Skessuhorn


Skessuhorn - 08.05.2019, Síða 29

Skessuhorn - 08.05.2019, Síða 29
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 29 Borgarbyggð - miðvikudagur 8. maí Menningarferð Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum verður farin í Dalasýslu frá kl. 9:00 til 19:00. Dalabyggð - miðvikudagur 8. maí Fræðslufundur fyrir almenning í Rauða kross húsinu við Vesturbraut 12 í Búðardal. Er hægt að koma í veg fyrir heilablóðfall? Þekkirðu einkennin? Hvað ber að varast? Þórir Steingrímsson og Baldur B. E. Kristjánsson frá Heilaheill fræða. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Heitt á könnunni. Akranes - fimmtudagur 9. maí Styrkleikanámskeið. Hvað er það besta við þig? Hvernig ertu þegar þú ert í essinu þínu? Gætir þú þegið meiri orku og gleði í líf þitt? Námskeiðið Styrkleikarnir þínir verður haldið á fimmtudögum frá kl. 17-19 í fjögur skipti frá og með 9. maí. Kennari er Steinunn Eva Þórðardóttir. Borgarbyggð - fimmtudagur 9. maí Skallagrímur mætir Álftanesi í 3. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 20:00 á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Akranes - föstudagur 10. maí Fyrsti leikur ÍA í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu þetta sumarið. Skagakonur mæta FH á Akranesvelli kl. 19:15. Akranes - föstudagur 10. maí Dúndurfréttir í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi kl. 21:30. Mjög fjölbreytt blanda af alls konar rokki, mjúkt og hart þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Miðasala á www.midi.is. Borgarbyggð - laugardagur 11. maí Stórsýning Rafta og Fornbílafjelags Borgarfjarðar í Brákarey kl. 11:00. Bifhjóla- og fornbílasýning. Aðgangur ókeypis. Kaffi- og vöfflusala. Hvalfjarðarsveit - sunnudagur 12. maí Tónleikar til styrktar Hallgrímskirkju í Saurbæ kl. 16:00. Guðmundur Sigurðsson organisti silar verk eftir Friðrik Bjarnason, Dietrich Buxtehude, Johann Sebastian Bach, Jóhann Jóhannsson, Smára Ólafsson, George Shearing og Johann Pachelbel. Kór kirkjunnar mun flytja nokkur lög í upphafi tónleikanna. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Ekki tekið við kortum. Hótel Glymu verður með tilboð handa tónleikagestum. Grundarfjörður - sunnudagur 12. maí Tónleikar í Grundarfjarðarkirkju kl. 20:00. Fram koma Tindatríó og Friðrik Vignir organisti. Borgarbyggð - þriðjudagur 14. maí Grettissaga Einars Kárasonar. Einn af okkar virtustu rithöfundum og rómuðustu sagnamönnum, Einar Kárason, mun stíga á stokk á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi og flytja Grettissögu. Einar er sá listamaður sem hefur verið með flestar frumsýningar í Landnámssetrinu. Núna ætlar hann að segja okkur eina vinsælustu Íslendingasöguna, söguna um ógæfumanninn Grettir Ásmundsson. Miðasala á www.landnam.is. Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni Íbúð í Borgarnesi Til leigu er tveggja herbergja íbúð við Hrafnaklett 8 í Borgarnesi. Leiguverð kr. 140 þúsund. Hitaveita og hússjóður innifalinn. Upplýsingar í síma 864-5542 eða karlsbrekka@outlook.com. Stúdíóherbergi í Borgarnesi Til leigu er stúdíóherbergi með húsgögnum á besta stað í Borgarnesi. Laust strax. Nánari upplýsingar í síma 860-8588. Skrifstofa til leigu Til leigu er björt og góð skrifstofa á Akranesi. Sameiginlegur aðgangur að kaffistofu og snyrtingu með annarri starfsemi. Uppl. sími 894-8998. Markaðstorg Vesturlands LEIGUMARKAÐUR 1. maí. Drengur. Þyngd: 3.936 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Halla Sigríður Bragadóttir og Arnar Óðinn Arnþórsson, Akranesi. Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir. S K E S S U H O R N 2 01 9 Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólanum Skýjaborg, Hvalfjarðarsveit fyrir næsta skólaár Skýjaborg er í tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku. Deildarstjórar og leikskólakennarar fá aukin undirbúningstíma miðað við kjarasamning (leikskólakennarar 5 klst. og deildarstjórar 7 klst.). Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Leikskólakennaranemar geta gert samning og haldið dagvinnulaunum í staðarlotum og í vettvangsnámi í allt að 7 vikur á ári. Umsóknarfrestur er til 27. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar um helstu verkefni, ábyrgð, hæfniskröfur og umsóknarfyrirkomulag er að finna á https://skoli.hvalfjardarsveit.is. litu Kynningarfundur Í samræmi við ákvæði starfsleyfa Norðuráls, Elkem Ísland og Als álvinnslu, boðar Umhverfisstofnun til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunareftirlits og umhverfisvöktunar á Grundartanga þriðjudaginn 14. maí nk. að Hótel Glym, Hvalfjarðarsveit kl. 15:30. Dagskrá fundar Fundarstjóri:• Ragna Ívarsdóttir Mengunareftirlit Umhverfisstofnunar• – Halla Einarsdóttir Niðurstöður eftirlits 2018 • – Einar Halldórsson Niðurstöður Umhverfisvöktunar á Grundartanga • 2018 – Alexandra Kjeld Vanda Úlfrún Liv Hellsing• frá Norðurál flytur erindi Sigurjón Svavarsson• frá Elkem flytur erindi Umræður • að loknum framsögum. ! 5. maí. Drengur. Þyngd: 3.005 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Sigurbjörg Erna Halldórsdóttir og Friðjón Örn Magnússon, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Hafdís Rúnarsdóttir. 5. maí. Stúlka. Þyngd: 3.364 gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Ólafía Kristjánsdóttir og Andri Már Engilbertsson, Akranesi. Ljósmóðir: G. Erna Valentínusdóttir og Eva Berglind Tulinius nemi.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.