðvar, „og alveg boltafiskur
allt saman,“ bætir Jón við og Böðv-
ar tekur undir það. „Þorskurinn er
vel haldinn og selst á toppverði,
hæsta verði sem fæst á landinu suma
daga,“ segja þeir.
Gengið ágætlega
Þrír línubátar vestan af fjörð-
um hafa verið við veiðar frá Akra-
nesi undanfarið; Einar Guðna-
son ÍS, Fríða Dagmar ÍS og Jón-
ína Brynja ÍS. „Við komum hingað
síðasta laugardag en róum alla jafna
frá Bolungarvík,“ sagði Sigurður
Hálfdánarson á Jónínu Brynju ÍS,
þegar Skessuhorn ræddi við hann
á bryggjunni á Akranesi síðdegis
á fimmtudag. Þann daginn lönd-
uðu skipverjar einum 18 kössum
upp úr bátnum. „Ég hefði nú vilj-
að ná meiru í dag, við lönduðum
13 tonnum í gær. En heilt yfir hef-
ur þetta bara gengið ágætlega þessa
daga sem við höfum verið hérna og
fiskurinn fínn,“ sagði Sigurður.
kgk
Strandveiðar hófust í ellefta sinn
fimmtudaginn 2. maí síðastlið-
inn og standa yfir út ágústmánuð.
Strandveiðunum fylgir jafnan líf
og fjör við hafnir landsins. Sú var
sannarlega raunin á Akranesi þegar
bátarnir lögðust að bryggju síðdeg-
is með full kör af boltafiski.
„Ég fékk þennan hérna úti í
Faxaflóa, bara norður af Baulurif-
inu,“ segir Frímann Jónsson á Önd-
inni AK, hæstánægður með einkar
myndarlegan þorsk sem hann land-
aði á Akranesi á fimmtudag. Sá var
heldur betur af stærri gerðinni.
Góð aflabrögð hafa verið frá
Skaganum síðustu vikur, margir að
róa og fiskurinn vel haldinn. „Það
er búið að vera alveg mok undan-
farið. Mjög fallegur fiskur og mjög
víða góður fiskur. Ég var að byrja
á strandveiðunum í dag, en var bú-
inn að róa nokkra róðra inn í Hval-
fjörð og þar var góður fiskur líka.
Það eru margir að róa þessa dagana
en það eru allir búnir að vera að
fiska, líka línubátarnir og netabát-
arnir,“ segir Frímann, sem reiknar
með því að róa á strandveiðar allt
tímabilið.
Um leið og Frímann var búinn
að landa úr Öndinni lagðist Viðvík
SH að bryggju eftir dag á strand-
veiðum. Löndunarkraninn var
ræstur og hafist handa við að hífa
körin upp á bryggjuna. Ekki voru
það síðustu körin þann daginn, því
margir réru frá Akranesi þennan
fyrsta dag strandveiðanna.
kgk
Landburður af fiski
Verið að landa upp úr Jónínu Brynju ÍS, sem er einn þriggja línubáta vestan af fjörðum sem landað hafa á Akranesi undan-
farið.
Böðvar Ingvason mættur á lyftaranum að færa fiskinn á markaðinn. Boltafiskur í körum á Akraneshöfn laust eftir hádegið á fimmtudag.
Sigurður Hálfdánsson á Jónínu Brynju ÍS. Körin þrifin.
Líf og fjör í Akraneshöfn síðdegis á fimmtudag. Verið að landa úr Viðvík SH til
hægri í mynd, Jónína Brynja ÍS fyrir miðju og Sæli AK lengst til vinstri.
Mjög víða góður fiskur
Frímann Jónsson með boltaþorsk sem
hann fékk á fyrsta degi strandveið-
anna.
Um leið og búið var að hífa körin úr Öndinni lagðist Viðvik að bryggju og lönd-
unarkraninn var ræstur að nýju.
Myndarlegur strandveiðiþorskur.
Kominn úr strandveiðitúr
fyrir klukkan níu