Skessuhorn


Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 16.01.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 201910 Vegagerðin boðaði á miðvikudag- inn íbúa í Reykhólahreppi og ná- grannasveitarfélögum til upplýs- ingafundar um stöðu vegamála í Gufudalssveit. Húsfyllir var á fundinum sem haldinn var í Reyk- hólaskóla, en áætlað er að um 150 gestir hafi mætt. Auk heimafólks mættu fjölmargir íbúar frá suður- fjörðum Vestfjarða enda hafa þeir mikla hagsmuni af bættri vegteng- ingu á stofnvegakerfinu. Fram kom á fundinum að Vegagerðin stendur fast á að öll rök hnígi í þá átt að vegagerð um Teigsskóg, svoköll- uð Þ -H leið, sé vænlegasti kostur- inn. Reyna verði á að umferðarör- yggismál vegi þyngra en náttúru- vernd þegar kemur að ákvörðun um staðarval. Starfsmenn Vega- gerðarinnar segja að jafnt kostnað- ur, tímarammi, umferðaröryggi og aðrir þættir styðji þá niðurstöðu að leggja veginn um Teigsskóg. Fram hefur komið að niðurstaða valkostagreiningar fyrir Reykhóla- hrepp sýndi aftur á móti að svo- kölluð R-leið um Reykhóla, með brú yfir Þorskafjörð, væri besti kosturinn. Þau rök hröktu starfs- menn Vegagerðarinnar á fundin- um. Fyrir liggur nú að sveitarstjórn Reykhólahrepps þarf innan mjög skamms tíma að taka næsta skref í málinu, sem felst í breytingu á að- alskipulagi. Stefnir hreppsnefnd á að taka afstöðu í þessum mánuði. Það fékk blaðamaður Skessuhorns staðfest í samtölum við hrepps- nefndarmenn að afloknum fundin- um síðastliðinn miðvikudag. Vestfirðir munu blómstra Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar bauð gesti vel- komna á upplýsingafundinn á Reykhólum. Ásamt henni voru fimm lykilstarfsmenn Vegagerðar- innar með í för. „Okkar markmið er að upplýsa sveitarstjórn og íbúa hér sem mest og best um stöðu mála. Vegur um Gufudalssveit er vissulega stórt verkefni í vegagerð á landsvísu og við ákvörðun þarf að taka mið af gríðarlega mörgum þáttum og vanda til verka í hví- vetna. Okkar markmið er einfald- lega að tengja Vestfirði við stofn- vegakerfi landsins með sem örugg- ustum hætti. Þegar því verki lýk- ur, er ég sannfærð um að mannlíf og atvinnulíf á Vestfjörðum mun blómstra,“ sagði Bergþóra. Þ-H leiðin hagkvæmust og öruggust Talaði Bergþóra afdráttarlaust fyr- ir því að Þ-H leið yrði fyrir val- inu. „Reykhólahreppur getur ein- faldlega ekki lagt til að farin verði svokölluð R-leið. Reykhólaveg- ur er að óbreyttu ekki nógu burð- ugur til að taka á sig alla þá um- ferðaraukningu sem verður þeg- ar nýr stofnvegur verður opnaður vestur á firði. Það er ekki markmið Vegagerðarinnar að bútasauma stofnvegagerðina, heldur vanda til verka. Reykhólavegur er barn síns tíma og uppfyllir engan veginn þá staðla sem þurfa að vera til stað- ar. Vegagerðin er og verður varð- hundur umferðaröryggis en okkar er einnig að gæta hagkvæmni við meðferð skattfjár. R-leið með brú frá Reykjanesi yfir Þorskafjörð og til Skálaness er þremur milljörðum króna dýrari framkvæmd en Þ-H leið og að auki mun tímaramminn lengjast til muna. Menn mega ekki gleyma því að Alþingi hefur þeg- ar heimilað fjárveitingu í vegagerð eins og hún liggur fyrir um Teigs- skóg. Vegagerðin leggur því til að farin verði sú leið sem er hag- kvæmust og öruggust. Við erum hingað komin í Reykhólasveitina til að fræða hreppsnefnd um þetta og um leið ykkur íbúana,“ sagði Bergþóra. Langur aðdragandi en kveðst nú vongóður Guðmundur Valur Guðmunds- son forstöðumaður hönnunar- sviðs hjá Vegagerðinni hélt ítar- lega kynningu og fjallaði um allt frá sögu undirbúnings vegegerðar um Reykhólasveit til stöðu máls- ins í dag. Fór hann yfir þá faglega vinnu sem leggja þarf í við hönn- un og undirbúning stórra sam- göngumannvirkja; en þar vega þungt þættir á borð við náttúru- vernd, umferðaröryggi, kostn- að og sitthvað fleira. Sagði hann að fyrst hefði verið gerð drög að teikningu á brú yfir Þorskafjörð árið 1976, þannig að hugmyndin er engan vegin ný af nálinni. Mat- sáætlun var gerð árið 2003 um veg um Gufudalssveit og komst mál- ið þá fyrst á nokkurn skrið. Skipu- lagstillaga var unnin 2004 en 2006 var því hafnað að fara með veg um Teigsskóg. Sú ákvörðun var kærð og fór bæði fyrir héraðsdóm og hæstarétt. Árið 2012 voru gerð ný drög að matsáætlun en fyrirstaða var einatt vegna verndarsvæða. Lagði Guðmundur Valur áherslu á að það væri stefna Vegagerðar- innar að hafa umferðaröryggi sem mest. Árið 2014 var lögð fram matsáætlun um nokkrar leiðir og álit Skipulagsstofnunar hafi ver- ið að svokölluð D2 leið hefði í för með sér minnst ígrip í náttúruna. Árið 2017 hafi málin verið tekin að skýrast allt þar til Reykhólahrepp- ur hafi ákveðið sumarið 2018 að fá norka fyrirtækið Multiconsult til að skoða hvort aðrir vegkost- ir væru í stöðunni. Norsku ráð- gjafarnir töldu svo vera og nefndu sérstaklega R-leið, með því að nýta gamla Reykhólaveginn, brúa Þorskafjörð frá Reykjanesi og yfir í Skálanes. „Við funduðum í dag með sveitarstjórn Reykhólahrepps, skýrðum sjónarmið Vegagerðar- innar og fórum ítarlega yfir málið. Í raun er þetta fyrsti fundur okkar við hreppsnefnd frá því í fyrravor. Vonandi erum við nú komin vel á veg með að leiða málið til lykta,“ sagði Guðmundur Valur. Reykhólavegur ekki boðlegur stofnvegur Að því búnu fór Guðmundur Valur yfir helstu atriði sem Vegagerðin hefur í huga almennt áður en hægt verður að taka ákvörðun um vega- og brúarstæði. Sagði hann ófrá- víkjanlega reglu að umferð eykst þegar vegir eru lagðir bundnu slit- lagi og slíkt yrði upp á teningnum í Reykhólasveit. Fór hann því næst yfir áætlanir um umferðaraukningu um svæðið og hversu mismunandi ólíkir valkostir stytta vegalengdir. Nefndi hann að sem dæmi styttir Þ-H leiðin vegalengdir verulega fyrir alla nema þá sem fara leiðina Patreksfjörður og enda á Reyk- hólum. Loks fór Guðmundur Val- ur yfir ýmsar hagrænar breytingar sem verða samhliða vegagerð. Líkt og vegamálastjóri hafði komið inn á sagði Guðmundur Valur það haf- ið yfir allan vafa að Reykhólaveg- ur uppfyllti ekki þau skilyrði sem setja verður út frá umferðaröryggi um stofnbrautir ef aukinni umferð yrði beint inn á hann. Slysatíðni myndi þá aukast enda eru á honum einbreiðar brýr, beygjur, öryggis- svæði utan vegar eru óforsvaran- leg, veghalli rangur, vegbreidd of lítil og fleiri þættir sem útilokuðu að nota Reykhólaveg óbreyttan sem stofnveg. Fór hann yfir þá vegi hér á landi sem hafa mesta slysa- tíðni en þar stendur Skógarstrand- arvegur og Vatnsnesvegur í Húna- vatnssýslu uppúr, með þrefalt fleiri slys en að meðatali. Hvorugur sá vegur er með bundnu slitlagi, líkt og Reykhólavegur, en með aukinni umferð um Reykhólaveg myndi slysum þar fjölga einnig. Þá nefndi Guðmundur Valur að þverun Þorskafjarðar og brú væri mun umfangsmeiri framkvæmd en Multiconsult hefði haldið fram í fyrrasumar. Kostnaður við land- fyllingu og brúargerð yrði að taka mið af straumþunga undir brú. Áætlaði hann að brú frá Reykjanesi yfir að Skálanesi þyrfti að líkind- um að verða 900 metra löng og þar með lengsta brú landsins í notk- un. Slíkt mannvirki kostar varlega áætlað um sex milljarða króna, sagði hann og bætti við að þar með væru forsendur Multiconsult ekki réttar og valkostagreiningin því sömuleiðis. Loks fór Guðmundur Valur yfir áætlaða tímalínu út frá mismun- andi valkostum. Áætlar Vegagerð- in að hægt verði mögulega að ljúka við Þ-H leið haustið 2023, D2 leið haustið 2024 en A-3 leið (R-leið) haustið 2025 í fyrsta lagi. mm Vegagerðin boðaði til íbúafundar á Reykhólum Vegagerðin telur veg um Teigsskóg öruggustu, ódýrustu og fljótlegustu leiðina Fjölmenni var á fundinum. Sex af lykilstjórnendum Vegagerðarinnar mættu á fundinn enda telur stofnunin brýnt að niðurstaða fáist í skipulagsmál sem fyrst þannig að styttast geti í að framkvæmdaleyfi verði hægt að gefa út. F.v. Auður Þóra Árnadóttir, Bergþóra Þorgeirsdóttir, Magnús Valur Jóhannsson, Guðmundur Valur Guðmundsson, G.Pétur Matthíasson og Pálmi Þór Sævarsson. Guðmundur Valur Guðmundsson fór ítarlega yfir vegagerð í Gufudalssveit allt frá fyrstu hugmyndum árið 1976 til dagsins í dag.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.