Skessuhorn


Skessuhorn - 15.05.2019, Side 27

Skessuhorn - 15.05.2019, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 2019 27 Umhverfis- og hreinsunarvika hófst á Akranesi síðastliðinn miðvikudag með hinni árlegu, stóru vorhreinsun aðildarfélaga Íþróttabandalags Akraness. Komið var saman við íþróttahús bæjarins, börn og fullorðnir fengu poka og hanska og svæð- um innan bæjarins skipt milli hópanna. Að lokinni hreinsun var frítt í sund fyrir alla plokkara og boðið upp á kakó, klein- ur og ávexti. Skessuhorn fylgdist með hreinsunarstarfinu og mátti sjá að börnin voru fljót að fylla í pokana, víða var rusl að finna. Krakkarnir voru sérlega áhugasamir um verkefnið og segir Hildur Karen Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri ÍA að margir hafi lýst sérstakri ánægju með þátttöku í verkefninu. „Þetta var æðislega gaman,“ sagði einn ungur drengur við mig og bókstaflega geislaði af gleði,“ segir hún. Hreinsunarvikan hélt svo áfram. Gámar voru settir niður á nokkrum stöðum í bænum og gátu íbúar og starfsmenn fyr- irtækja skilað þar endurgjaldslaust því flokkaða sorpi sem saf- naðist við vorhreinsun á lóðum og almennum svæðum. Gá- mar voru merktir með viðeigandi flokkunarmerkjum. Ald- raðir og öryrkjar gátu auk þess óskað eftir því í þjónustuveri Akraneskaupstaðar að fá aðstoð við að sækja staka, þunga eða stóra hluti. mm/ Ljósm. mm og íþróttafélög ÍA. Stór hreinsunardagur á Akranesi Fulltrúar úr yngstu flokkum knattspyrnunnar fengu úthlutað að hreinsa strandlengjuna við Langasand. Þessar glaðlegu stúlkur voru að hreinsa grasflötina við Þjóðbraut. Hressar stúlkur úr fimleikafélaginu við Kirkjubraut. Fimleikastúlkur við hreinsun nærri Þjóðbraut. Þessar hressilegu stúlkur nutu dagsins. Stillt upp með afrakstur ruslahreinsunar. Karatefélagið hreinsaði ströndina við Ægisbraut. Liðsmenn úr Kára hreinsuðu niður við Breið. Félagar í Sundfélagi Akraness. Mikið rusl var í nágrenni fjölfarinna umferðargatna. Hér er hópur frá fimleikafélaginu. Svo var vel þegið að fá kakó og aðra hressingu að hreinsun lokinni. Þær stóðu í eldlínu skipulagningar og gáfu plokkurum hressingu.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.