Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 15.05.2019, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 201924 Vorið 2017 keyptu hjónin Edit Ómarsdóttir og Davíð Reyn- ir Steingrímsson einbýlishús við Furugrund á Akranesi. Húsið var allt upprunalegt með rafmagns- kyndingu, upprunalegum innrétt- ingum, gólfefnum og veggjum sem höfðu aðeins einu sinni verið mál- aðir. Þá voru allar leiðslur og lagn- ir upprunalegar og komnar á tíma. Þau Edit og Davíð gerðu húsið upp og fluttu inn í nóvember sama ár. Blaðamaður Skessuhorns kíkti ný- verið í heimsókn til þeirra og fékk að sjá breytingarnar á húsinu og ræddi við Edit um framkvæmdirn- ar. Það var afi Editar sem bjó í hús- inu á undan þeim. „Við keyptum húsið af fjölskyldunni eftir að afi lést. Við vildum halda húsinu inn- an fjölskyldunnar og við vorum líka ánægð að komast í hús á einni hæð. Áður bjuggum við í þriggja hæða húsi við Suðurgötu. Ég ólst líka upp í þessu hverfi og finnst ég eig- inlega bara komin heim núna,“ seg- ir Edit um leið og hún sýnir blaða- manni húsið. Reyndu að nýta allt sem þau gátu „Við rifum upp gólfefni, skiptum um eldhúsinnréttingu, lagnir og ofna. Annars reyndum við að end- urnýta það sem við gátum til að vera umhverfisvæn. Gluggar og hurð- ar fengu til dæmis bara smá máln- ingu,“ segir Edit og bendir blaða- manni á að engin opnanleg fög eru í gluggunum. „Hér opnar maður lúgu undir gluggunum til að lofta út,“ segir hún og hlær. Þau tóku út öll gólfefni, skiptu um innréttingu í eldhúsinu en keyptu til þess notaða innréttingu. „Við þurftum að grafa upp allan garðinn og skipta um neyslulagnir og skólp og svo þurfti að skipta um raflagnir og ofna því hér voru ennþá bara rafmagnsofn- ar.“ Edit og Davíð gerðu einnig upp húsið sem þau bjuggu í á Suður- götunni. „Þetta er mikil vinna og kannski ekki alltaf skemmtilegt á meðan á þessu stendur. En það er svo gaman að fylgjast með breyting- unum og sjá svo niðurstöðuna. Ég mæli klárlega með því að allir prófi þetta, að skapa sitt eigið heimili svona, og ég bíð spennt eftir næsta húsi hjá okkur,“ segir hún og hlær. „Við gerðum þetta mikið til sjálf með aðstoð góðra vina en fengum pípara til að sjá um allar vatnslagn- ir,“ segir Edit að endingu. arg/ Ljósm. arg, en fyrir breyting- ar á húsinu úr einkasafni. Gerðu upp einbýlishús sem var fram að því í upprunalegu ástandi Edit Ómarsdóttir og Davíð Reynir Steingrímsson, eiginmaður hennar, keyptu hús við Furugrund og tók það allt í gegn. Húsið var allt upprunalegt. Hér má sjá inn í borðstofu fyrir breytingar. Borðstofan eftir breytingar. Svona var baðherbergið fyrir breytingar. Svona er baðherbergið í dag. Í húsinu eru ekki opnanleg fög í gluggum. Til að lofta út eru opnaðar lúgur undir gluggunum, eins og sjá má á þessari mynd. Hér má sjá inn í eitt barnaherbergið fyrir breytingar. Svona er barnaherbergið í dag, bjart og fallegt. Hér sést inn í borðkrók í eldhúsinu. orðkrókurinn eftir framkvæmdir. Eins og sést héldu þau gamla eldhúsborðinu og ljósinu en þau Edit og Davíð reyndu að vera nýta það sem hægt var.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.