Skessuhorn - 15.05.2019, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 201918
Akraneskaupstaður og Golfklúbb-
urinn Leynir buðu bæjarbúum og
gestum til formlegrar opnunar á
nýrri Frístundamiðstöð við Garða-
völl síðastliðinn laugardag. Frí-
stundamiðstöðin er þúsund fer-
metrar að flatarmáli, fjölnota hús
sem í senn verður klúbb- og félags-
aðstaða golfklúbbsins Leynis með
æfingaaðstöðu í kjallara, fundaað-
stöðu og veitingastaðnum Galitó
bistro café, en auk þess allt að tvö
hundruð manna veislusalur til út-
leigu. Auk táknrænnar vígslu á laug-
ardaginn með borðaklippingu var í
ávörpum fulltrúa Akraneskaupstað-
ar og Golfklúbbsins Leynis farið
yfir byggingarsögu hússins og því
lýst hvernig húsið mun verða lyfti-
stöng fyrir félagsaðstöðu Akurnes-
inga, en það bætir ekki síst mögu-
leika Golklúbbsins Leynis sem nú
er á flestum sviðum í fararbroddi
íslenskra klúbba hvað alla aðstöðu
varðar.
Skammur
framkvæmdatími
Frá því framkvæmdir hófust við
húsið eru einungis liðnir 14 mán-
uðir. Skóflustunga var tekin að hús-
inu í janúar 2018 og fyrsti áfangi
þess tekinn í notkun um áramót-
in síðustu. Húsið þykir afar vel
heppnað og er í senn falleg bygging
og notadrjúg fyrir fjölbreytta starf-
semi, bæði sem tengist starfi golf-
klúbbsins en ekki síður sem fjölnota
veislu- og samkomuhús á Akranesi.
Þess má geta að veitingasalur get-
ur ýmist rúmað 200 manns í sæti en
hægt að taka húsgögn úr honum og
breyta í tvöfaldan fullgildan boccia-
völl. Galito hefur nú opnað nýjan
veitingastað í húsinu, Galito Bistro
Café þar sem hægt er að kaupa
mat af matseðli alla daga. Hilmar
Ólafsson veitingamaður mun stýra
þeim þætti í starfsemi hússins. Við
þetta sama tækifæri á laugardaginn
var skrifað undir styrktarsamninga
milli Leynis og Olís annars veg-
ar og Landsbankann hins vegar. Þá
var endurnýjaður rekstrarsamning-
ur Akraneskaupstaðar og Leynis.
Boðið var upp á kaffiveitingar
innandyra en úti voru hundruðir
pylsa grillaðar. Í gangi var styrkt-
armót Verkalýðsfélags Akraness
í golfi, kynning á golfi fyrir byrj-
endur á öllum aldri, SNAG golf
fyrir unga sem aldna, hoppukast-
ali fyrir yngstu gesti, andlitsmálun
og margt fleira. Dagurinn var ein-
staklega vel heppnaður í góðu veðri
eins og meðfylgjandi myndir bera
með sér.
Samstillt átak
Gesti við vígsluathöfnina ávörpuðu
þeir Þórður Emil Ólafsson, formað-
ur Leynis, Guðmundur Sigvalda-
son, framkvæmdastjóri klúbbsins
og Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri. Þórður Emil sagði að nú væri
Golfklúbburinn Leynir kominn í
fremstu röð golfklúbba í landinu
Nýja Frístundamiðstöðin við Garðavöll
var vígð á laugardaginn
Hér mundar hópurinn skærin sem notuð voru til að klippa á borða og opna Frístundamiðstöðina á Garðavelli með tákn-
rænum hætti. F.v. Guðmundur Sigvaldason, Þórður Emil Ólafsson, Elsa Lára Arnardóttir, Valgarður Lyngdal Jónsson, Sævar
Freyr Þráinsson, Rakel Óskarsdóttir og Marella Steinsdóttir.
Á laugardaginn fór fram styrktarmót VLFA í golfi. Hér undirbýr Vilhjálmur Birgis-
son formaður upphafshögg sitt þegar hann hóf keppni klukkan 13. Í baksýn er
framhlið nýju Frístundamiðstöðvarinnar.
Gestir að koma sér fyrir skömmu áður en vígsluathöfnin hófst. Guðmundur Sigvaldason og Þórður Emil Ólafsson bjóða gesti velkomna.
Sævar Freyr Þráinsson ávarpar gesti. Guðmundur og Þórður Emil við merkið sem ÍA gaf Leyni í tilefni dagsins.
Akraneskaupstaður færði Leyni hjartastuðtæki að gjöf í tilefni dagsins. Búi Örlygsson og Eggert Hjelm Herbertsson fygljast með dagskránni.