Skessuhorn - 08.05.2019, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 23
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Matreiðslumaður
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði leitar að faglærðum matreiðslumanni til að stýra
mötuneyti Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Mötuneytið er rekið í anda heilsueflandi framhalds-
skóla og áhersla lögð á hollan og næringarríkan mat. Viðkomandi þarf að vera hugmyndaríkur
og sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa farsæla reynslu af svipuðum rekstri, góða færni í mann-
legum samskiptum og áhuga á að umgangast ungt fólk.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2019. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og við-
komandi stéttarfélags og skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skóla-
meistara í netfangið hrafnhildur@fsn.is . Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga,
Grundargötu 44, 350 Grundarfjörður
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um
sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 27.maí 2019.
Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari í netfangi hrafnhildur@fsn.is eða í síma 865-0424 og Sólrún Guð-
jónsdóttir aðstoðarskólameistari í netfangi solrun@fsn.is . Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar
upplýsingar um skólann.
Námsráðgjafi
Við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði er laus til umsóknar 50 % staða námsráðgjafa.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í námsráðgjöf.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2019.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með
upplýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið
hrafnhildur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44,
350 Grundarfirði.
Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2019.
Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa
við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga.
Sakavottorð fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar veitir aðstoðarskólameistari, Sólrún Guðjónsdóttir, solrun@fsn.is og skólameistari,
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir hrafnhildur@fsn.is.
Einnig er hægt að hafa samband í síma 430-8400. Á vef skólans www.fsn.is
má auk þess finna ýmsar upplýsingar um skólann.
Framhaldskólakennarar–
Fjölbrautaskóli Snæfellinga
Fjölbrautaskóla Snæfellinga Grundarfirði óskar eftir að ráða framhaldskólakennara næstkomandi
skólaár 2019-2020. Meðal kennslugreina eru líffræði, efnafræði og eðlisfræði. Um er að ræða
hlutastörf í hverri grein. Einnig er laus til umsóknar tímabundin staða framhaldsskólakennara í
íþróttum og næringarfræði á haustönn 2019. Um hálfa stöðu er að ræða.
Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru nýting upplýsingatækni í skólastarfi, fjölbreyttar
verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og námsmat með sérstakri áherslu á leiðsagnarmat.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólamenntun í fagi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum
sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi og uppbyggingu
náms í samræmi við ný lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008). Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2019.
Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum. Umsókn með ferilskrá, prófskírteinum, sakavottorði og með upp-
lýsingum um umsagnaraðila skal senda rafrænt til skólameistara Fjölbrautaskóla Snæfellinga á netfangið hrafnhild-
ur@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.
Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við
framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga.
Umsóknarfrestur er til og með 27.maí 2019.
Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari hrafnhildur@fsn.is og Sólrún Guðjónsdóttir aðstoðarskólameistari á net-
fanginu solrun@fsn.is. Einnig er hægt að hafa samband í síma 430-8400. Á vef skólans www.fsn.is má auk þess
finna ýmsar upplýsingar um skólann.
Skólameistari
Vinnupeysa
3.990
kr,-
Eiríkur
Skagabraut 6, Akranesi
sími: 431-5110/666-5110
smaprent@smaprent.isSmáprent
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Sker og Útgerðin í samstarf
Rut Ragnarsdóttur hjá Útgerðinni
í Pakkhúsinu í Ólafsvík og Lilja
Hrund Jóhannsdóttir hjá Sker Res-
taurant hófu samstarf í síðustu viku.
Samstarfið byggir á því að hjá Út-
gerðinni verður verða til sölu létt-
ar veitingar frá Sker Restaurant.
Samstarfinu var fagnað 1. maí síð-
astliðinn þar sem gestum var boð-
ið að njóta léttra veitinga í Pakk-
húsinu þar sem meðal annars var
boðið upp á sushi frá Sker Restaur-
ant. Fyrst um sinn verður alla daga
hægt að fá vefjur og salöt auk þess
sem sushibakkarnir verði í boði við
tækifæri. Þá segir á Facebook síðu
Útgerðarinnar að þær stöllur ætli
að leika sér aðeins með framboð-
ið svona fyrst um sinn svo það er
aldrei að vita hvað verður í boði að
gæða sér á í Pakkhúsinu. „Vörurnar
okkar verða auðvitað áfram á sínum
stað og fólk getur einfaldlega litið
við og náð í gómsætan bita frá báð-
um fyrirtækjum á einum stað. Frá-
bær valkostur fyrir þá sem vilja eitt-
hvað hollt, fljótlegt og þægilegt,“
segir í færslu á Facebook síðu Út-
gerðarinnar.
arg
Lilja Hrund og Rut eru í samstarfi um veitingasölu. Ljósm. þa