Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Page 17

Skessuhorn - 15.05.2019, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 17 SK ES SU H O R N 2 01 9 Akraneskaupstaður auglýsir til sölu Faxabraut 3 Um er að ræða atvinnuhúsnæði við Akraneshöfn samtals 94 m2 að stærð. Húsnæðið er við endabil með sérinngangi og innkeyrslu- dyrum og er aðkoma að húsnæðinu mjög góð. Húsnæðið er hugsað fyrir hafnsækna starfsemi og er mjög snyrtilegt að innan. Ásett verð er kr. 17,2 m.kr. en á húsnæðinu er svonefnd VSK kvöð að fjárhæð um 2 m.kr. sem bætist við kaupverðið. Nánari upplýsingar um eignina veitir Fasteignamiðlun Vesturlands ehf. Tekin verður afstaða til tilboða í lok dags 27. maí 2019. SK ES SU H O R N 2 01 9 Íbúafundur um mótun umhverfisstefnu Akraneskaupstaðar Tilgangur fundarins er að fá fram hugmyndir íbúa um brýnustu viðfangsefnin og framtíðarsýn á sviði umhverfismála í sveitar- félaginu. Á fundinum gefst íbúum gullið tækifæri til að hafa áhrif og koma hugmyndum sínum á framfæri. Stefán Gíslason og Salome Hallfreðsdóttir frá Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. sjá um fundarstjórn og verður fundurinn með þjóðfundarfyrirkomulagi. Boðið verður upp á súpu og brauð. Skráning er hafin á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is/umhverfisþing Íbúar á Akranesi eru eindregið hvattir til að taka daginn frá og mæta á fundinn. Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar vinnur að mótun umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið. Að gefnu tilefni verður efnt til íbúafundar um málefnið fimmtudaginn 23. maí í Frístundamiðstöðinni við Garðavöll og hefst hann kl. 17:30. Mánudaginn 20. maí næstkomandi verður leikskólinn Vallarsel á Akra- nesi 40 ára. Deginum verður fagn- að með skrúðgöngu, hátíðarhöld- um og opnu húsi eftir hádegi þang- að sem foreldrar og aðrir velunnar- ar skólans eru velkomnir frá klukk- an 14:30. Vallarsel er elsti starfandi leikskólinn á Akranesi, sá fyrsti sem var byggður sem slíkur. Síðan hef- ur í tvígang verið byggt við skól- ann. Nú eru 143 börn í sex deildum á Vallarseli og starfsmenn eru um fjörutíu talsins. Blaðamaður settist niður með þeim Brynhildi Björgu Jónsdóttur leikskólastjóra og Vil- borgu Guðnýju Valgeirsdóttur að- stoðarleikskólastjóra. Rætt er um áherslur, hagsmunamál og væntan- legt afmæli. Fjölmenning bætir „Við erum stolt af því að starfrækja fjölmenningarskóla, en hér er hátt hlutfall nemenda af erlendu bergi brotnu. Nú eru 22 börn í skólanum og í haust verða 30 tvítyngd börn hjá okkur. Við höfum hvað þetta snertir skapað okkur sérstöðu meðal leikskóla á Akranesi og aflað okkur sérþekkingar í móttöku tvítyngdra barna og barna af erlendu bergi brotin,“ segja þær Björg og Vilborg í upphafi samtals okkar. Þær segja enn eima af fordómum í garð inn- flytjenda hér á landi, bæði frá sam- félaginu en jafnvel einnig frá for- eldrum annarra barna. Því vilji þær breyta með fræðslu til að fordóm- um verði eytt. „Okkar reynsla er sú að börn innflytjenda eru afskaplega nýtir þjóðfélagsþegnar og foreldrar þeirra eru að taka virkan þátt í okk- ar starfi og það af fullum krafti. Við lítum á þessi börn sem einstaklega góða viðbót við önnur börn sem hjá okkur eru. Fjölbreytnin eyk- ur þroska annarra og víðsýni. Inn- flytjendur hafa einfaldlega sýnt það og sannað að þeir gera samfélagið okkar betra.“ Fyrstu kynni mikilvæg Þær Björg og Vilborg nefna að rannsóknir hafi sýnt að fyrstu tíu vikur einstaklings á nýjum stað skipti höfuðmáli um ákvörðun við- komandi um framtíðarbúsetu. „Því lítum við á það sem skyldu okk- ar að taka vel á móti nýbúum, for- eldrum og börnum þeirra, þann- ig að þeir skynji sig velkomna í það samfélag sem þeir eru að flytja til. Þetta sama má yfirfæra á reynslu fólks ef það byrjar vinnu á nýjum stað, flytur, fer í skóla eða hvað annað.“ Þær segja starfsfólk Vallar- sels hafa byggt upp reynslu í mót- töku fólks sem komið er lengra að og þurfi því oft á tíðum meiri tíma og fræðslu um hvernig snúa eigi sér í framandi umhverfi á nýjum stað. „Þessari reynslu í móttöku erlendra barna gætum við hæglega miðlað til forsvarsmanna annarra skóla hér í samfélaginu sem og annars staðar,“ segja þær Vilborg og Björg. Húsnæðis- og fræðslu- mál ofarlega á baugi Leikskólastjórarnir á Vallarseli draga ekki dul á að húsnæðismál leikskólanna á Akranesi og lítil end- urnýjun í hópi leikskólakennara séu þau tvö atriði sem brenni hvað mest á þeim sem og öðru leikskólafólki á Akranesi um þessar mundir. „Okk- ar helstu áhyggjur eru í raun póli- tísks eðlis. Við erum með fullsetna leikskóla hér á Akranesi og mikil þörf á að farið verði fljótt og örugg- lega að leggja drög að fjárfestingum til framtíðar. Skólarnir okkar eru að eldast og geta ekki að óbreyttu tek- ið við þeirri fólksfjölgun sem fram- undan er í bæjarfélaginu. Á Akra- nesi hafa leikskólamál verið til mik- illar fyrirmyndar í mörg ár og bær- inn okkur oft í umræðunni verið settur á stall með sveitarfélögunum Árborg, Akureyri og Hafnarfjarð- arbæ í framsækni á sviði leikskóla- mála. Við erum stoltar af skólan- um okkar en hér á Akranesi er leik- skólastarfsfólk hins vegar að eldast og lítil endurnýjun í þeim hópi á landsvísu. Því teljum við að stjórn- völd verði að efla leikskólaþáttinn í kennslu og kjörum, en bæjaryfir- völd hér á Akranesi hafa það hins vegar alveg í hendi sér að undirbúa byggingu nýs leikskóla sem allra fyrst. Góður aðbúnaður í skólun- um og vinnuaðstaða verður síðan hvatning til að fleiri afli sér mennt- unar í leikskólakennarafræðum þannig að ekki verði skortur á hæfu og vel menntuðu fólki. Einung- is þannig getur Akraneskaupstaður varið þá góðu ímynd sem leikskól- arnir hér hafa skapað sér.“ Afmælisvika framundan Afmæli Vallarsels hefst í raun næst- komandi föstudag þegar 32 börn sem fædd eru 2013 verða útskrifuð. Hinn eiginlegi afmælisdagur er síð- an mánudaginn 20. maí. „Við mun- um hefja afmælisdaginn með skrúð- göngu um bæinn í fylgd lögreglu og annarri skipulagðri dagskrá inn- anhúss í kjölfarið. Það verður opið hús eftir hádegi þangað sem foreldr- ar og aðrir velunnarar skólans okk- ar eru velkomnir frá kl. 14:30. Vikan verður svo undirlögð af innanhúss- dagskrá hjá okkur í tilefni afmælisins. Einkunnarorð okkar eru „Syngjandi glöð í leik og starfi.“ Við munum gera okkar til að viðhalda því mark- miði að hver og einn skipti máli og að hér séu allir á jafningjagrundvelli. Við erum stoltar af okkar skóla,“ segja þær Brynhildur Björg og Vil- borg Guðný að endingu. mm Brynhildur Björg og Vilborg Guðný inni á Stekk, þar sem 2014 árgangurinn er til húsa á Vallarseli. Leikskólinn Vallarsel fagnar fjörutíu árum Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.