Skessuhorn - 15.05.2019, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 201916
Á þriðjudagskvöldið í síðustu viku
kom eldur upp í vinnu- og hæf-
ingarstaðnum Fjöliðjunni á Akra-
nesi. Talsverðar skemmdir urðu á
húsnæðinu og ljóst að hefðbundin
starfsemi leggst þar niður í nokk-
urn tíma, en starfseminni verður
komið fyrir á Smiðjuvöllum 9 til
bráðabirgða. Eldsvoðinn var mik-
ið áfall fyrir starfsmenn Fjöliðj-
unnar og að sögn Ástu Pálu Harð-
ardóttur, yfirþroskaþjálfa í Fjöliðj-
unni, er mikil sorg innan hópsins.
Ásta Pála hefur unnið sem þroska-
þjálfi í Fjöliðjunni frá árinu 1998,
þó með þriggja ára pásu. Hennar
starf er fyrst og fremst að stýra fag-
legu starfi á vinnustaðnum og gæta
að hagsmunum starfsfólksins.
Ekki bara vinnustaður
Í Fjöliðjunni starfa margir ólík-
ir einstaklingar og hefur bruninn
mikil áhrif á marga þeirra. „Þetta
er ekki bara vinnustaður því fyrir
marga starfsmenn er þetta svo miklu
meira. Fjöliðjan er fasti punkturinn
í tilverunni hjá mörgum og brun-
inn raskar daglegum ryþma sem
getur haft mikil áhrif. Skilning-
ur á aðstæðunum er misjafn með-
al starfsfólksins og sumir skilja ekki
af hverju þau geti ekki bara mætt
í vinnuna. Það er mitt hlutverk að
aðstoða þau í þessum aðstæðum,“
segir Ásta Pála. „Það er líka mikil-
vægt fyrir flesta að geta mætt, ekki
bara fyrir vinnuna, heldur einnig
félagsskapinn. Við erum mjög sam-
heldinn hópur og miklir vinir. Hjá
okkur starfa einnig einstæðingar
sem eru kannski mikið einir nema
í vinnunni. Við fáum alltaf heitan
mat í hádeginu og setjumst saman
niður að borða eins og ein stór fjöl-
skylda. Það er því erfitt að komast
ekki og hitta alla vini sína á hverjum
degi,“ segir Ásta Pála.
Mikill samhugur
í samfélaginu
Morguninn eftir brunann hittist
starfsfólk Fjöliðjunnar heima hjá
Ástu Pálu og ræddu um brunann
og aðstæðurnar sem nú eru komn-
ar upp. „Við hefðum getað fengið
fundarsal til að hittast í en mér þótti
það ekki boðlegt í þessum aðstæð-
um. Mér þótti mikilvægt að hitt-
ast ekki á svo ópersónulegum stað
og bauð þeim heim til mín. Þráinn
prestur kom og spjallaði við okk-
ur en hann hefur verið mikill vin-
ur okkar í Fjöliðjunni. Það var sam-
eiginleg ákvörðun okkar Þráins að
hann myndi ekki einungi koma til
okkar þegar það væri sorg svo hann
hefur oft komið í óformlegar heim-
sóknir og spjallað við okkur. Starfs-
fólkið þekkir hann vel og Þráinn er
mikill vinur okkar allra. Hann brást
strax við og kom til okkar og ætlar
að bjóða okkur í Vinaminni til að
hittast og eiga góða stund saman og
mér þykir mjög vænt um það,“ seg-
ir Ásta Pála. Hún segist finna mik-
inn samhug í samfélaginu. „Mað-
ur verður bara meyr og gríðarlega
þakklátur fyrir þann meðbyr sem
við finnum úr samfélaginu. Það
þykir öllum vænt um Fjöliðjuna og
fólk vill að vel sé hlúð að starfsem-
inni þar og það er gott að finna,“
segir hún.
Mikilvægt að húsnæði
uppfylli kröfur
Strax í kjölfar brunans var hafist
handa við að leita að öðru húsnæði
til að hýsa starfsemi Fjöliðjunnar.
„Við erum búin að skoða húsnæði
sem gætu nýst okkur til skamms
tíma en það þarf þó aðeins að að-
laga aðstöðuna að þörfum starfs-
fólksins,“ segir Ásta Pála. „En það
er mikilvægt að húsnæðið uppfylli
allar þarfir okkar því starfsfólk-
ið á rétt á að geta mætt til vinnu
þar sem þeirra þörfum er mætt. Ég
mun aldrei geta samþykkt húsnæði
sem ekki uppfyllir þær kröfur, þá
væri ég að fara alveg gegn eigin
sannfæringu og það gæti ég ekki,“
bætir hún við. Því má við þetta
bæta að eftir að rætt var við Ástu
Pálu var gengið frá leigu á hús-
næði í Akurshúsinu að Smiðjuvöll-
um 9. Hún segir að flutningurinn í
annað húsnæði gæti reynst mörgu
starfsfólkinu erfiður og segir Ásta
Pála því mikilvægt að staðið verði
að honum á nærgætinn hátt. „Það
kom til dæmis upp sú hugmynd að
skipta hópnum upp, en það kemur
ekki til greina að mínu mati. Þetta
eru miklar breytingar og ef við
færum að stía í sundur myndi það
hafa mjög slæm áhrif á heildina.
Þetta er viðkvæm þjónusta sem við
verðum að hlúa vel að og ég mun
gera allt sem ég get til að tryggja
að svo verði.“
Óttast helst
að daga uppi
Rétt fyrir brunann kom í ljós að
mygla væri í húsinu við Dalbraut
10 og því lá fyrir að það þyrfti að
fara í framkvæmdir. „Það þarf því
ekki bara að meta skemmdir eftir
brunann heldur líka mygluna. Nú
þarf bara að meta hver sé skyn-
samlegasta lausnin í þessari stöðu,
hvort eigi að byggja upp hús-
ið eða byggja nýtt. Staðsetningin
við Dalbrautina er mjög ákjósan-
leg fyrir starfsemina, það er mið-
svæðis og allir geta komið sér sjálf-
ir í vinnu, gangandi eða á hjóli,“
segir Ásta Pála. Hún segir stað-
setninguna einnig skipta starfsfólk
Fjöliðjunnar máli því margir hafi
tengst staðnum. „Við búum í bæj-
arfélagi sem hefur gefið það út að
hlúa vel að öllum íbúum, líka þeim
sem þurfa á þjónustu eins og Fjöl-
iðjunni að halda.“
Stolt af starfsfólkinu
Starfsfólk Fjöliðjunnar bíður nú
eftir að geta hafið störf aftur og
segir Ásta Pála biðina eiga eftir
að vera erfiða fyrir marga. „Sem
betur fer erum við heppin með
fólk hér á Akranesi og allir eru til-
búnir að hjálpa. Heiðrún Janusar-
dóttir hefur boðið okkur að hittast
fyrir hádegi í Þorpinu. Það er svo
mikilvægt fyrir starfsfólkið að hitt-
ast sem oftast á meðan við bíðum
eftir að geta byrjað að vinna aftur.
Ég vona bara að biðin verði ekki
löng og er bjartsýn því það er mik-
ill hugur í öllum,“ segir Ásta Pála
og brosir. Hún segist einnig mjög
ánægð með viðbrögð starfsfólks-
ins. „Þau hafa sýnt mikið æðru-
leysi og eru öll mjög skynsöm og
frábær. Ég gæti ekki verið stoltari,“
segir Ásta Pála að lokum.
arg
Ásta Pála, yfirþroskaþjálfi hjá Fjöliðjunni, segir mikilvægt að starfsfólkið komist sem fyrst aftur til vinnu.
Mikil sorg vegna bruna í Fjöliðjunni í síðustu viku
Á Kaffi Emil í Grundarfirði var
opnuð listasýning á þriðjudag-
inn í síðustu viku. Listamaður-
inn á bakvið verkin er Þjóðverjinn
Anno Weihs og er þetta önnur sýn-
ingin sem hann setur upp á Kaffi
Emil. Á sýningunni eru svokölluð
Cyanotypes verk sem hann hefur
unnið hér á Íslandi síðustu mán-
uði. Cyanotypes er ævagömul að-
ferð til að prenta myndir sem kall-
ast bláprent og eru myndirnar allar
einstakar. Verkin eru einnig mjög
breytileg og þegar unnin eru Cya-
notypes verk spilar pappírinn, efn-
in sem eru notuð, tíminn sem hvert
verk fær og sólarljósið stóran þátt
í því hvernig lokaútkoman verður.
Verkin eru flest af því sem finnst í
náttúrunni, sjávarfang, þörungar,
fjaðrir eða annað í þeim dúr. Sýn-
ingin verður opin á Kaffi Emil út
sumarið.
arg/Ljósm. ki
Þórður Már Sigfússon hefur ver-
ið ráðinn skipulagsfulltrúi Dala-
byggðar og fleiri sveitarfélaga
og hóf hann störf í byrjun apríl.
Þórður er með BS-gráðu í land-
fræði og hefur einnig lokið Mast-
ersnámi í skipulagsfræði. Hann
lauk námi á síðasta ári og hefur
síðan unnið sem verktaki. Hann
er ættaður úr Árneshreppi og bjó
í fimm ár á Djúpavík sem barn en
hefur búið í Hafnarfirði síðustu
ár. „Ég ákvað að sækja um starf-
ið því mér þótti þetta spennandi
og fjölbreytt. Mitt starfssvæði
telur fimm sveitarfélög; Dala-
byggð, Reykhólahrepp, Strand-
abyggð, Kaldaðarneshrepp og Ár-
neshrepp, sem öll eru með veiga-
mikil mál í gangi sem ég þarf að
hafa yfirumsjón með og afgreiða.
Það verður spennandi að takast á
við,“ segir Þórður þegar Skessu-
horn sló á þráðinn til hans. „Ég
þekki svæðið líka að hluta til þó ég
sé ekki staðkunnugur hér í Döl-
unum en það kemur með tíman-
um og ég er bara spenntur fyrir
því,“ bætir hann við.
Áhugi á að byggja í
Búðardal
Fyrstu vikurnar í starfi hef-
ur Þórður haft í nógu að snúast
við að koma sér inn í verkefni
og nefnir sem dæmi fyrirhuguð
vindorkuver og Hvalárvirkjun-
armál. „Mörg þessara verkefna
eru á byrjunarstigi og munu taka
mörg ár að fullklára. En það eru
líka mörg minni verk sem ég er
að setja mig inn í og má þar nefna
að verið er að deiliskipuleggja
nýja götu í Búðardal og svo er að
rísa raðhús á Reykhólum. Fólk
virðist vera tilbúið að flytja hing-
að í Dalina og við finnum mik-
inn áhug hjá fólki að byggja við
nýja götu,“ segir Þórður. Enn á
eftir að staðfesta deiliskipulag-
ið og segist hann binda vonir við
að það verði staðfest í B-deild í
lok mánaðar. „Það er líka nóg að
gera í uppbyggingu frístunda-
byggða en það er mikill áhugi hjá
fólki hér að byggja sumarbústaði
og breyta jörðum að hluta í frí-
stundabyggð,“ segir hann.
Þórður er fluttur í Búðardal og
segist kunna vel við sig. „Konan
og börnin eru enn í Hafnarfirði
en þau koma svo von bráðar. Ég
er að koma mér inn í mannlíf-
ið hér en það er aðeins öðruvísi
en í bænum. Hér er kyrrlátt og
ekki eins mikið um að vera,“ seg-
ir Þórður. „Þetta er skemmtilegt
lítið þorp og það er alltaf hægt
að finna sér eitthvað til dundurs.
Ég kann vel við kyrrðina og þyk-
ir gott að komast úr látunum og
stressinu í bænum,“ bætir hann
við.
arg
Þórður Már er nýr skipulags-
fulltrúi í fimm sveitarfélögum
Opnar myndlistarsýningu
á Kaffi Emil