Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 7
www.skessuhorn.is
Fréttaveita Vesturlands
Nice & Mónakó
sp
ör
e
hf
.
Vetur 1
Glæsileg ferð á frönsku rivíeruna eða Côte d‘Azur þar
sem við njótum lífsins og tökum þátt í hátíðahöldum
heimamanna á blómahátíð í Nice og upplifum
ævintýralega sítrónuhátíð í Menton. Fetum í fótspor
kvikmyndastjarna í Cannes og látum suðrænan blæ leika
um okkur í furstadæminu Mónakó.
28. febrúar - 7. mars
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 208.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Vegagerðin hefur ákveðið að lækka
hámarkshraða í 50 km/klst. við all-
ar einbreiðar brýr á þjóðvegum þar
sem umferð er meiri en 300 bílar á
dag að jafnaði alla daga ársins. Um
er að ræða um 75 einbreiðar brýr,
um helmingur þeirra á hringveg-
inum. Þá verður viðvörunarskilt-
um breytt og einnig bætt við undir-
merki á ensku á viðvörunarskiltum.
Kostnaður við merkingar er áætl-
aður um 70-80 milljónir króna.
„Vegagerðin hefur einnig ákveð-
ið að yfirfara hámarkshraða á þjóð-
vegum í dreifbýli og breyta honum
til lækkunar reynist þess þörf eða
fjölga merkingum um leiðbein-
andi hraða. Þá verður gerð úttekt á
vegriðum á öllum brúm á stofn- og
tengivegum. Lagfæringum verður
forgangsraðað eftir ástandi brúnna
og aðstæðum á hverjum stað eftir
því sem svigrúm er í fjárheimild-
um,“ segir í tilkynningu frá Vega-
gerðinni. Eftir sem áður gildir sú
gullvæga regla að ávallt ber að haga
akstri eftir aðstæðum.
Heildarfjöldi brúa á þeim þjóð-
vegum sem teljast til stofn- og
tengivega er 892. Af þessum brúm
teljast 423 vera einbreiðar, þ.e. fimm
metrar að breidd eða mjórri. „Mikil
áhersla er lögð á að fækka einbreið-
um brúm en ljóst er að langan tíma
mun taka að útrýma þeim. Á und-
anförnum þremur árum hefur stað-
ið yfir átak varðandi bættar merk-
ingar við einbreiðar brýr, sem m.a.
felst í uppsetningu blikkljósa, og
hafa nú allar brýr á hringvegi ver-
ið merktar á sambærilegan hátt og
sama gildir um nokkrar brýr utan
hringvegar.
Á fundi um vegamál í Reyk-
hólasveit í síðustu viku sagði Guð-
mundur Valur Guðmundsson, for-
stöðumaður hönnunarsviðs Vega-
gerðarinnar, að áætlaður kostnað-
ur við að breikka einbreiða brú og
gera tvölfalda væri um fimm millj-
ón krónur metrinn. Þannig kost-
aði um 100 milljónir að tvöfalda
20 metra langa brú. Af því leiðir að
ár og dagar munu líða áður en ein-
breiðum brúm hér á landi verður
útrýmt.
mm
Hámarkshraði lækkaður
við einbreiðar brýr
WEST ICELAND
Travel
Ferðast um Vesturland 2019-2020
Fr
ee
Co
pyPublished by Skessuhorn - www.skessuhorn.is
Travel W
EST ICELA
N
D
- Ferðast um
Vesturland 2019-2020 - Your guide to W
est Iceland
West Iceland
Vesturland
Kynning á ferðablaðinu
Travel West Iceland 2019-2020
Útgáfuþjónusta Skessuhorns, í samstarfi við
Markaðsstofu Vesturlands, mun í apríl 2019 gefa
út ferðablaðið Travel West Iceland 2019-2020.
Blaðið verður á ensku og íslensku. Allir sem starfa
við ferðaþjónustu á Vesturlandi og vilja koma sér á
framfæri við ferðafólk eru hvattir til að vera með í
blaðinu og gera sig sýnilega fyrir gesti. Þau fyrir-
tæki sem eru skráðir samstarfsaðilar Markaðsstofu
Vesturlands fá sem hluta af félagsaðild 1/8 aug-
lýsingu í blaðinu. Auk þess eru stærri auglýsingar
boðnar til sölu. Blaðið verður litprentað í A5 broti,
96-112 blaðsíður og gefið út í 60 þúsund eintökum.
Efnistök í blaðinu verða með svipuðu sniði og
undanfarin ár. Þar verður almennur kafla um Vestur-
land, héraðslýsingar fyrir Akranes og Hvalfjörð,
Borgarfjörð, Snæfellsnes auk Dala og Reykhóla á
ensku og íslensku sem og ábendingar um mark-
verða viðkomustaði og náttúruundur. Kort verða á
sínum stað auk viðburðaskrár og fjallað um Vestur-
land að vetri.
Helstu dreifingarstaðir nú verða á höfuðborgar-
svæðinu, upplýsingamiðstöðvum um land allt,
aðkomuleiðum ferðamanna á Vesturland og síðast
en ekki síst á öllum helstu áningar- og ferðamanna-
stöðum á Vesturlandi sjálfu. Lager af blaðinu
verður ætíð til dreifingar hjá Markaðsstofu Vestur-
lands í Borgarnesi. Einnig verður blaðið aðgengi-
legt á www.skessuhorn.is og á www.west.is,
þaðan sem ferðaþjónustuaðilar geta hvenær sem
er hlaðið því niður og sent viðskiptavinum sínum á
rafrænu formi.
Lögð er áhersla á að auglýsendur noti alþjóðleg
ferðaþjónustumerki í auglýsingum sínum.
Auglýsingasala
Panta þarf auglýsingapláss tímanlega eða í síðasta
lagi fyrir 15. febrúar 2019. Boðið er upp á heil-
síðuauglýsingar, hálfsíðuauglýsingar, 1/4 auglýs-
ingar og 1/8 auglýsingar. Auglýsingaverð hefur
verið lækkað frá því í fyrra.
Um sölu auglýsinga sér Ingunn Valdís Baldurs-
dóttir í síma 433-5500 eða á netfangið
ferdablad@skessuhorn.is.
Athygli er vakin á því að Markaðsstofa Vesturlands
mun á þessu ári ekki gefa út bæklinginn West
Iceland - The Official Tourist Guide.
Við hlökkum sem fyrr til góðs samstarfs við ferða-
þjónustufyrirtæki og aðra samstarfsaðila á Vestur-
landi.
Útgáfuþjónusta Skessuhorns
Sími 433-5500 og ferdablad@skessuhorn.is.
1/1
1/2 1/4
1/8