Skessuhorn - 15.05.2019, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 201924
Vorið 2017 keyptu hjónin Edit
Ómarsdóttir og Davíð Reyn-
ir Steingrímsson einbýlishús við
Furugrund á Akranesi. Húsið var
allt upprunalegt með rafmagns-
kyndingu, upprunalegum innrétt-
ingum, gólfefnum og veggjum sem
höfðu aðeins einu sinni verið mál-
aðir. Þá voru allar leiðslur og lagn-
ir upprunalegar og komnar á tíma.
Þau Edit og Davíð gerðu húsið upp
og fluttu inn í nóvember sama ár.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti ný-
verið í heimsókn til þeirra og fékk
að sjá breytingarnar á húsinu og
ræddi við Edit um framkvæmdirn-
ar. Það var afi Editar sem bjó í hús-
inu á undan þeim. „Við keyptum
húsið af fjölskyldunni eftir að afi
lést. Við vildum halda húsinu inn-
an fjölskyldunnar og við vorum líka
ánægð að komast í hús á einni hæð.
Áður bjuggum við í þriggja hæða
húsi við Suðurgötu. Ég ólst líka
upp í þessu hverfi og finnst ég eig-
inlega bara komin heim núna,“ seg-
ir Edit um leið og hún sýnir blaða-
manni húsið.
Reyndu að nýta allt sem
þau gátu
„Við rifum upp gólfefni, skiptum
um eldhúsinnréttingu, lagnir og
ofna. Annars reyndum við að end-
urnýta það sem við gátum til að vera
umhverfisvæn. Gluggar og hurð-
ar fengu til dæmis bara smá máln-
ingu,“ segir Edit og bendir blaða-
manni á að engin opnanleg fög eru
í gluggunum. „Hér opnar maður
lúgu undir gluggunum til að lofta
út,“ segir hún og hlær. Þau tóku út
öll gólfefni, skiptu um innréttingu í
eldhúsinu en keyptu til þess notaða
innréttingu. „Við þurftum að grafa
upp allan garðinn og skipta um
neyslulagnir og skólp og svo þurfti
að skipta um raflagnir og ofna því
hér voru ennþá bara rafmagnsofn-
ar.“
Edit og Davíð gerðu einnig upp
húsið sem þau bjuggu í á Suður-
götunni. „Þetta er mikil vinna og
kannski ekki alltaf skemmtilegt á
meðan á þessu stendur. En það er
svo gaman að fylgjast með breyting-
unum og sjá svo niðurstöðuna. Ég
mæli klárlega með því að allir prófi
þetta, að skapa sitt eigið heimili
svona, og ég bíð spennt eftir næsta
húsi hjá okkur,“ segir hún og hlær.
„Við gerðum þetta mikið til sjálf
með aðstoð góðra vina en fengum
pípara til að sjá um allar vatnslagn-
ir,“ segir Edit að endingu.
arg/ Ljósm. arg, en fyrir breyting-
ar á húsinu úr einkasafni.
Gerðu upp einbýlishús sem var fram
að því í upprunalegu ástandi
Edit Ómarsdóttir og Davíð Reynir Steingrímsson, eiginmaður hennar, keyptu hús við Furugrund og tók það allt í gegn. Húsið
var allt upprunalegt.
Hér má sjá inn í borðstofu fyrir breytingar.
Borðstofan eftir breytingar.
Svona var baðherbergið fyrir
breytingar.
Svona er baðherbergið í dag. Í húsinu
eru ekki opnanleg fög í gluggum. Til
að lofta út eru opnaðar lúgur undir
gluggunum, eins og sjá má á þessari
mynd.
Hér má sjá inn í eitt barnaherbergið
fyrir breytingar.
Svona er barnaherbergið í dag, bjart
og fallegt. Hér sést inn í borðkrók í eldhúsinu.
orðkrókurinn eftir framkvæmdir. Eins og sést héldu þau
gamla eldhúsborðinu og ljósinu en þau Edit og Davíð
reyndu að vera nýta það sem hægt var.