Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Side 6

Skessuhorn - 15.05.2019, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 20196 Færa fornbíla til skoðunar BORGARNES: Árleg forn- bílaskoðun hjá Frumherja í Borgarnesi verður föstu- daginn 17. maí frá kl. 16.00 til kl. 20.00. Skoðunargjald er 3.500 krónur fyrir hvern fornbíl félagsmanns í Fornbí- lafjelagi Borgarfjarðar. „Þeir fornbílaeigendur sem eiga bíla á Samgöngusafninu bera sjálfir ábyrgð á því að færa sína bíla til skoðunar eða að fela það öðrum. Hafist verð- ur handa við að taka út bíla af safninu kl. 16.00. Skráða fornbíla skal færa til skoð- unar annað hvert ár. Upplýs- ingar þar um má finna á vef Samgöngustofu,“ segir í til- kynningu frá Fornbílafjelag- inu til félagsmanna. -mm Elsa Lára að- stoðarskóla- stjóri AKRANES: Elsa Lára Arn- ardóttir hefur verið ráð- in í stöðu aðstoðarskóla- stjóra Brekkubæjarskóla á Akranesi og tekur við starf- inu af Magnúsi V Benedikts- syni. Níu sóttu um stöðuna en einn dró umsókn sína til baka. Elsa Lára hefur með hléum starfað sem umsjón- arkennari við skólann. Hún er með B.ed gráðu í grunn- skólakennarafræðum og er að ljúka meistaranámi í for- ystu og stjórnun við Háskól- ann á Bifröst. Elsa Lára hef- ur mikla reynslu af kennara- störfum og er einnig með margþætta aðra reynslu af stjórnun og skipulagningu. Þá hefur hún setið á Alþingi og er auk þess í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. -mm Brutu rúður í vita GRUNDARFJ: Lögreglu var tilkynnt um eignaspjöll á Hnausavita við norðanvert Kirkjufell í vikunni sem leið þegar kom í ljós að rúður höfðu verið brotnar. Vitinn er einnig kallaður Grund- arfjarðarviti og var byggður árið 1945. Að sögn lögreglu var birt tilkynning um spjöll- in á Facebook-síðu Grund- arfjarðarbæjar. Þar var óskað eftir upplýsingum almenn- ings um hugsanlegar manna- ferðir við vitann. Í kjölfar þess komst upp hverjir voru að verki og reyndust það vera krakkar. Að sögn lögreglu var fundin mjög farsæl lausn í málinu. Ekki hefur verið gerð bótakrafa á foreldrana heldur ætlar umsjónarmaður vitans að fá að hitta krakkana, fræða þá um sögu Hnausavita og fá þá til að hjálpa sér að þrífa og laga til eftir skemmdirnar sem þeir ollu. -kgk Þungunarfrum- varp að lögum ALÞINGI: Frumvarp heil- brigðisráðherra um þungun- arrof var samþykkt á Alþingi á mánudaginn. Hlaut það stuðn- ing 40 þingmanna, gegn at- kvæðum 18, þrír greiddu ekki atkvæði og fjórir voru fjarver- andi við atkvæðagreiðsluna. At- hygli vakti að þingmenn Sjálf- stæðisflokksins klofnuðu í af- stöðu sinni til frumvarpsins og greiddi Bjarni Benediktsson formaður flokksins t.d. atkvæði gegn því. Aðrir stjórnarflokkar greiddu atkvæði með því. Hart hafði verið tekist á um frum- varpið, einkum það ákvæði þess að kona hafi óskertan rétt til að fá þungun rofna fram að lokum 22. viku meðgöngu. Inga Sæ- land formaður Flokks fólksins barðist einarðlega gegn því að frumvarpið yrði samþykkt. Til- laga Miðflokksins um frestun atkvæðagreiðslu um frumvarp- ið var felld sem og breytingar- tillaga Páls Magnússonar Sjálf- stæðisflokki um að þungunarrof megi í síðasta lagi verða gert í 20. viku meðgöngu. -mm Gestkvæmt hjá löggunni VESTURLAND: Skóla- krakkar hafa komið í þónokkr- ar starfskynningar hjá Lögregl- unni á Vesturlandi undanfar- ið. Þá koma krakkarnir í heim- sókn á lögreglustöð og fræðast almennt um starfsemina, sem lögregla segir hið besta mál. -kgk Olíu stolið BORGARNES: Lögreglunni á Vesturlandi var tilkynnt um þjófnað á eldsneyti að morgni miðvikudagsins 8. maí. Hafði hvorki meira né minna en 200 lítrum af olíu verið stolið af bif- reið sem stóð á lóð Vegagerð- arinnar við Borgarbraut í Borg- arnesi. -kgk Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi, sem leikur fyrir Kent State háskólann í Ohio fylki í Bandaríkjunum var á dögunum val- inn í úrvalslið Mið-Ameríku deild- arinnar eftir yfirstandandi tímabil í háskólagolfinu. Það eru þjálfarar þeirra níu skóla sem leika í deild- inni sem velja í úrvalsliðið og því er góð viðurkenning fyrir Bjarka að komast í liðið en hann er á sínu lokaári í háskólanum. Borgnesing- urinn lék að meðaltali á 73 höggum á þessu ári og endaði fjórum sinn- um í topp-20. glh Nýverið var í Moskvu fundað um fiskveiðisamning, svokallaðan Smugusamning, milli íslenskra og rússneskra stjórnvalda. Snýst samn- ingurinn um þorskveiðar Íslands í rússneska hluta Barentshafsins og felur í sér að íslensk fiskiskip gefa veitt 6.592 tonn af þorski í rúss- neska hluta Barentshafsins 2019 auk allt að 1.978 tonna af öðrum tegundum, en þar af getur þó ýsu- afli aldrei orðið meiri en 521 tonn. Jafnframt var samið um svokall- aðan sölukvóta sem er um það bil þriðjungur af því magni sem nefnt var hér að framan. Á móti fá rúss- nesk fiskiskip 1.500 tonn af makríl og 2.000 tonn af kolmunna frá Ís- landi sem þau geta veitt á alþjóð- legu hafsvæði. Þessar aflaheimild- ir eru teknar af þeim heildarafla sem Ísland hefur ákveðið í þessum tveimur fisktegundum. mm Skaginn 3X mun setja upp vinnslu- búnað fyrir sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í línuskipið Pál Jónsson GK, sem er í smíðum og verður væntan- lega tilbúið til afhendingar í haust. Samningur þar að lútandi var und- irritaður milli fyrirtækjanna á sjáv- arútvegssýningunni í Brussel í síð- ustu viku. Samningurinn hleypur á tugum milljóna íslenskra króna, segir í tilkynningu. „Fyrirtæk- in hafa átt farsælt samstarf í gegn- um tíðina og síðasta samstarfsverk- efni var að setja upp búnað í skipið Sighvat GK. Nýi búnaðurinn bætir alla aflameðhöndlun, svo sem blæð- ingu, kælingu, flokkun og frágang afla í lest. Verkefnið er að hluta til unnið með Marel, sem mun með- al annars sjá um flokkara og ann- an búnað,” segir Freysteinn Nonni Mánason, sölustjóri hjá Skaganum 3X. mm Bjarki í úrvalslið Mið-Ameríku deildar Jóhann Guðmundsson formaður íslensku samninganefndarinnar og S. Simakov formanni rússnesku sendinefndarinnar. Samið um Smuguveiðar við Rússa Skaginn 3X selur Vísi vinnslubúnað í nýjan Pál Jónsson

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.